nóvember 29, 2005

Klukk og kítl...

Ef það er ekki eitt, þá er það bara e-ð annað;) Það var búið að klukka mig hérna e-n tímann, síðan var búið að kítla mig og nú er búið að klukka bæði Birki og Ásdísi. Ekki ennþá viss hvort ég nenni þessu kítli sem kom frá Margréti systur. Ætli ég hripi ekki samt niður 5 staðreyndir um börnin okkar.

Birkir
1. Ég skoða hendurnar mínar daglega vel og vandlega, þær eru alveg svakalega spennandi.
2. Ég er algjör kúrukall, skiptir ekki endilega máli hjá hverjum ég er.
3. Ég er matargat, finnst voða gott að fá að borða, bæði úr brjóstinu og graut.
4. Ég reyni alltaf að komast í blöðin og bækurnar sem mamma og pabbi skoða þegar ég er hjá þeim, er nefnilega að reyna að læra að lesa;)
5. Ég er sætasti strákurinn í öllum heiminum, það finnst allavega mömmu og pabba:)

Ásdís
1. Ég er forvitin eins og mamma, ég þarf að fylgjast með öllu sem gerist í kringum okkur.
2. Ég er farin að gera greinamun á foreldrum mínum og öðrum, á það til að láta í mér heyra ef e-r abbast upp á mig sem ég er ekki örugg með.
3. Ég vakna aldrei með sæng ofan á mér á nóttunni, mamma og pabbi eru búin að reyna ýmis trikk, en ekki ennþá fundið það rétta.
4. Ég þarf mikla athygli, ef ég er farin að kvarta á gólfinu er oft nóg að e-r horfi á mig, þá er brosið yfirleitt komið fram á varirnar:)
5. Ég er sætasta stelpan í öllum heiminum, það segja allavega mamma og pabbi:)

Sjáum svo til hvort að ég nenni þessu kítli e-n tímann þegar ég hef ekkert að gera... spurning hvenær það verður;) Ætla núna að spjalla aðeins meira við börnin mín sem eru að leika sér á gólfinu.

Skrifaði eyrunl klukkan 12:33 EH | 0 Ummæli

Til hamingju með afmælið elsku pabbi, tengdapabbi og afi!!

29. nóvember 1955, eða fyrir nákvæmlega fimmtíu árum fæddist lítill strákur. Í dag er hann ekki svo lengur lítill strákur, heldur fimmtugur maður, 6 barna faðir og 2 barna afi. Heyrði aðeins í honum í morgun, en þá var fullt hús af gestum sem hafði ruðst inn rétt áður en vekjaraklukkan átti að sjá um að vekja þau. Hefði þokkalega verið til í að vera heima á Íslandi og geta mætt í morgun, en eins og staðan er í dag þá erum við að fara að koma eftir 2 og hálfa viku, þ.a. það verður að duga.

Ég veit alveg að ég hef ekkert bloggað HEILLENGI en það á sér sínar skýringar. Jobbi var boðaður í atvinnuviðtal á Íslandi í síðustu viku þ.a. ég sá fyrir mér að vera ein heima með börnin. Hlakkaði í sjálfu sér ekkert óskaplega mikið til þess þ.a. ég blikkaði tengdamömmu til að koma hingað til okkar. Hún var hérna í 5 daga og dekraði við litlu ömmubörnin hennar. Var alveg æðislegt að hafa hana hérna og ég vildi helst bara að hún yrði áfram:) Við fórum m.a. í bæinn, bæði með og án barna og í jólatívolíið á laugardaginn þegar Jobbi kom frá Íslandi, mæli ekki með jólatívolíi á laugardegi og vera með tvíburakerru!!! Maður komst ekkert áfram!!

