apríl 22, 2006
Ansans óheppni
ARRRRGGG!!!! Ég er að næla mér í e-a pest eins og restin af heimilisfólkinu. Ekki eins og ég hafi e-n tíma til þess!!! Ekki hjálpar of lítill svefn líðaninni, fór í háttinn rúmlega miðnætti og börnin sáu sko um að vekja okkur á slaginu SEX í morgun!! Fór heldur meira fyrir Ásdísi heldur en Birki þ.a. ég tók hana uppí og ákvað að gefa henni bara morgunsopann sinn. Ekki var Birkir parhrifinn að hún væri tekin upp í rúm til okkar en ekki hann þ.a. Jobbi varð að sækja hann líka. Þegar þau eru komin uppí til okkar er ekki einn einasti séns að sofa mínútunni lengur. Þau príla upp í gluggakistu, draga gardínurnar frá, kveikja á útvarpinu, skríða yfir andlitið á okkur o.s.frv. Samt dregur maður það eins og maður getur að fara á fætur, hljótum að vera algjörir letihaugar að nenna ekki á fætur fyrr en 7;)
apríl 21, 2006
Fyrsta/síðasta grillið
Í kvöld var fyrsta grill sumarsins eða síðasta grill vetursins svona eftir því hvernig maður lítur á málið því nú virðist sumarið vera á næsta leiti. Þetta var líka síðasta Íslendingagrillið okkar hérna að öllum líkindum. Rættist alveg ótrúlega úr kvöldinu, byrjað snemma þar sem öll pörin nema eitt eru með börn yngri en 2ja ára. Þegar háttatíminn kom fækkaði í liðinu en ég fékk að taka fyrstu vakt uppfrá en er nú komin heim og Jobbi farinn. Eins gott að svefnpurkan ég átti fyrri vaktina því nú er ég sko þokkalega á leiðinni í rúmið til að geta vonandi verið fersk í fyrramálið til að fara að læra. Alltaf stuð, stuð, stuð á mínum bænum. Þessi þvílíki bloggdugnaður minn tel ég vera kominn vegna skólastress, þetta er örugglega svipað eins og þegar ég var í prófum, þá var ég allra duglegust að blogga:) Fyrir nokkrum dögum hélt ég að ég myndi varla ná að klára skýrsluna, en núna lítur þetta nokkuð betra út, væri auðvitað til í fullt lengri tíma því ég gæti betrumbætt svo margt. Jobbi vill að ég skili skýrslunni föstudaginn 28. apríl frekar en mánudaginn 1. maí. Pressan er sett á að reyna það, sjáum svo bara til hvort það náist.
apríl 20, 2006
Gleðilegt íslenskt sumar
Heyrði að sumar og vetur hefðu víða frosið saman á Íslandi og á það víst að boða gott sumar. Það er eins gott að það standist, því mig langar ekki í skítasumar eftir frostaveturinn mikla í Danmörku. Sérstaklega ekki þegar ég ætla að vera að dúllast með börnin mín í sumar og hafa það skemmtilegt. Verður samt örugglega pínu skrítið að vera á Íslandi í sumar en við höfum ekki verið á Íslandi yfir sumartímann síðan áður en við fluttum út árið 2003. Ekki finnst mér nú langt síðan við fluttum en það eru að verða komin 3 ár!! Núna 20 daga í brottför væri ég alveg til í að vera 3 ár í viðbót... en það er kannski bara af því að ég er á leiðinni heim. Gat nefnilega ekki beðið eftir að flytja alveg þangað til við ákváðum að flytja. Svona er maður nú skrítinn. Ég gat heldur ekki beðið eftir að losna við óléttubumbuna þegar ég var ólétt, en nú sakna ég bumbunnar minnar og líka þó hún hafi verið KÆMPE stór.
Verkefnið gengur sinn gang, ef e-r þarna úti býðst til að skrifa fyrir mig abstract, results og conclusion þá yrði ég afar glöð og gæti farið að hugsa um flutninginn til Íslands;) Efast reyndar um að neinn muni nenna því þ.a. það er kannski eins gott að halda áfram að böglast í þessu...
apríl 19, 2006
Kanntu brauð að baka...
Hún dóttir mín byrjar snemma að ætla sér stóra hluti í eldhúsinu, kannski til að verða kokkur eins og afi sinn eða kannski bara bakari. Í dag fattaði hún nefnilega að hún getur snúið tökkunum framan á eldavélinni!! ójá og það er sko ekkert bara tilfallandi, meira svona fyrst ein hella, síðan önnur og þá þriðja og fjórða og svo að lokum kveikt á ofninum, látið á blástur og hiti!! Hún hefur líka skap þegar henni er bannað e-ð, það eru sko öll takmörk testuð þessa dagana.
