febrúar 12, 2006

Undankeppnir júróvisjón

Nóg hefur verið fjallað um undankeppnina heima, en þar fannst mér mörg lögin vera óttalega væl e-ð. Það var hins vegar áður en ég sá undankeppnina hérna í Danmörku í gærkveldi. Það voru 10 lög sem voru í keppninni, NÍU af þeim voru nánast eins, ferlegt píkupopp og ennþá meira væl, enda kannski ekki skrítið þegar Danir eru upp til hópa ferlegir píkupopparar;) Tíunda lagið var öðruvísi, mér fannst það frekar kúl og kaus það meira að segja, og mér að þakka (jú og hinum auðvitað líka sem kusu...) þá verður það framlag Dana í Grikklandi. Var samt að fatta í gær að við verðum flutt heim þegar keppnin verður haldin í maí, fékk nett sjokk. Ég er mikið í því þessa dagana að fá sjokk yfir því að vera að fara að flytja heim, væri stundum bara til í að búa hérna áfram í örygginu, hér "eigum" við okkar íbúð og lifum nokkuð góðu lífi fjarri öllu brjálæðislega lífsgæðakapphlaupinu á Íslandi. Ég hlakka samt auðvitað til að geta hitt alla sem við þekkjum á Íslandi, verður samt bara svo allt öðruvísi líf heldur en hérna. Vinir okkar búa hérna í 100m radíus, allir í voða rólegheitafíling og nokkuð mikill samgangur þrátt fyrir að allir hafi sitt prævasí. Við erum öll í sama pakkanum, öll að eignast börn á 8 mánaða tímabili (jún '05 - feb '06). Fædd 5 börn og eitt alveg að koma. Geri aðrir betur;)

Skrifaði eyrunl þann 12.02.06 10:05
Ummæli

Ég er sammála því hvað þessi danska júrókeppni var mikið væl. Það hljóta að vera einhverjir mega íhaldsrassar á DR sem velja þessi lög. Hjálpi mér!! Þetta var verra en á RÚV og það hjálpaði ekkert að hafa "grínarann" Mads Vangsø sem kynni.

En alltaf skal maður horfa á þetta ;)

Skrifaði: Fjóla þann 13.02.06 09:03
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?