mars 30, 2006

Aftanákeyrsla

Eitthvað virðast aftanákeyrslur vera í tísku þessa dagana... Ég lenti í því í morgun á leið úr nuddinu að fá bíl aftan á mig, en sem betur fer var þetta það allra minnsta og gat ég ekki séð annað en rispur á stuðaranum.
Nuddið var annars ótrúlega gott:) Hefði helst vilja bara sofna þegar ég var búin;)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:12 FH | 0 Ummæli

mars 29, 2006

Vorið er komið

Þá er snjórinn alveg að verða horfinn:) Bara smá restar af sköflum hér og þar en það má nú alveg lifa með því í nokkra daga. Hitinn meira að segja búinn að skríða upp í heilar 8°C!! Sem er sko þokkalega mikill hiti þegar hitinn hefur varla skriðið upp fyrir frostmark í marga mánuði. Já það er sko búið að vera ógeðslega, viðbjóðslega, hræðilega kalt hérna frá áramótum... *brrrrr*

Í bílnum á leiðinni í og úr skóla er ég alltaf með fullt af hugmyndum um að ég gæti bloggað um hitt og þetta, en þegar ég kem í skólann þá þarf ég að reyna að hugsa um verkefnið mitt en ekki blogg og þegar ég kem, þá leik ég við börnin mín þ.a. loksins þegar allt er orðið rólegt á kvöldin, þá man ég ekkert hvað ég gæti mögulega bloggað um.

Smá upplýsingar um börnin veit ég að e-rjir vilja fá. Þetta eru auðvitað sætustu, yndislegustu, duglegustu, frábærustu o.s.frv. börn sem fæðst hafa á þessa jörð!!! Ekki endilega víst að allar hinar mömmur heimsins séu sammála mér, en ég veit auðvitað best;) Þau eru farin að ganga núna aðeins með og svona rétt að byrja að sleppa sér (þá bara standandi kyrr), en það dugar samt yfirleitt ekki lengur en 1-2 sekúndur. Dótið þeirra er svona misspennandi, ennþá meira spennandi að reyna að opna bakaraofninn (þvílík snilld sem barnalæsingin á ofninum er), niðursuðudósirnar eru líka svakalega skemmtilegar úr skúffunum, svo ég tali nú ekki um video tækið. Inn í þetta merkilega tæki er hægt að troða höndunum og þá er hægt að toga og ýta tækinu fram og aftur í hillunni. Inn á baði er lítil fata, sem þeim langar rosalega mikið til að leika með, hafa ekki ennþá fengið það fyrir ströngum foreldrum sem langar helst ekki að börnin sín leiki með ruslið;) Þau eru farin að sofna nánast sjálf í rúmunum sínum á kvöldin og sofa nánast alla nóttina. Koma nætur þar sem þau sofa alveg til morguns en stundum vakna þau einu sinni. Á vetrartímanum voru þau farin að vakna heldur snemma eins og ég var búin að minnast á, svo kom sumartími og þá vöknuðu þau á sama tíma, nema klukkan var bara klukkutíma meira:) Öllu skárra að vakna hálf 7 heldur en hálf 6. Hálf 7 er eiginlega bara kominn morgun á meðan hálf 6 er ennþá mið nótt. Í morgun vaknaði samt Birkir líka hálf 6, var síðan allur e-ð ómögulegur í dag og sagði Jobbi mér rétt áður en ég kom heim að það væri eins og Birkir væri bara ekki búinn að jafna sig á þessari þreytu frá því um morguninn. Kannski ekki skrítið því þegar ég kom heim fannst mér litli drengurinn nokkuð heitur og var þá með tæplega 39 stiga hita. Ætli hann fái þá ekki bara að sofa uppí hjá mömmu og pabba í nótt. Nóttin nálgast og kominn tími fyrir þreytta mömmu að skríða í bólið, á svo tíma í nudd í fyrramálið sem ég fékk frá Jobba um helgina, þarf reyndar að borga það sjálf, finnst það heldur fyndið:) Hugmyndin er ekki slæm, skrifa á miða gjöf og láta svo viðkomandi borga;) Reyndar er góð ástæða fyrir þessu núna, en ég verð auðvitað aðeins að stríða drengnum;)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:15 EH | 1 Ummæli

mars 24, 2006

5 ára afmæli

Á morgun eigum við Jobbi 5 ára afmæli og í gær var svona 5 ára semiafmæli en þá var sko hin örlagaríka vísindaferð sem leiddi til fyrsta kossins:) Á morgun ætla ég að taka mér frí frá lærdómnum og við ætlum að fara út að borða:D Ekkert svaka rómó neitt, heldur meira svona fjölskylduferð seinnipartinn:) Vona bara að börnin ákveði að gefa okkur "gjöf" í fyrramálið og sofa aðeins lengur en til hálf 6 eins og í morgun;) Það var allavega séð til þess að þau sváfu ekki lengur en til 2-3 í dag og þau borðuðu ágætlega í kvöld þ.a. allt ætti að vera ideal til að þau sofi aðeins lengur.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:13 EH | 3 Ummæli

mars 23, 2006

Drenge som mig, bliver forelsket, i piger som dig...

Ekki að ég sé strákur eða því þá síður ástfangin af stelpu en þetta er laglínu úr dönsku lagi sem er þokkalega pikkfast í hausnum á mér!!! Ekki nóg með að ég heyri það allan daginn inní höfðinu mínu, þá var ég andvaka í nótt og þar var þetta blessaða lag á milli þess sem ég hugsaði um teikninguna af parhúsinu okkar sem við erum að prófa að gera.