Í gær keypti ég handa þeim gåvogn, svipuðum og þessum. Þau labba með vagninum fram og aftur um íbúðina og fór Jobbi með þau út í dag og labbaði Birkir víst heilmikið úti líka:) Ásdís labbar svolítið eins og spítukall núna þ.a. það gekk ekki svo vel úti á stéttinni. Var algjör snilld í gær þegar þau fengu að prófa í fyrsta skipti og við létum Birki labba með Ásdísi sitjandi á vagninum og öfugt.
Ég er heldur betur farin að hlakka til að geta verið meira með þeim, orðin hundleið á að sjá þau bara rétt fyrir háttinn. Í morgun t.d. vaknaði ég ekki fyrr en þau voru komin út í vagn því ég var fyrst með Birki vakandi upp í rúmi hjá mér og svo akkúrat þegar hann sofnaði þá vaknaði Ásdís. Um sex leytið eða eftir hátt í 2 tíma með afar takmörkuðum svefn bað ég Jobba að taka við og ég svaf svo til að verða 9. Veitti ekki af, en núna er ég hins vegar aftur að leka úr þreytu þ.a. ég ætla að skríða í bólið.
apríl 18, 2006
gaflari.com komið í loftið
Loksins loksins hafðist það að fá sér endanlegt domain þ.a. við þurfum ekki að flytja heimasíðuna þegar við flytjum eða skiptum um internetaðila. Ætluðum að gera þetta áður en börnin fæddust en hugmyndasneyði okkar Jobba var það mikið að okkur datt nákvæmlega EKKERT gáfulegt lén í hug. Um daginn þegar ég var í skólanum og átti að vera að hugsa um að læra þá kom gaflarinn í hausinn á mér og þar með var það ákveðið.
Við sama tækifæri er líka búið að importa allar gömlu færslurnar af blogspot síðunni minni hingað yfir, reyndar vantar öll ummæli við þær færslur en ætli maður lifi ekki með því.
apríl 17, 2006
Klæða sig eftir veðri
Í morgun þegar ég fór út um hálf 9, var heiðskírt og sól. Hitastigið reyndar bara rétt í kringum 10°C en eftir svo ferlega hlýjan og góðan dag í gær þá var ég full trúar á að veðrið yrði enn betra í dag og fór í sandölum (reyndar í sokkum líka) og kvartbuxum í skólann. Sleppti meira að segja jakkanum og fór bara í þunnu flíspeysunni minni. E-ð ákváðu veðurguðirnir að það væri ekki alveg kominn tími á sumarið því núna er HAGLÉL úti!!! Eins gott að það verði skárra þegar ég fer heim á eftir.
apríl 15, 2006
Besta tengdamamma í heimi!!!
Ég var að fá símtal frá Jobba... þar byrjaði hann e-ð að babbla um hvað hann mætti fá mörg páskaegg. Fyrir mér var það nokkuð ljóst, við áttum 6 egg nr. 1 og hann myndi fá 2, ég myndi fá 2, Fjóla og Ingólfur sitt hvort þegar þau koma í mat annað kvöld. Ekki hætti hann og spurði þá hvort hann mætti svo eiga rest. REST?!?!? Við fengum þá tvö Nóa páskaegg nr. 4 send með póstinum í dag:) Við fréttum seinnipartinn á þriðjudaginn að Inga ætlaði að senda okkur páskaegg en hafði gleymt því. Þar sem við höfðum nú ekki beðið um nein páskaegg gátum við ekki svekkt okkur á þessu og sögðum henni að hafa engar áhyggjur, við myndum vel lifa þetta af. Það væri hvort eð er líklega of seint að setja í póst til að ná fyrir páska. Hún fór samt og keypti egg handa okkur og sendi sama dag sem dugði því þau bárust okkur í dag. Ég var eins og lítill krakki í símanum að tala við Jobba, með bros allan hringinn:-)
Í gær fórum við í mat til Fjólu og Ingólfs, páskarnir eru greinilega tími matarboða og heimsókna sem hefur verið lítið gert af undanfarið. Fengum frábæran fiskrétt og var borðað þar til við gátum varla staðið upp aftur!! Birkir og Ásdís voru nú ekki alveg á því að borða sama mat og við þ.a. þau fengu bara graut og ávexti þegar við komum heim. Annars borðuðu þau með okkur bæði miðvikudag og fimmtudag og fannst nokkuð gott. Toppurinn á tilverunni okkar þessa dagana er svefninn hjá Birki. Hann hefur núna í 2 nætur ekki rumskað neitt yfir nóttina og vaknað bara hress og kátur og í morgun vaknaði hann ekki fyrr en 7. Helst þetta í hendur með að hann ákvað að hætta á brjósti hjá mér fyrir 3 dögum. Ásdís hins vegar hefur verið að rumska aðeins á nóttunni, vildi þó ekki drekka hjá mér í nótt heldur bara sofna aftur hjá mér. Fékk nú ekki alveg vilja sínum framgengt þar sem hún var send aftur yfir í sitt rúm og þar svaf hún til morguns.
