nóvember 29, 2005

Klukk og kítl...

Ef það er ekki eitt, þá er það bara e-ð annað;) Það var búið að klukka mig hérna e-n tímann, síðan var búið að kítla mig og nú er búið að klukka bæði Birki og Ásdísi. Ekki ennþá viss hvort ég nenni þessu kítli sem kom frá Margréti systur. Ætli ég hripi ekki samt niður 5 staðreyndir um börnin okkar.

Birkir
1. Ég skoða hendurnar mínar daglega vel og vandlega, þær eru alveg svakalega spennandi.
2. Ég er algjör kúrukall, skiptir ekki endilega máli hjá hverjum ég er.
3. Ég er matargat, finnst voða gott að fá að borða, bæði úr brjóstinu og graut.
4. Ég reyni alltaf að komast í blöðin og bækurnar sem mamma og pabbi skoða þegar ég er hjá þeim, er nefnilega að reyna að læra að lesa;)
5. Ég er sætasti strákurinn í öllum heiminum, það finnst allavega mömmu og pabba:)

Ásdís
1. Ég er forvitin eins og mamma, ég þarf að fylgjast með öllu sem gerist í kringum okkur.
2. Ég er farin að gera greinamun á foreldrum mínum og öðrum, á það til að láta í mér heyra ef e-r abbast upp á mig sem ég er ekki örugg með.
3. Ég vakna aldrei með sæng ofan á mér á nóttunni, mamma og pabbi eru búin að reyna ýmis trikk, en ekki ennþá fundið það rétta.
4. Ég þarf mikla athygli, ef ég er farin að kvarta á gólfinu er oft nóg að e-r horfi á mig, þá er brosið yfirleitt komið fram á varirnar:)
5. Ég er sætasta stelpan í öllum heiminum, það segja allavega mamma og pabbi:)

Sjáum svo til hvort að ég nenni þessu kítli e-n tímann þegar ég hef ekkert að gera... spurning hvenær það verður;) Ætla núna að spjalla aðeins meira við börnin mín sem eru að leika sér á gólfinu.

Skrifaði eyrunl þann 29.11.05 12:33
Ummæli
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?