september 28, 2005

Blessaða klukkið

Jújú þá var maður nú klukkaður líka eins og meirihluti íslenskra bloggara. Get nú örugglega fundið e-rjar 5 staðreyndir um mig.

1. Ég elska þvottavélina og þurrkarann okkar!! Mikill munur að fá þvottavélina og þurfa ekki að dröslast með allan þvottinn upp í Centerbyggingu og ennþá meiri munur þegar þurrkarinn kom og við hættum að þurfa að hengja allan þvottinn upp. Var komin með ógeð á að hengja upp taubleyjur!!

2. Ég þorði lengi vel ekki að borða gulrætur, því e-r laug því að mér að þá myndu brjóstin stækka.

3. Ég kúgast ef ég borða banana.

4. Fyrir rúmu ári síðan, var ég í Århus hjá Helgu Björt með Lindu Rós og Berglindi. Þá ræddum við um barneignir og ég sagði að mig myndi ekki langa til að eignast tvíbura. Fékk því nett sjokk við fréttirnar, en eftir að hafa reynt það, er það einfaldlega það besta sem hefur komið fyrir mig, og ég væri alveg til í tvöfaldan skammt aftur:)

5. 9 dagar í að ég kem í 18 daga heimsókn á klakann:D

E-ð er talað um að maður eigi að klukka 5 aðra... held að það séu nú flestir að verða klukkaðir, reyni samt að klukka Helgu Björt, kominn tími til að það skráist e-ð nýtt á hennar síðu;) Svo klukka ég bara restina af bónerhópnum, og jú öll systkini mín yngri en Margrét;) Miklu fleiri en fimm en samt bara 2 hópar + einstaklingur:)

Í öðrum fréttum er það helst, að við erum loksins búin að festa kaup á kerru handa börnunum, búin að prufukeyra hana alla leiðina yfir til Guðbjargar og Vignis (sem er eins nálægt og hugsast getur;)). Ég lenti í því að pústið datt undan bílnum þegar við Birkir vorum á leiðinni til læknis á fimmtudaginn. Var ekki mjög glöð! Búið að laga pústið, en þá bilaði vatnsdælan og nú er bíllinn aftur á verkstæði. Bíllinn er samt kominn með skoðun, athugasemdarlausa!! Víííí!!
Á meðan fór Jobbi með bílinn í skoðun og að kaupa kerruna á mánudaginn fór ég með börnin í vagninum í Lyngby storcenter og fór á pínu verslunartrip. Keypti mér reyndar bara eina peysu en alveg slatta á börnin, ohh það er svo gaman:D Svo keypti ég líka agalega sniðugan naghring því þau eru alltaf að naga hendur, snuð, smekkina, taubleyjur o.s.frv. Þar sem þessi naghringur var bara festur á svona pappaspjald og gat hvaða skítur sem er hafa lent á þessu áður en ég fékk þetta þá ákvað ég nú að hreinsa þetta vel. Henti þessu augnablik ofan í sjóðandi vatn, svona eins og maður gerir við snuðin. Neinei, það má greinilega ekki, því gúmmíið BRÁÐNAÐI!!! Jæja, þau eiga þá bara engan naghring ennþá...

Skrifaði eyrunl klukkan 02:23 EH | 4 Ummæli

september 21, 2005

Verkfræðingur á heimilinu

Hann er svo duglegur, hann er svo klár, hann er bara meiriháttar:) Ég er alveg ÓTRÚLEGA stolt af honum Jobba, en hann varði mastersverkefnið sitt í gær og því orðinn master í verkfræði sem gefur manni rétt til að kalla sig VERKFRÆÐING!! (B.Sc. í verkfræði gefur manni ekki þau réttindi, been there, done that;)) Börnin voru látin í pössun í gær svo ég gæti nú farið og hlustað á drenginn, honum gekk alveg ljómandi vel og fékk 10 fyrir verkefnið. Skalinn er jú aðeins hærri en heima en það er svona tæplega 9 á íslenskum skala. Þeim fannst vanta að hann seldi þeim betur hugmyndina og væri meiri science í skýrslunni. En sem verkfræðileg vinna og skýrsla væri þetta fullkomið og hann mætti vera stoltur!! Ég tók þetta auðvitað beint til mín og er ÜBER stolt af drengnum:)

Okkur var svo boðið í mat í gærkveldi, ekki nóg með það heldur mættu gestgjafarnir til okkar með matinn þ.a. við gætum bara komið börnunum í háttinn hér heima. Var algjör snilld, fengum þennan líka snilldarmat (sem ég btw veit ekki hvað heitir;)) og ég ætla þokkalega að fá uppskriftina og malla þetta sjálf einn daginn.

Í nótt voru börnin alveg einstaklega dugleg að sofa, þau vöknuðu bæði einu sinni um hálf 4 og fengu þá að drekka. Ásdís vaknaði svo rúmlega 7, en þá voru mamma og pabbi heldur þreytt því þau höfðu drattast aðeins of seint inní rúm í gær, þ.a. henni var skellt á milli og við sváfum áfram þar til Birkir vaknaði um ÁTTA. Hann hefur held ég aldrei sofið jafn lengi á morgnana.

Well, heyrist e-ð tíst úr babymonitornum, best að athuga hvað það er...

Skrifaði eyrunl klukkan 10:09 FH | 9 Ummæli

september 18, 2005

Nafnlausa bloggið...

Svona eins og Nafnlausa búðin í Hafnarfirði sem einu sinni var til:-)

Þó það væri búið að skora á mig að skrifa aftur fyrir síðasta föstudag, þá hafðist það nú ekki.