Í morgun á meðan Jobbi var í búðinni leyfði ég krökkunum aðeins að leika sér úti á stéttinni áður en þau færu í vagninn. Fóru út vettlingalaus þar sem það var nú ekkert svo kalt og þau áttu líka bara að fá að vera smá stund. Birki fannst voða gaman að skríða um á stéttinni, en Ásdís sat bara kyrr. Hún mundaðist við að fara upp á fjóra fætur til að skríða, en henni fannst bara of ógeðslegt að leggja lófana sína á stéttina þ.a. hún var fljót að setjast aftur upp. Algjör pjattrófa:)
apríl 14, 2006
Eitt nýtt myndband
Við (réttara sagt Jobbi) tókum video af börnunum í morgun þar sem þau gengu um stofugólfið með dótaborðið á undan sér. Börnin okkar eru auðvitað þvílíkir snillingar og við endalaust stollt:) Eiga nú ennþá nokkuð langt í að byrja að labba þar sem þau sleppa sér helst alls ekki. Enda nægur tími, þau eru rétt að verða 10 og hálfs mánaða:)
Frétti um helgina af nýjasta bónerbarninu sem er á leiðinni... Bína og Logi eiga von á sínu öðru barni:) Til hamingju með erfingjann sem er á leiðinni!!! Bína heldur að þetta sé enn einn strákurinn, mér finnst samt tími til kominn að það komi fleiri stelpur í hópinn þar sem það eru núna 6 strákar og bara 1 stelpa;) Ekki að kynið skipti öllu máli, nú þegar ég á bæði kynin get ég sko sagt að bæði er betra:)
apríl 10, 2006
Mánuður í flutning og nýjar myndir
Byrja á myndunum, lét inn slatta af nýjum myndum í gærkveldi. Getið séð hvað börnin eru orðin stór og dugleg.
Í dag er kominn 10. apríl, og þar sem við flytjum 10. maí, þá er akkúrat mánuður í flutninginn. Get nú ekki sagt að við séum nálægt því að vera tilbúin, en það hlýtur að vera ennþá nægur tími. Við tókum síðan Guðbjörgu og Vigni til fyrirmyndar og flytjum inn þræla til að aðstoða okkur;) Við erum svo heppin að Inga og Simmi buðust til að koma til okkar síðustu dagana og hjálpa okkur:)
apríl 04, 2006
Aprílgabb
Ég lét nú ekki plata mig 1. apríl þetta árið. Las tilkynninguna á barnalandi frekar hissa upphátt, en var nú ekki komin í gegnum hana alla þegar Jobbi sagði mér hvaða dagur var. Hins vegar fréttum við á laugardagskvöldið af gabbi sem var í gangi á kollegíinu. Dreyft var bréfi í alla póstkassa (þar á meðal okkar, en við sáum það ekki fyrr en daginn eftir) þar sem stóð að ástandsskýrsla fyrir kollegíið sýndi að það væri í svo slæmu standi að það þyrfti að loka því innan 2ja ára í 5þrepum. Fyrstu húsin þyrfti að tæma innan 3ja vikna. Þeir sem þyrftu að flytja út, myndu strax fá inni á öðrum kollegíium, s.s. HERBERGJAkollegíium fyrir einstaklinga (fólk sá fyrir sér að þurfa að flytja par með barn/börn í 12fm herbergi!!). Auk þess var af fjárhagslegum ástæðum nauðsynlegt að loka fyrir kyndingu og vatn innan 2ja vikna og eftir það væri hægt að ná í vatn í reiðskólann sem er við hliðina! Þá kom það besta:
Som et plaster på såret skulle det efter metrologerne blive en varm sommer.
Margir urðu ansi pirraðir, og þannig að í dag kom annað alvöru dreyfibréf frá ráðinu þar sem tekið var fram að fyrra bréfið var aprílgabb!! Þar sem ekki allir voru heima á laugardeginum, og bréfið var dagsett 27. mars, þ.a. þeir sem lásu bréfið 2. eða 3. apríl voru ekki beint með hugann við aprílgabb. Mér fannst þetta argasta snilld og frekar mikið fyndið:)
Annars erum við rétt að byrja að pakka ofan í kassana, erum búin að kaupa fullt af kössum og veitir víst ekki af að gera e-ð á kvöldin þar sem það styttist ískyggilega í flutning. Það sem meira er þá er komið á hreint að gámurinn kemur aðeins 4 dögum eftir að ég skila verkefninu mínu þ.a. það verður sko heldur betur nóg að gera. Reyndar mun hann í staðinn standa úti á plani yfir helgina þ.a. það er lengri tími til að fylla hann. Okkar stærsta "vandamál" núna er bara að selja bílinn.