september 21, 2005
Verkfræðingur á heimilinu
Hann er svo duglegur, hann er svo klár, hann er bara meiriháttar:) Ég er alveg ÓTRÚLEGA stolt af honum Jobba, en hann varði mastersverkefnið sitt í gær og því orðinn master í verkfræði sem gefur manni rétt til að kalla sig VERKFRÆÐING!! (B.Sc. í verkfræði gefur manni ekki þau réttindi, been there, done that;)) Börnin voru látin í pössun í gær svo ég gæti nú farið og hlustað á drenginn, honum gekk alveg ljómandi vel og fékk 10 fyrir verkefnið. Skalinn er jú aðeins hærri en heima en það er svona tæplega 9 á íslenskum skala. Þeim fannst vanta að hann seldi þeim betur hugmyndina og væri meiri science í skýrslunni. En sem verkfræðileg vinna og skýrsla væri þetta fullkomið og hann mætti vera stoltur!! Ég tók þetta auðvitað beint til mín og er ÜBER stolt af drengnum:)
Okkur var svo boðið í mat í gærkveldi, ekki nóg með það heldur mættu gestgjafarnir til okkar með matinn þ.a. við gætum bara komið börnunum í háttinn hér heima. Var algjör snilld, fengum þennan líka snilldarmat (sem ég btw veit ekki hvað heitir;)) og ég ætla þokkalega að fá uppskriftina og malla þetta sjálf einn daginn.
Í nótt voru börnin alveg einstaklega dugleg að sofa, þau vöknuðu bæði einu sinni um hálf 4 og fengu þá að drekka. Ásdís vaknaði svo rúmlega 7, en þá voru mamma og pabbi heldur þreytt því þau höfðu drattast aðeins of seint inní rúm í gær, þ.a. henni var skellt á milli og við sváfum áfram þar til Birkir vaknaði um ÁTTA. Hann hefur held ég aldrei sofið jafn lengi á morgnana.
Well, heyrist e-ð tíst úr babymonitornum, best að athuga hvað það er...
Skrifaði eyrunl þann 21.09.05 10:09VERKFRÆÐINGUR, innilega til hamingju með titilinn og Eyrún til hamingju með Jobba.
Skrifaði: Ingunn þann 21.09.05 10:10Til hamingju með gæjann Eyrún og til hamingju með titilinn Jobbi!!!
Kveðja frá okkur úr
Eyrarholtinu
Til hamingju Jobbi!!
Kossar frá okkur öllum!
Þú ert ógó klár;o)
Til hamingju með að vera búinn með þetta Jobbi, þá er komið að Eyrúnu að vera dugleg eins og þú ;) Verður vonandi fagnað þegar þið komið til landsins :)
Skrifaði: Margrét þann 21.09.05 14:54Til hamingju Jobbi ekkert smá duglegur ;) Eyrún, þú mátt alveg vera stolt af karlinum :)
Skrifaði: Matthildur þann 21.09.05 15:52Já Matthildur, mér finnst ég líka alveg mega vera stolt af kagglinum:-) Hann er svo svaðalega dúlegur;)
Skrifaði: Eyrún þann 21.09.05 16:38Innilega til hamingju Jobbi ! Aldeilis glæsilegur árangur.
Til hamingju með hann Eyrún :)
Hlökkum til að sjá ykkur svo í október ;)
Kveðja af Álfaskeiðinu :)
Skrifaði: Millý, Kristján og Emelía Ósk þann 24.09.05 18:19Hæ elskurnar og INNNNILEGA TIL LUKKU með verkfræðinginn á heimilinu;) Frábært að þetta gékk svona rosa vel... alveg snilld:) Hafið það öll sem allra allra best.. kiss og knúz HB & IP
Skrifaði: Helga Björt þann 25.09.05 10:52Thíhí klukkaði ykkur þannig að þið þurfið að fara að blogga :)
Skrifaði: Margrét besta frænka þann 27.09.05 22:05