Vorum með elskulega tengdaforeldra mína í heimsókn í viku og ég held að allir hafi notið góðs af þeirri heimsókn:-) Þau fengu að kynnast barnabörnunum aðeins betur og við höfðum félagsskapinn og svo auðvitað hjálpina frá þeim. Var voða ágætt að geta t.d. lánað þeim börnin snemma á morgnana þegar þau voru búin að fá sopann sinn, þau pössuðu líka nokkrum sinnum á meðan við skruppum í burtu og svo var auðvitað veislumatur á borðum alla daga:-) Kveðjustundir eru auðvitað alltaf erfiðar, en núna er farið að styttast aðeins meira í Íslandsferðina okkar, ekki nema 19 dagar í það núna!! Á þessum 19 dögum, á nú samt ýmislegt eftir að gerast. Jobbi mun verja verkefnið sitt og fá þá formlega titilinn verkfræðingur á þriðjudaginn. Eigum eftir að fá tvær stuttar heimsóknir og svo auðvitað lærdómurinn inná milli brjóstagjafar. Tíminn líður svo hratt orðið að ég veit hreinlega ekki hvar þetta endar!!

Á föstudaginn fórum við Jobbi niðrí bæ að skoða kerru og hugsanlega kaupa eitt eintak líka. Þegar við vorum komin niðrí miðbæ Kaupmannahafnar og vorum þar í frekar þungri umferð þegar e-r óhljóð fara að heyrast úr bílnum. E-ð virtist vera að slást upp undir bílinn þ.a. hann nötraði allur og þvílíku lætin!! Við ákváðum að snúa bara strax við, stoppuðum í næsta lausa bílastæði og komumst að því að þetta var pústið sem er farið að losna og slæst uppundir í lausa-/hægagangi. Bíldruslan á nú tíma í viðgerð á miðvikudaginn út af bölvaða ABS ljósinu sem logar stanslaust (fáum ekki skoðun fyrr en það er farið) og ætli þessu verði ekki bara kippt í liðinn í leiðinni.

Í nótt stóð ég vaktina svo til alein (Jobbi lét Birki ropa þegar þau voru bæði búin að drekka í nótt) og var alveg frekar þreytt þegar þau vöknuðu í morgun. Þegar þau voru svo komin út í vagn, skreið ég aftur upp í rúm og svaf til HÁLF TÓLF!! Það var ekkert smá notalegt. Var síðan ekki komin úr náttfötunum þegar Vignir og Guðbjörg komu í heimsókn, úps! Núna eru augnlokin orðin frekar mikið þung, þ.a. ég er að spá í að skríða bara upp í bólið.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:55 EH | 3 Ummæli

september 11, 2005

Jújú við erum ennþá á lífi:-)

Önnur eins bloggleti hefur ekki sést LENGI, líklegast síðan bara ég var ólétt og óglatt og hafði ekkert til að blogga um fyrir utan klósettknús sem ég vildi ekkert hafa of hátt um;) Núna vantar ekkert fréttirnar, gæti auðvitað endalaust skrifað um hvað börnin eru æðisleg, en núna vantar hins vegar bara aðeins fleiri klukkutíma í sólarhringinn. Jobbi er búinn að skila verkefninu og ég búin að vera að vinna í mínu síðustu vikuna. Er alveg hörku vinna að rifja upp hvað ég var búin að gera og hvað átti að koma næst eftir hálfs árs pásu.

Pabbi er síðan kominn aftur út og skildi restina af familíunni eftir heima á Fróni. Hann verður hérna alveg þangað til við komum heim sem er nú farið að styttast í, má official telja niður og það eru núna 26 dagar í heimferð:) Hann er búinn að koma einu sinni í mat til okkar og svo ætla ég að athuga hvort hann vilji ekki koma í mat í kvöld líka og borða með okkur og foreldrum Jobba. Þau mættu í gærkveldi og ætla að dást að Ásdísi og Birki næstu vikuna.

Í gær voru við svaðalega dugleg að taka til í litla herberginu svo tengdó kæmust nú fyrir þar inni (taka til aðferðin undanfarnar vikur var s.s. mest fólgin í því að henda draslinu inní litla herbergið!!). Svo var ég líka frekar mikið dugleg og þreif baðherbergið, eða hélt ég hefði klárað það þegar Jobbi hringir í mig á leiðinni út á flugvöll. Þá spurði hann mig hvern andskotinn ég hefði látið á klósettsetuna!?!? Hann væri heppinn að vera ekki brenndur aftan á lærunum og ég væri vinsamlegast beðin um að þrífa það! Já úps, ég hafði víst sprautað LimeLite (svakalega gott þrifdót sem nær sko allri drullu af eins og skot) og gleymt að þrífa það af:/ Síðast þegar ég þreif klósettið, var ég næstum því búin að gleyma þessu líka og ætlaði svo þokkalega ekki að gleyma þessu núna. Svo voru börnin e-ð óróleg og ég varð að fara að gefa þeim og þá bara úps, búin að STEINGLEYMA!! Ég hló svo mikið þegar Jobbi sagði mér þetta í símanum í gær að ég engdist um (eins mikið og ég gat með Ásdísi á bringunni) og tárin láku. Ætlaði ekki einu sinni að geta sagt Guðbjörgu og Vigni af hverju ég hló svona mikið, en þau höfðu bankað uppá rétt áður.

Nýjar myndir fara ALVEG að koma, verðum að fara að drífa í þessu...

Skrifaði eyrunl klukkan 10:00 FH | 3 Ummæli