janúar 27, 2006

Allir að vera duglegir:)

Þetta er alveg svakalega skemmtilegt, megið ENDILEGA svara þessu í kommentunum:)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Finnst þér ég áhugaverður einstaklingur?
5. Myndirðu þola að hlusta á mig tala í einn sólarhring samfleytt?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkirðu mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Munt þú setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Skrifaði eyrunl klukkan 03:17 EH | 4 Ummæli

janúar 24, 2006

Nýjar myndir

Loksins, loksins munu víst sumir segja, því þar er jú liðinn rúmur mánuður síðan við létum síðast inn myndir. Reyndar ekki jafn langt síðan við vorum á Íslandi þ.a. fólk ætti nú að geta sætt sig við þetta;) Var ansi mikið verk að fara í gegnum myndirnar, en það hafðist allt saman. Endilega verið svo bara dugleg að kommenta, það er svo gaman að því:)

Í dag fór ég í mødregruppe, mættum kl. 10, hlustum svo á konu segja okkur frá alls konar dagpleje möguleikum í kommúnunni og svo var spjallað og spjallað meira. Kom ekki heim fyrr en um miðjan dag, en börnin okkar eru auðvitað svo mikil fyrirmyndarbörn að þau sváfu þegar við komum, vöknuðu, léku sér, fengu graut, léku sér aðeins meira, fengu að drekka úr mömmubrjósti og fóru aftur út í vagn að sofa þ.a. ég gat spjallað meira óáreitt:) Eru svo núna farin að sofa fyrir nóttina, vakna síðan líklegast seinnipart nætur og fá smá sjúss og sofa svo áfram fram á morgun. Eflaust gæti ég vanið þau af þessum síðnætursjúss, en merkilegt nokk finnst mér þetta bara nokkuð notalegt (svo lengi sem þetta er bara einu sinni).

Ætla að hengja upp þvott og horfa svo á síðasta þáttinn af Las Vegas í seríu 2.

Skrifaði eyrunl klukkan 08:15 EH | 0 Ummæli

janúar 22, 2006

Vetrarríki

Ekki hægt að kvarta undan snjóleysinu núna. Ágætis breiða yfir jörðinni þ.a. allt er ótrúlega bjart og fallegt úti. Reyndar fylgir þessu líka nístíngskuldi en það má nú klæða það af sér. Lenti t.d. í því á föstudaginn þegar ég var að fara heim úr skólanum að það var nokkuð sem heitir isslag, sem ég myndi næstum þýða sem ísrigning og það var alveg þykkur klakahjúpur utan á öllum bílnum. Sem betur fer fékk Vignir far með mér og 2 sköfur í bílnum þ.a. við vorum tvö að hamast við að skafa. Held ég hafi samt sjaldan verið jafn lengi að hreinsa einn bíl.

Í gærkveldi var heimalingunum boðið í mat (umræddir heimalingar vita hver þau eru;)), strákarnir drukku rauðvín (ég fékk reyndar smá smakk því börnin voru farin að sofa) og svo var það einn bjór og annar og ... Var hringt í fleiri stráka, því e-ð var Jobbi minn orðinn partýþyrstur. Allt var samt hið rólegasta og miklar rökræður í gangi. Spunnust heitar umræður um tækjabudget, þessir strákar eru æstir í að kaupa sér sem flest tæki og ástæðan, jú til að geta sýnt hinum strákunum og hafa e-ð um að tala við þá!! Stelpur þurfa víst ekki nein tæki til að fá umræðuefni, Jobbi segir að við getum bara talað um ekki neitt í langan tíma. Hann efast nefnilega um að ég færi að sýna saumavélina mína (þ.e. ef ég fengi svona fína og flotta) og "monta" mig á því hve mörg prógröm hún sé með og þá hvaða prógröm það væru. Bæði Jobba og Vigni langar t.d. í ferlega stóra, ljóta og klunnalega standgólfhátalara, því það sé svo miklu miklu betra en betri helmingarnir eru bara því miður ekki alveg sammála um svona stóra og ljóta hátalara.

Í hádeginu í dag var að sjálfsögðu grjónagrautur, það er búið að vera vikulegt núna undanfarið. Gestir vikunnar voru Anna Karen og Kári en þau eru alveg að fara að koma með barn nr. 2. Nokkrir (eflaust langir fyrir þau) dagar eftir þ.a. það fer að fjölga meira Íslendingum hérna á kollegíinu.

Skrifaði eyrunl klukkan 03:52 EH | 4 Ummæli

janúar 12, 2006

Gleðileg jól, gleðilegt ár, takk fyrir það gamla og gleðilegan hversdagsleika!

