febrúar 23, 2006
Velkominn í heiminn Jökull Örn
Rétt fyrir miðnætti s.l. mánudag eignuðust Guðbjörg og Vignir lítinn dreng sem hefur fengið nafnið Jökull Örn. Eflaust alveg gullfallegur, en ég hef ekki ennþá séð hann þar sem ég var að klára að ná úr mér e-m kvefskít. Fer að sækja þau á eftir og iða alveg í skinninu að fá loksins að sjá litla kallinn:) Enn og aftur til hamingju með drenginn ykkar, kæru vinir, nágrannar og heimalingar;)
febrúar 19, 2006
Til hamingju með hálfa öldina mamma!!!
Ótrúlegt að þetta unglamb sem mamma mín er eigi heil 50 ár að baki!! Eins og hún sagði í morgun þegar ég hringdi og vakti hana, þá líður henni meira eins og fertugri, það væri eins og hún væri að yngjast, en ekki eldast:) Ég missti af enn einu surprise partýinu í gærkveldi þegar stórfjölskyldan ákvað að birtast á tröppunum á miðnætti með kampavín og halda smá partý.
Í gærkveldi var smá wannabe júróvisjón partý hjá okkur, en Guðbjörg og Vignir komu í fondue og til að horfa á geimið. E-ð var útsendingin frekar slöpp á netinu, aðeins of margir að reyna að horfa á sama tíma. En við náðum nú samt úrslitunum, þó það hafi nú ekki komið neitt brjálæðislega mikið á óvart, ónei.
Í dag, var Lilja Rán skírð og fengum við íslendingagengið á kollegíinu að mæta "bara" í kaffi í seinni hluta veislunnar. Jeright, eins og maður mæti bara í kaffi, ég nýtti auðvitað tækifærið og klæddi upp börnin og sjálfa mig, ekki það oft sem maður fær tækifæri til þess hér í Danaveldi;) Maður þyrfti eiginlega að setja börnin í spariföt alltaf á sunnudögum, þ.a. þau vaxi ekki upp úr sparifötunum ónotuðum;) Eða kannski ekki, held að þau vilji nú frekar vera frjáls til að skríða út um alla íbúð og setjast upp við húsgögnin, eða undir stofuborði eins og Birkir gerði í dag.
Birkir var annars e-ð pirraður rétt áður en við fórum og það skánaði ekki þegar við mættum, þá var grenjað eins og mest hann mátti og ég var alveg að fara bara strax aftur heim með greyið drenginn en ákvað að setjast inn í annað herbergi og reyna að róa hann fyrst. Það tókst sem betur fer, þ.a. ég gat setið aðeins lengur.
Heilsan á heimilinu er alveg hin bærilegasta þó e-r kvefpest sé að hrjá okkur öll. Hélt einmitt að Birkir væri að veikjast e-ð meira þegar hann grét svona, en eftir að hann róaðist var hann alveg eins og hann á að sér að vera, þ.a. ég hætti að spá í því.
Ætla að koma mér í háttinn svo ég vakni með góðu móti í fyrramálið:)
febrúar 17, 2006
Börnin farin að skríða
Þau eru svo dugleg, frábær og æðisleg:) Ekki nóg með það, heldur eru þau ÓTRÚLEGA samtaka!! Ásdís byrjaði að skríða í fyrradag á meðan Birkir settist í fyrsta skipti upp í fyrradag en í morgun byrjaði Birkir síðan að skríða. Þá erum við að tala um svona ideal skrið á fjórum fótum:) Þau eru bæði búin að toga sig áfram á gólfinu, fara upp á fjóra fætur og renna sér svo áfram í nokkurn tíma en núna föttuðu þau þetta loksins. Á nú ekki eftir að breyta miklu þar sem þau voru búin að ná upp töluverðri ferð á maganum á gólfinu og voru alltaf út um allt alls staðar. Mæli stórlega með sjónvarpsskáp með hurð, þau eru endalaust að fikta í magnaranum, dvd-spilaranum og video tækinu. Video tækið er alltaf komið annað hvort hálfa leið út úr skápnum eða lengst inn í botninn.
Ásdís er líka byrjuð að standa upp á hnjánum upp við ýmsa hluti. Í gær var hún svo þannig við einn eldhússtólanna (ekki það að borðstofustólarnir séu e-ð öðruvísi;)) og datt á stólfótinn. Grét sárt og mikið og bjóst ég alveg eins við marblett á kinninni, en ég gat nú ekki séð neitt í morgun.
