október 26, 2005
Komin heim til Danmerkur
Búin að vera heima á Íslandi og erum núna komin heim til Danmerkur. Við erum bara alltaf heima;) Höfðum það auðvitað alveg ótrúlega gott á Íslandi, var dekrað þvílíkt við okkur Jobba og að sjálfsögðu börnin. Hefðum viljað hitta flesta mikið meira, en dagskráin undir lokin var orðin heldur stíf þ.a. tími gafst bara ekki til. Hittum þó held ég flesta sem við ætluðum okkur allavega einu sinni. Börnin tóku þessu ferðalagi ótrúlega vel, héldu sinni rútínu og tók ekki nema rúman sólarhring að snúa þeim yfir á íslenskan tíma og býst ég við því sama núna. Við sváfum öll alveg rosalega vel í nótt í okkar rúmum og vöknuðum næstum því útsofin í morgun:) Öll flugin gengu vonum framar, Birkir tók þó smá grenjukast í gær en varla til að tala um, tók fljótt af. Við mæðgurnar sváfum í gær báðar í fluginu, þ.a. ég kvarta ekki:) Erum búin að vera að þvo þvott og ganga frá í morgun, fáum svo heimsókn frá hjúkkunni á eftir og þá verða Ásdís og Birkir loksins vigtuð og mæld:)
Að lokum þakka ég bara fyrir síðast, þið sem við hittum, takk fyrir okkur og þúsund þakkir fyrir börnin. Fórum með "aðeins" meiri farangur til baka en út, en merkilegt nokk þá vorum við ennþá undir farangursheimildinni og bara örlítið sem við þurftum að skilja eftir. 10kg farangursheimild fyrir ungabörn hjá Icelandair er algjör snilld:)
október 02, 2005
Nýjar myndir og það STYTTIST!!
Byrja á myndunum... var að láta örfáar myndir, ekki skamma mig þó það hafi ekki komið fleiri, við erum bara ekki búin að vera duglegri síðustu vikuna að taka myndir:/
Annars er nú bara fullt að frétta. Í fyrsta lagi er ég búin að fara og læra bæði laugardags- og sunnudagsmorgun:) Geri aðrir betur!;) Í gærkveldi litaði ég hárið á Guðbjörgu!! Í hádeginu bauð Jobbi (ég mætti bara;)) upp á grjónagraut og Fjóla og Ingólfur mættu í heimsókn. Pabbi kom svo í kvöldmat. Ég kynnti lokaverkefnið mitt á föstudaginn og við fórum í bæinn á fimmtudagseftirmiðdaginn:)
Annars er auðvitað stóra fréttin, að í dag eru bara 5 dagar þar til við mætum á klakann!!! Ég er alveg mega mikið spennt, eins og lesendur hafa kannski orðið vitni að;) Ekki minnkaði spenningurinn þegar ég heyrði í Guðrúnu tvíburamömmu í gær og þau voru á leiðinni til Íslands í gærkveldi með litlu strákana sína, Þorstein og Hallgrím sem eru akkúrat 5 vikum yngri en Ásdís og Birkir. Er annars komin með "dagskrá" fyrir alla daga fram að ferðinni. Á daginn er auðvitað lærdómur, en á morgun er rækkemøde um kvöldið, á þriðjudagskvöldið kemur pabbi líklegast í mat, á miðvikudaginn kemur sundhedsplejersken og kíkir á börnin, á fimmtudaginn verður pakkað og á föstudaginn förum við:) Spurning hvort við verðum bara komin til Íslands áður en ég næ að blogga e-ð aftur;) Er víst ekki alveg sú duglegasta, allavega ekki jafn dugleg og Margrét systir hefur verið undanfarið, en samt duglegri en Helga Björt;)