Nei bara að reyna að bæta upp fyrir allar gleðilegu kveðjurnar sem ég hef ekki látið inn á síðuna hérna síðasta mánuðinn;) Þessi tæpi mánuður á Íslandi var nú bara nokkuð góður í heildina þó ég hafi ekki alveg verið að nenna að fara til Íslands svona þar til rétt áður en við lögðum af stað. Gerðum nú reyndar ekkert voðalega mikið, lágum í leti og meiri leti. Vorum í Hafnarfirðinum yfir jóladagana en fórum svo norður yfir áramótin og vorum þar í 10 daga. Var dekrað við okkur (sérstaklega börnin;)) alls staðar. Fengum alveg fullt af pökkum og þokkum kærlega fyrir okkur!!! Fyndnast var nú samt að við fengum eldfast mót með loki og bakka frá foreldrum mínum, og svo þegar við komum norður fengum við NÁNAST EINS eldfast mót frá foreldrum Jobba!!! Þegar við komum út aftur beið okkar jólagjöf frá Guðbjörgu og Vigni, ekki eldfast mót, nei því það var búið að skipta því eftir að ég sagði Guðbjörgu söguna um eldföstu mótin!!! Við vorum því næstum því búin að fá ÞRJÚ eldföst mót í jólagjöf!!

Í fréttum þessa dagana er það helst að ég er byrjuð aftur að læra, var næstum allan daginn í gær og fór svo eftir hádegi í dag (var mæðragrúppa í morgun og þá er löglegt að skrópa í skólann;)). Núna er ég svo ein heima þar sem Jobbi fór á strákakvöld, spilaður púl og bolti og drukkinn øl. Verst að Jobbi getur ekki æft sig á nýja fína fótboltaborðinu sem mín var svo ofurgóð að gefa honum í jólagjöf, því það er ekkert pláss inni í íbúðinni okkar fyrir 70kg fullsize fótboltaborð!! Það bíður því bara eftir að verða látið í gáminn og flutt til Íslands. Þar verður vonandi e-n tímann í náinni framtíð til steypuklumpur utan um borðið og restina af okkar dóti:)

Birkir og Ásdís stækka á ógnar hraða. Birkir er kominn með 2 tönnslur, fundust báðar 22. desember og var það ég sjálf sem átti þann heiður. Var áður búin að segjast ekki ætla að láta vita af því ef ég myndi finna fyrstu tönnina á Íslandi, heldur láta ömmur eða afa finna. Það hefði auðvitað verið praktískt, því þá hefðu þau gefið tannfé (ekki að ég sjái eftir að gefa barninu mínu tannfé, síður en svo). Þegar ég fann síðan tennurnar, var ég ekki lengi að gala það upp yfir allt húsið að ég væri búin að finna TVÆR tennur!! Ásdís skoðar íbúðina á ótrúlegum hraða og hún eiginlega ekki orðin baby proof ennþá, þ.a. við verðum að fara að drífa í þessu. Netsnúran sem liggur yfir gólfið á smá kafla er auðvitað mest spennandi í heimi, eins og geisladiskarnir í standinum. Birkir ferðast líka um íbúðina, þó hann sé nú aðeins rólegri og yfirvegaðri, þarf ekkert að komast yfir alla íbúðina mörgum sinnum á dag eins og systir hans. Þau velta sér bæði fram og til baka, stela snuðum af hvort öðru og leika sér sem mest þau mega með dótið sitt. Þessa stundina er dót frá Margréti systur og co. mest spennandi, svona misstórir hringir staflaðir á statíf, nútíma útgafa með hljóði og ljósum.

Í dag er ég mikið búin að hugsa til þess dags er ég var í fullswing með hríðar og að eignast börnin mín. Það sem varð til þess akkúrat í dag, var að Guðbjörg og Vignir fóru í skoðunarferð um fæðingardeildina í dag. Svona skoðunarferðir eru alltaf á fimmtudögum og ég átti á fimmtudegi. Það vill nefnilega þannig til að þegar ég var á fæðingardeildinni, með dripp í æð og geggjaðar hríðar að mér fannst nonstop, þá spurði ljósmóðirin mig hvort ég vildi ekki fara á klósettið og pissa áður en að sjálfri fæðingunni kæmi. Jújú, ég gat svo sem alveg gert það. Það eru 4 fæðingarherbergi og 1 klósett frammi á gangi. Var engin önnur fæðing í gangi á sama tíma þ.a. þetta átti nú ekki að vera mikið mál. Þegar við komum fram á gang, ég klædd í sjúkrahússkyrtu, RISA sjúkranaríur með slöngu fasta við hendina, þá var heill hópur frammi á gangi að skoða fæðingardeildina. Þurfti að labba í gegnum hópinn til að komast að klósettinu. Það var auðvitað UPPTEKIÐ!!! Ég beið því bara, ældi aðeins meira og fékk nokkrar hríðar. Þegar ég fór til baka var ljósmóðirin komin með lak til að breiða í kringum mig því henni leið víst e-ð illa að hafa farið með mig fram á gang svona klædda þegar gangurinn var fullur af fólki. Ekki að mér hafi ekki verið sama, ég hefði getað átt börnin fyrir framan heilan bíósal, svo mikið var mér sama um það sem var að gerast í kringum mig. Öfunda Guðbjörgu núna alveg heilan helling að eiga þetta eftir og hlakka bara til að gera þetta vonandi e-n tímann aftur:) Tvö börn eru nú samt alveg nóg í bili;)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:40 EH | 4 Ummæli