Enn eina ferðina er byrjað að snjóa hjá okkur, snjórinn hefur btw ekki horfið fullkomnlega síðan það snjóaði hérna um jólin. Var næstum ekkert eftir nema nokkrir skaflar og maður orðinn bjartsýnn á að sjá fram á snjóleysi þegar það byrjaði að snjóa í fyrrakvöld. Var svo komin smá föl í gær, en núna snjóar þvílíkum jólasnjó. Spurning hvort ég fari og kaupi stígvél á börnin þ.a. við getum farið út að leika í snjónum.
febrúar 16, 2006
Myndbönd
Létum í gær nokkur myndbönd inn á myndasíðuna okkar. Eigum alveg slatta af efni í viðbót sem er búið að taka síðan börnin fæddust, en e-n veginn ætluðum við alltaf að klippa þetta e-ð flott en til þess þurftum við að læra það og það er nú ekki ennþá búið þ.a. þetta er bara svona eins og þetta er;)
febrúar 12, 2006
Undankeppnir júróvisjón
Nóg hefur verið fjallað um undankeppnina heima, en þar fannst mér mörg lögin vera óttalega væl e-ð. Það var hins vegar áður en ég sá undankeppnina hérna í Danmörku í gærkveldi. Það voru 10 lög sem voru í keppninni, NÍU af þeim voru nánast eins, ferlegt píkupopp og ennþá meira væl, enda kannski ekki skrítið þegar Danir eru upp til hópa ferlegir píkupopparar;) Tíunda lagið var öðruvísi, mér fannst það frekar kúl og kaus það meira að segja, og mér að þakka (jú og hinum auðvitað líka sem kusu...) þá verður það framlag Dana í Grikklandi. Var samt að fatta í gær að við verðum flutt heim þegar keppnin verður haldin í maí, fékk nett sjokk. Ég er mikið í því þessa dagana að fá sjokk yfir því að vera að fara að flytja heim, væri stundum bara til í að búa hérna áfram í örygginu, hér "eigum" við okkar íbúð og lifum nokkuð góðu lífi fjarri öllu brjálæðislega lífsgæðakapphlaupinu á Íslandi. Ég hlakka samt auðvitað til að geta hitt alla sem við þekkjum á Íslandi, verður samt bara svo allt öðruvísi líf heldur en hérna. Vinir okkar búa hérna í 100m radíus, allir í voða rólegheitafíling og nokkuð mikill samgangur þrátt fyrir að allir hafi sitt prævasí. Við erum öll í sama pakkanum, öll að eignast börn á 8 mánaða tímabili (jún '05 - feb '06). Fædd 5 börn og eitt alveg að koma. Geri aðrir betur;)
febrúar 04, 2006
Til hamingju Ísland
Jiii ég hélt ég myndi pissa í mig úr hlátri þegar ég horfði á Silvíu Nótt áðan. Við sem horfum aldrei á íslenska sjónvarpið í gegnum netið gátum nú ekki látið þessa umdeildu keppni fara framhjá okkur og horfðum því á evróvisjón keppnina stream-aða í sjónvarpinu í gegnum okkar yndislegu xbox vel. Sofnaði reyndar vel yfir spaugstofunni en reyndi eins og ég get að vakna og sjá grínið af Geir Ólafssyni, sem ég btw skil ekki hvaðan hann hefur allt þetta egó, hann heldur í alvörunni að hann sé æðislegur og bestur!!
Náði að vakna almennilega fyrir úrslitin, get nú ekki sagt að ég hafi orðið hrædd um að Silvía night myndi komast áfram. Þegar eitt sæti var eftir þá þóttist ég nú alveg vita að það væri hún sem væri þar. Þetta var svo mikil snilld, hún þarna nánast á brókinni og síðan karlarnir í bleiku nærbuxunum.
Eitt skil ég ekki í því að hinir keppendurnir vilji fá lagið úr keppni því það lak á netið. Jú, ég get alveg tekið undir það að lagið hafi haft forskot núna í kvöld, en úr því var bætt með því að hleypa einu auka lagi í úrslitin. Fram að úrslitunum verður svo hægt að hlusta á ÖLL lögin á http://www.ruv.is/eurovision sem hafa komið í undankeppninni. Því get ég ekki séð að þetta tiltekna lag hafi neitt forskot í úrslitunum fram yfir t.d. þau sem komust áfram fyrsta kvöldið og eru því búin að vera ennþá lengur á netinu.