Annars er litli stubburinn okkar kvefaður núna, búinn að eiga ósköp bágt síðan í fyrrinótt. Hann sefur því bara inni og Ásdís er ein úti í vagni. Hefði ekki átt að skrifa að hann sofi, því hann var akkúrat að vakna í þessu, best að kíkja á hann.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:19 FH | 0 Ummæli

nóvember 12, 2005

Ótrúlegur myndadugnaður

Ekki nema 4 dagar síðan komu fullt fullt af myndum, en núna er samt komið ennþá meira. Bætti við nokkrum myndum í nóvember flokkinn. Þetta er sko alveg lygilegur dugnaður, svo ekki sé meira sagt:)

Skrifaði eyrunl klukkan 06:52 EH | 5 Ummæli

nóvember 11, 2005

Fyrsti grauturinn hjá stóru börnunum okkar

Þar sem nætursvefninn hafði versnað til muna, sérstaklega hjá Birki, þá var lagt í að gefa þeim graut í fyrsta skipti. Ætlaði að kaupa handa þeim svakalega fínan graut frá Hipp, svona økologiskan, en ég fann hvergi rétta grautinn (annað hvort bara fyrir eldri en 6 mánaða eða með ávaxtabragði) þ.a. á endanum keypti ég rísgraut frá Nestlé. Sá sami og ég sagði Jobba að kaupa ekki þegar hann fór í fyrstu búðina og fann ekki umbeðinn Hipp graut. Bæði smjöttuðu á grautnum og frussuðu honum ekki út úr sér, en Birkir var þó svona aðeins hrifnari. Ásdís rétt smakkaði framan af skeiðinni lengi vel en var farin að opna munninn undir lokin á meðan Birkir opnaði svo til um leið. Verður gaman að sjá hvernig þau bregðast við á morgun, hvort þeim líki grauturinn jafnvel, betur eða fussi og sveii. Börnin okkar eru orðin STÓR! Líka hlussustór við hliðina á Kjartani sem samt er svo stór miðað við aldur. Minni munur á Ásdísi og Kjartani, heldur en Ásdísi og Birki og samt er Kjartan rúmum 4 og hálfum mánuði yngri en þau systkinin.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:00 EH | 0 Ummæli

nóvember 09, 2005

Kláraði að setja inn myndir

Restin af myndunum er komin í myndaalbúmið.

Annars er ósköp lítið að frétta, við grilluðum áðan pizzu í kvöldmat og fórum út með tjaldluktina okkar til að sjá e-ð. Danirnir halda örugglega að við séum biluð, tja... eða bara Íslendingar;) Danir grilla nefnilega helst ekki nema það sé hægt að borða úti. Var eiginlega ekki hægt að borða úti í kvöld, rétt umm 5°C og kolniðamyrkur. Farin í háttinn og vona að börnin sofi aðeins betur en síðustu nótt þegar þau vöktu okkur frekar mikið oft og endanlega klukkan 6. Vorum þá ennþá þreytt þó við hefðum verið komin upp í rúm hálf 9 í gærkveldi!!

Skrifaði eyrunl klukkan 10:22 EH | 1 Ummæli

Myndir byrjaðar að koma aftur

Er búin að setja inn smá af myndunum, ennþá meira á leiðinni fljótlega (eigum "bara" eftir að skrifa lýsingar við myndirnar).

