desember 15, 2005

Þetta hafðist, og við komin á klakann

Eftir heldur mikið stress í gærkveldi og í morgun, þá hafðist að koma okkur út úr húsi og ná strætó sem var planaður í morgun á leið niður á lestarstöð og þaðan niður á flugvöll. Ákváðum að vera alveg vel tímanlega og mæta alveg 2 tímum fyrir brottför. Eins gott að við mættum ekki mínútunni seinna því innritunin tók ár og öld, konan hafði greinilega aldrei innritað ungabarn áður og hvað þá 2 í einu, ætlaði að rukka okkur um yfirvigt fyrir 4 kg (s.s. 1kg á mann) en þar sem við vorum með það lítinn handfarangur þá máttum við líka taka 4 kg úr töskunni og taka í handfarangur!! Hvaða máli skipti það þau hvort þessi 4kg færu með okkur í handfarangur eða niður??? Bara til óþæginda fyrir okkur. En að sjálfsögðu tókum við meiri handfarangur, því ekki ætlaði ég að borga 400dkr!! ónei!
Þegar við komum inn í fríhöfnina, fórum við beint að gefa þeim að borða og skipta á þeim. Vorum ekki búin að skipta á þeim þegar kallað var upp í hátalarakerfinu að síðustu farþegar með Icelandair til Keflavík ættu að fara út að hliði samstundis. Stressið undanfarið minnkaði ekki við þetta og við (með mig í fararbroddi) hentumst í gegnum hliðið. Þar var svo auðvitað biðröð inní rananum og slatti af fólki sem kom á eftir okkur.

Flugferðin gekk síðan bara alveg þokkalega. Þau sofnuðu bæði fyrir flugtak og svaf Birkir alveg í einn og hálfan tíma en Ásdís vaknaði fljótlega. Ásdís kvartaði svo svolítið frá miðju fluginu, vildi ekki drekka hjá mömmu sinni, vildi bara vatnið úr glasinu. Þambaði það og endaði svo á að sofna klukkutíma fyrir lendingu. Þau eru svo búin að leika á alls oddi hérna í dag, sofnuðu svo bara á nokkuð venjulegum tíma, þ.a. ég lifi í voninni að þau vakni á íslenskum tíma en ekki dönskum. Þó það muni bara 1 klst, þá væri ég alveg til í auka klukkutíma svefn;) Sem minnir mig bara á það hvað ég er þreytt, farin í háttinn:)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:15 EH | 14 Ummæli

desember 04, 2005

Once you pop, you can't stop

Eða svona næstum því, er ekki bara best að blogga bara aðeins meira úr því að ég er byrjuð. Í fyrradag urðu börnin okkar HÁLFSÁRS!! Þau eru líka ekki lengur nein smábörn, neinei, þau eru eiginlega meira að verða KRAKKAR! Sitja í trip trap stólunum sínum og borða graut sem er stundum blandaður með kartöflu. Mér sem finnst svo stutt síðan að við lágum inná spítalanum með þau pínulítil í vöggu á milli okkar. En mér finnst nú samt óralangt síðan ég var ólétt!! Man bara varla neitt eftir því tímabili, er meira að segja löngu farin að sakna þess að vera ólétt og núna nýlega gæti ég meira að segja alveg hugsað mér að ganga í gegnum aðra tvíburameðgöngu! Er ég biluð? Ég var að verða geðveik á vera ólétt og ætlaði sko aldrei að gera þetta aftur og ætlaði því þá síður að sakna þess að vera ólétt!!

Annars var julefrokost hjá rekkanum okkar í gærkveldi. Við fórum með Birki og Ásdísi uppeftir í vagninum, þau sofnuðu á leiðinni og sváfu á meðan við borðuðum forréttina. Vöknuðu passlega fyrir aðalréttina og fengu að vera í partíinu. Þau voru nú ekki þau allra hressustu að hitta 20 manns sem þau nánast aldrei höfðu séð. Titruðu öll þegar við komum með þau inn í salinn. Það lagaðist nú reyndar svona rétt áður en þau sofnuðu svo í vagninum sínum aftur. Þar sem Ásdís tók svo upp á því að vakna aftur og vilja ekki sofna aftur í vagninum þá vorum við þau fyrstu til að fara heim og vorum komin heim rúmlega 10. Var líka ágætt að fara bara snemma að sofa, því það var ekkert sofið út á okkar heimili í morgun.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:43 FH | 1 Ummæli

Kítlið sem ég nennti ekki um daginn...

Jújú, ég skal nenna þessu. Búin að vera með þetta kítl í drafti í marga daga, en loksins hafðist það. Börnin eru að taka morgunlúrinn sinn, ég nýbúin að setja inn nýjar myndir og nennti ekki að klæði mig þ.a. ég kláraði þetta bara:)

Sjö hlutir sem ég ætla ad gera áður en ég dey:
Gifta mig (verð að vona að þetta atriði komist á Jobba lista líka...)
Ala upp börnin okkar Jobba þ.a. vel fari
Eignast allavega eitt barn í viðbót
Flytja aftur til Íslands
Eignast mína (okkar) eigin íbúð
Ferðast meira
Finna upp peningatré


Sjö hlutir sem ég get:
Gefið tveimur börnum brjóst í einu
Leyst Sudoku þraut á mettíma
Sofið næstum hvar sem er
Snert nefið með tungunni
Leyst diffurjöfnur, diffrað og heildað
Verið bæði MJÖG lengi og örstutt í sturtu
Skipt um dekk á bíl

Sjö hlutir sem ég get ekki:
Komið við notað tyggjó úr öðrum, jakk!
Drukkuð Hot'n'Sweet, þvílíkur viðbjóður!
Drukkuð bjór eða kaffi
Farið í spígat eða splitt
Tekið til og þrifið um leið og þess þarf
Flogið flugvél eins og Margrét systir
Flogið þyrlu eins og Jón mágur


Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
Rass
Læri
Hendur
Munnur
Brjóstkassi
Augu
*bíb*

Sjö þekktir sem heilla mig:
Jobbi (hann er víst þekktur, allavega innan kollegíssins, þar væri varla net ef ekki væri fyrir hann;))

Sjö setningar/orð sem ég segi oft:
Ég er alltaf gáfuð (mikið notað þessa dagana)
Ómæ
Ha
Hvað eigum við að hafa í matinn í kvöld?
Jobbi, nennirðu að gefa mér djús?
Ój, hvað það er mikið drasl hérna
Ój, hvað það er skítugt hérna

Sjö hlutir sem ég sé núna:
Tölvuskjár
Videotökuvél
Fúsi froskur
Doktorsskýrsla um spennustöðugleikahermireikningum með nákvæmum módelum, byggð á mælingum
PSS/E hardware lykill
Webcam
Hvítur lítill hárbusti sem ég veit ekki hver á

Skrifaði eyrunl klukkan 09:26 FH | 0 Ummæli