september 11, 2005
Jújú við erum ennþá á lífi:-)
Önnur eins bloggleti hefur ekki sést LENGI, líklegast síðan bara ég var ólétt og óglatt og hafði ekkert til að blogga um fyrir utan klósettknús sem ég vildi ekkert hafa of hátt um;) Núna vantar ekkert fréttirnar, gæti auðvitað endalaust skrifað um hvað börnin eru æðisleg, en núna vantar hins vegar bara aðeins fleiri klukkutíma í sólarhringinn. Jobbi er búinn að skila verkefninu og ég búin að vera að vinna í mínu síðustu vikuna. Er alveg hörku vinna að rifja upp hvað ég var búin að gera og hvað átti að koma næst eftir hálfs árs pásu.
Pabbi er síðan kominn aftur út og skildi restina af familíunni eftir heima á Fróni. Hann verður hérna alveg þangað til við komum heim sem er nú farið að styttast í, má official telja niður og það eru núna 26 dagar í heimferð:) Hann er búinn að koma einu sinni í mat til okkar og svo ætla ég að athuga hvort hann vilji ekki koma í mat í kvöld líka og borða með okkur og foreldrum Jobba. Þau mættu í gærkveldi og ætla að dást að Ásdísi og Birki næstu vikuna.
Í gær voru við svaðalega dugleg að taka til í litla herberginu svo tengdó kæmust nú fyrir þar inni (taka til aðferðin undanfarnar vikur var s.s. mest fólgin í því að henda draslinu inní litla herbergið!!). Svo var ég líka frekar mikið dugleg og þreif baðherbergið, eða hélt ég hefði klárað það þegar Jobbi hringir í mig á leiðinni út á flugvöll. Þá spurði hann mig hvern andskotinn ég hefði látið á klósettsetuna!?!? Hann væri heppinn að vera ekki brenndur aftan á lærunum og ég væri vinsamlegast beðin um að þrífa það! Já úps, ég hafði víst sprautað LimeLite (svakalega gott þrifdót sem nær sko allri drullu af eins og skot) og gleymt að þrífa það af:/ Síðast þegar ég þreif klósettið, var ég næstum því búin að gleyma þessu líka og ætlaði svo þokkalega ekki að gleyma þessu núna. Svo voru börnin e-ð óróleg og ég varð að fara að gefa þeim og þá bara úps, búin að STEINGLEYMA!! Ég hló svo mikið þegar Jobbi sagði mér þetta í símanum í gær að ég engdist um (eins mikið og ég gat með Ásdísi á bringunni) og tárin láku. Ætlaði ekki einu sinni að geta sagt Guðbjörgu og Vigni af hverju ég hló svona mikið, en þau höfðu bankað uppá rétt áður.
Nýjar myndir fara ALVEG að koma, verðum að fara að drífa í þessu...
Skrifaði eyrunl þann 11.09.05 10:00Ji hvað ég var glöð að það var komið nýtt blogg. Og ég hitti þig nú frekar oft þannig að ég get rétt ímyndað mér gleði þeirra á Íslandi.
ég skora á þig að þú verðir búin að blogga aftur fyrir næsta föstudag og að það verði komnar myndir fyrir þann tíma líka, hehe.
Skrifaði: Guðbjörg þann 11.09.05 15:22Guð hvað ég hefði vilja sjá svipinn á þér þegar Jobbi sagði þetta hahahahaha :D
Alltaf gott að hafa vel þrifið klósett ;)
Hæhæ. Var að skrá mig í myndaalbúmið- sá linkinn á síðuna ykkar hjá Lísu að norðan. Innilega til hamingju með krílin tvö, dugnaðurinn að eiga tvö í einu ;) Bestu kveðjur Hugrún
Skrifaði: Hugrún Hauks þann 18.09.05 01:44