Skrifaði eyrunl klukkan 08:09 FH

nóvember 06, 2005

Andleysi

Vááá, þegar það líður svona langt á milli blogga þá veit ég bara ekkert hvað ég á að skrifa. Allavega, það gekk ekki alveg jafn vel að koma með börnin til baka og var að fara með þau til Íslands. Dagskráin var full stíf síðustu vikuna og er Ásdís fyrst að jafna sig núna. Hún var svo tens að ég átti í mestu basli með að fá hana til að drekka og þá fór svefnrútinan á daginn líka í rugl. Birkir var líka aðeins svona en mun minna og hann var líka miklu fyrr að jafna sig alveg. Hjúkkan kom og kíkti á börnin daginn eftir að við komum frá Íslandi, Ásdís var þá 6150gr og Birkir 8300gr. Þau auðvitað alveg fyrirmyndarbörn, farin að grípa í leikföng, fylgja eftir með augunum alveg í 180° o.s.frv. Ekki hægt að kvarta yfir neinu. Svo fórum við til læknis á föstudaginn í skoðun og bólusetningu. M.v. hvað Ásdís var búin að vera frekar erfið vikuna á undan þá giskaði ég á að hún myndi grenja þokkalega mikið við sprautuna (þau grenjuðu varla í 3ja mánaða sprautunni). Það var ekki einu sinni komið að sprautunni, hún var komin úr fötunum og það var verið að mæla höfuðummálið þá byrjaði hún að grenja. Öskraði næstum úr sér lungun við það að hún var lengdarmæld og ekki skánaði það þegar hún var látin á vigtina (var samt búin að hugga hana í millitíðinni). Eftir þetta fengum við góða pásu til að láta hana jafna sig áður en þau yrðu sprautuð. Birkir fékk fyrst sprautu og stóð sig eins og hetja, kvartaði varla. Ásdís öskraði aftur nánast úr sér lungun þegar hún fékk sprautuna og var nánast óstöðvandi. Smá mjólkursopi lagaði nú samt meiddið;) Þarna mældist Birkir 8500gr og Ásdís 6100gr (reyndar á orginu þ.a. það var á spídígonzales hraða sem hún var vigtuð og spurning hve nákvæmt það var) en þarf ég því að fá hjúkkuna til að koma heim eftir ca viku og ath hvort hún sé ekki að þyngjast alveg. Eftir 3ja mánaða sprautuna fengu þau engan hita hvorug en núna bæði. Samt er þetta samskonar sprauta, fannst það nokkuð merkilegt. Á föstudagskvöldið var Ásdís með 38,5°C og átti óskaplega bágt. Morguninn eftir voru þau bæði með 37,5°C en um kvöldið alveg orðin hitalaus. Svefnrútínan sem þau voru loksins komin í, undir lok vikunnar fór því fyrir bí í gær en það var öllu skárra í dag og vonandi gott á morgun, því þá á að reyna að byrja að læra aftur en ég hef ekkert farið síðan ég kom frá Íslandi því það hefur tekið meira en nóg á að berjast við að fá þau til að drekka og meira og minna á sitthvorum tímunum þ.a. suma dagana var ég nánast stanslaust með annað hvort þeirra á brjósti.

Loksins þegar allt er að verða komið í samt lag eftir Íslandsferðina þá erum við búin að kaupa okkur ferð aftur til Íslands. Er nú ekkert sú allra spenntasta núna við að fara aftur því það tók á að koma aftur heim. Verð samt örugglega (vonandi) búin að gleyma því þegar kemur að ferðinni;) Við verðum alveg nokkuð lengi (næstum alltof lengi;)) á Íslandi um jólin eða frá 15. desember til 9. janúar.

Í gær var ár síðan julefrokost var haldið hérna hjá rekkanum okkar en þá mætti ég ekki sökum "veikinda" eins og ég bloggaði um þá. Þá áttum við að gera Risalamande með nágranna okkar og við stelpurnar gerðum það saman hérna heima hjá mér. Ég þeytti fulla hrærivélaskál af rjóma og tókst ekki betur til en að ég þurfti að hendast inn á klósett og æla eins og múkki. Var svo "gáfuð" að slökkva á hrærivélinni áður en ég hentist af stað en Julie var svo góð að hún setti hana aftur af stað þegar ég var farin að æla;) Í þessu sambandi þá var einmitt líka ár í fyrradag síðan við fórum í sónarinn sem upplýsti okkur um að við ættum von á tveimur börnum en ekki "bara" einu. Guðbjörg sagði eftir að hún frétti að við hefðum fengið að vita það daginn fyrir julefrokost: "Þess vegna var Jobbi svona fölur og hvítur!";) Það tók alveg tíma fyrir okkur að átta okkur á þessum fréttum, enda er þetta ekki e-ð sem maður planar fyrirfram.

Eitthvað hefur verið að reka á eftir okkur með myndir en síðan við komum frá Íslandi þá hefur bara verið nóg að gera að hugsa um börnin og okkur sjálf. Það fer vonandi að róast og þá gefst kannski tími til að kíkja á þetta og skella inn myndum. Er annars ein heima núna, því Jobbi yfirgaf okkur og fór á netgrúppufund, við lifum það nú alveg af, börnin eru sofnuð og ég ætla að fara og klára að horfa á O.C. þáttinn sem ég var byrjuð á áðan. Líka orðið ágætis blogg núna, spurning hvenær ég láti heyra í mér næst, það er nú samt alltaf planið að fara að verða aftur duglegri;)

Síðast en ekki síst, þá er Helga Björt árinu eldri í dag og því farið að styttast í þrítugsafmælið;) Til hamingju með afmælið svísa!

Skrifaði eyrunl klukkan 09:10 EH | 2 Ummæli