apríl 19, 2006

Kanntu brauð að baka...

Hún dóttir mín byrjar snemma að ætla sér stóra hluti í eldhúsinu, kannski til að verða kokkur eins og afi sinn eða kannski bara bakari. Í dag fattaði hún nefnilega að hún getur snúið tökkunum framan á eldavélinni!! ójá og það er sko ekkert bara tilfallandi, meira svona fyrst ein hella, síðan önnur og þá þriðja og fjórða og svo að lokum kveikt á ofninum, látið á blástur og hiti!! Hún hefur líka skap þegar henni er bannað e-ð, það eru sko öll takmörk testuð þessa dagana.

Í gær keypti ég handa þeim gåvogn, svipuðum og þessum. Þau labba með vagninum fram og aftur um íbúðina og fór Jobbi með þau út í dag og labbaði Birkir víst heilmikið úti líka:) Ásdís labbar svolítið eins og spítukall núna þ.a. það gekk ekki svo vel úti á stéttinni. Var algjör snilld í gær þegar þau fengu að prófa í fyrsta skipti og við létum Birki labba með Ásdísi sitjandi á vagninum og öfugt.

Ég er heldur betur farin að hlakka til að geta verið meira með þeim, orðin hundleið á að sjá þau bara rétt fyrir háttinn. Í morgun t.d. vaknaði ég ekki fyrr en þau voru komin út í vagn því ég var fyrst með Birki vakandi upp í rúmi hjá mér og svo akkúrat þegar hann sofnaði þá vaknaði Ásdís. Um sex leytið eða eftir hátt í 2 tíma með afar takmörkuðum svefn bað ég Jobba að taka við og ég svaf svo til að verða 9. Veitti ekki af, en núna er ég hins vegar aftur að leka úr þreytu þ.a. ég ætla að skríða í bólið.

Skrifaði eyrunl þann 19.04.06 21:39
Ummæli

Já há það er ekkert smá dugnaður í stelpunni. Mikið er ég fegin að takkarnir á eldavélinni eru uppá borðinu hjá mér, en það er ennþá hægt að fikta í ofninum.

Hlakka líka til að þú sért búin með þetta xxxxx verkefni því þá ferðu að koma aftur til mín. Hlakka svooooooo til.

Skrifaði: Guðbjörg þann 20.04.06 10:16

Eftir að það kviknaði í íbúðinni í 16e um daginn eftir að krakki kveikti á eldavélinni þá er ég svona frekar stressuð yfir þessum nýfundna hæfileika hjá dóttur minni:/ Ætli við kaupum ekki svona öryggishlíf fyrir eldavélina sem nær yfir takkana því það er víst líka svona eldavél í íbúðinni sem við flytjum í, í sumar...

Hlakka líka til að sjá þig aftur Guðbjörg:)

Skrifaði: Eyrún þann 20.04.06 10:24

Þetta er alveg að koma, aðeins 10 dagar ;) (Eða kannski að það sé ekki gott að koma þér í stressið :S)
Þau eru soddan æði þessar dúllur. Hlakka ekki smá mikið að fá ykkur heim.

p.s nýjasta videóið er ekki smá krúttlegt.

Skrifaði: Margrét besta frænka þann 20.04.06 20:18
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?