janúar 27, 2006

Allir að vera duglegir:)

Þetta er alveg svakalega skemmtilegt, megið ENDILEGA svara þessu í kommentunum:)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Finnst þér ég áhugaverður einstaklingur?
5. Myndirðu þola að hlusta á mig tala í einn sólarhring samfleytt?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkirðu mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Munt þú setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Skrifaði eyrunl þann 27.01.06 15:17
Ummæli

1. Hver ert þú? Margrét
2. Erum við vinir? já og systur :)
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? Hmm fljótlega eftir að ég fæddist
4. Finnst þér ég áhugaverður einstaklingur? Jábbs
5. Myndirðu þola að hlusta á mig tala í einn sólarhring samfleytt? Úff held ekki, sorry ;)
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. Hmmm.......
7. Lýstu mér í einu orði. Þrjósk ;)
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? Hvernig á ég að muna það?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig? Örugglega
10. Hvað minnir þig á mig? Barnadót ;)
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? Pössun f/krílin og dekurhelgi á hóteli útá landi :P
12. Hversu vel þekkirðu mig? Nokkuð vel
13. Hvenær sástu mig síðast? 8.janúar 2006
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? Já
15. Munt þú setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig? Hmmm kannski....


Skrifaði: Margrét besta frænka þann 27.01.06 15:39

1. Hver ert þú? Guðbjörg nágranni þinn
2. Erum við vinir? Já bara nokkuð góðir sko
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? fyrst man ég lítið eftir, en það var í Flensborg. En svo hittumst við aftur þegar þið Jobbi voruð að kaupa ykkur grilláhöld;)
4. Finnst þér ég áhugaverður einstaklingur? Já frekar
5. Myndirðu þola að hlusta á mig tala í einn sólarhring samfleytt? Ef ég mætti vera sofandi svona ca helminginn.
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. Nei
7. Lýstu mér í einu orði. Kát
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? bara nokkuð vel
9. Lýst þér ennþá þannig á mig? Nei mér líst betur á þig núna
10. Hvað minnir þig á mig? fiskisúpa og tvíburavagnar
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? Hina fullkomnu teikningu af húsi og iðnaðarmennina og allt það með.
12. Hversu vel þekkirðu mig? bara nokkuð vel
13. Hvenær sástu mig síðast? fyrir ca 3 dögum hittumst við en ég sé þig nú bregða fyrir oft sko.
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? Nei ég held ekki
15. Munt þú setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig? Nei ég er búin.


Skrifaði: Guðbjörg þann 28.01.06 09:43

1. Hver ert þú? Fjóla
2. Erum við vinir? Já, þú ert amk meira en kunningi í mínum bókum
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? Í 6. bekk í Setó, ég var nýja stelpan í bekknum.
4. Finnst þér ég áhugaverður einstaklingur? Þú ert allavega yfir meðallagi.
5. Myndirðu þola að hlusta á mig tala í einn sólarhring samfleytt? Ó, nei!!!
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. "Eyrun mín", þetta er ég nú búin að nota lengi og mér finnst það alltaf jafn fyndið ;p
7. Lýstu mér í einu orði. Hávær!
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? Man ekki...
9. Lýst þér ennþá þannig á mig? ... þú ert ágæt
10. Hvað minnir þig á mig? Barnaland
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? Vísnabókina (og viti menn ég gaf ykkur hana í gær.. ætli ég þurfi þá ekki að finna upp á einhverju nýju)
12. Hversu vel þekkirðu mig? svona 75%
13. Hvenær sástu mig síðast? í gær
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? Örugglega, og það var væntanlega mjög merkilegt og mikilvægt.
15. Munt þú setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig? Neibb, er hætt að blogga. Sendu mér bara mail :)


Sá þetta fyrir nokkrum dögum og giskaði á að Margrét og Guðbjörg væru þessir 2 sem voru búnir að kommenta. Og það var rétt hjá mér, fæ ég ekki verðlaun?!

Skrifaði: Fjóla þann 03.02.06 15:29

Hehehe, jújú. Mætir bara á morgun kl. 12, þá verða afhent verðlaun við hátíðlega athöfn;)

Skrifaði: Eyrún þann 04.02.06 09:38