Af okkur fjölskyldunni er bara allt ágætt að frétta, ég er á fullu í skólanum að læra alla daga á meðan börnin stækka og þroskast og leika sér með pabba sínum. Ásdís veit alveg að mamma er best;) Um leið og ég kem inn úr dyrunum á daginn, þá má ég helst ekki fara úr augnsýn. Þau fóru í fyrsta skipti í langan tíma út í vagn í morgun en þau eru búin að vera með kvef og hósta frekar lengi og Ásdís fékk tvisvar hita. Núna vona ég að þetta sé að verða búið.

Annars mætti halda að ég væri ungabarn sem þyrfti að svæfa, í gærkveldi fór ég ótrúlega snemma í rúmið til að ná úr mér uppsafnaðri þreytu og vera vel í stakk búin þegar ég þyrfti að vakna á heldur ókristilegum tíma (þau eiga það til að vakna um eða fyrir 6 þessa dagana...). Hálftíma á eftir mér kemur Jobbi upp í rúm og ég ENNÞÁ vakandi (sem er langur tími fyrir mig sem venjulega sofna eins og skot), ég fékk að kúra og sofnaði nánast samstundis. Í nótt var ég andvaka í klukkutíma, endaði á að biðja um að fá að kúra aftur og viti menn, ég sofnaði bara eins og skot. Þetta tvennt varð til þess að ég var bara ekkert svo hress þegar þau byrjuðu að vakna um 6 leitið í morgun.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:16 FH | 5 Ummæli

mars 11, 2006

Veikindabæli

Tveir kvefaðir ungar og þar af ein lítil tísla með hita bíður varla upp á mjög samfelldan svefn í nótt. Síðasta nótt voru þau þó "bara" kvefuð og þurftum við að vakna ansi oft og mikið. Ætla samt að reyna að vakna í hressara lagi á morgun til að þrífa vikulegu þrifin á heimilinu, það þarf nauðsynlega orðið að skúra hérna! Þreytan er að sliga mig, farin að sofa. ZZZzzzzz góða nótt

Skrifaði eyrunl klukkan 10:02 EH | 3 Ummæli

Koppasaga og meira mont;)

Þegar mamma var í heimsókn fyrir tveimur vikum síðan fórum við í bæinn og ég keypti m.a. tvo koppa handa börnunum mínum. Ákvað að vera bara tímanlega í þessu og leyfa þeim svo að kynnast koppnum í ró og næði. Kopparnir eru keyptir á laugardegi og á sunnudeginum pissa þau bæði í fyrsta skipti í kopp. Síðan þá hefur Ásdís pissað meira eða minna í kopp og á það til að bilast ef henni er mál að pissa og við ekki búin að setja hana á koppinn. Er stundum smá mál að finna út hvað er að hrjá hana því hún er auðvitað bara 9 mánaða og ekki ennþá farin að tala!! Segir nú samt oft búúa þegar hún er búin að pissa en það er samt ekki alveg algilt. Birkir tekur þessu nú öllu rólegar, pissar í kopp ef hann þarf þess þegar við látum hann á koppinn en er ekki jafn mikill pjattrófa og systir hans sem vill helst ekki orðið pissa í bleyjuna.

Þau eru bæði farin að standa upp við allt sem þau geta stuðst við, og stundum reyna þau að standa upp og nota hvort annað sem stuðning. Það gengur svona misvel, sérstaklega ef annað þeirra stendur fyrir og hitt reynir að hífa sig upp með því að toga í fötin. Endar yfirleitt með því að bæði pompa á rassinn;)

Á morgun fáum við svo síðustu heimsóknina í bili, en þá koma Inga og Simmi og verða fram á föstudag. Síðan eru ekki fleiri heimsóknir planaðar fyrr en þau koma aftur í byrjun maí til að aðstoða okkur við flutninginn. Sem einmitt minnir mig á að það er minna en 2 mánuðir núna!!! Scheisse!!! Jobbi hlakkar nú samt eflaust til að komast aðeins út af heimilinu eins og ég hlakka til að fá loksins að eyða meiri tíma með börnunum:)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:28 FH | 3 Ummæli

mars 03, 2006

Tíminn líður og líður, og allt að gerast!!!

Fyrir að mér finnst nokkrum dögum síðan voru 2 mánuðir í að Vignir og Guðbjörg myndu flytja heim til Íslands og 4 mánuðir í að við fjölskyldan færum aftur heim. E-ð hlýtur nú tíminn að hafa liðið, því nágrannarnir yfirgefa okkur á þriðjudaginn og við flytjum heim eftir rétt rúma 2 mánuði!! Við keyptum okkur far á 2000kr tilboðinu hjá Express og flytjumst búferlum 10. maí. Ég sveiflast á milli þess að hlakka til og vilja helst bara hætta við!! Verkefnið gengur bara sæmilega vona ég og á að klárast fyrir heimför.

Sem dæmi um hvað tíminn líður hratt, þá urðu litlu nýfæddu börnin okkar 9 mánaða í gær!!! Þau er sko ekkert lítil lengur, skríða, standa upp, pissa í kopp og ég veit ekki hvað og hvað:) Var að kaupa næstu stærð að ofan af bílstólum og fær Birkir að skipta yfir í nýjan stól á meðan Ásdís þarf ennþá að húka í smábarnastólnum, því hún er ekki ennþá orðin 9kg, er soddan peð;) Þeim fannst alveg ótrúlega merkilegt að skoða nýja stólinn í dag og fengu líka bæði að máta:)

Nýjar myndir eru á leiðinni inn... spurning hvort þær verði tilbúnar í kvöld eða á morgun.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:20 EH | 2 Ummæli