maí 19, 2006

Við erum á lífi og vel það

Góðan daginn gott fólk sem ennþá nennir að skoða síðuna þrátt fyrir mega mikla bloggleti undanfarið. Enda ekki lítið búið að gerast í lífi gaflarafjölskyldunnar. Eftir skilin á verkefninu mínu tók við strembin törn að pakka niður öllu dótinu okkar, koma því í gáminn, þrífa íbúðina og flytja heim. Þetta hófst með mikilli og góðri hjálp frá tengdaforeldrum mínum en ég er ansi hrædd um að við hefðum annað hvort ekkert sofið eða skilið slatta eftir af dótinu okkar ef þeirra hjálpar hefði ekki notið við. Ásdís tók upp á því um leið og ég skilaði að vilja hvergi annars staðar vera en hjá mömmu sinni og gat ég því ekki mikið annað gert en vera með hana á handleggnum og fylgjast með Birki á meðan hinir sáu um pökkunina. Eftir að heim var komið gerðum við nú ekki mikið til að byrja með og reyndar ekki svo mikið ennþá. Var auðvitað ferming hjá Agnesi systur og tókst það nokkuð vel, börnin voru góð bæði í kirkjunni og í veislunni þó Ásdísi fyndist öruggara að hafa mömmu sína nálægt.

Núna er fysta vinnuvikan hjá Jobba að verða liðin, honum líkar vel þó mér hafi fundist frekar mikið skrítið að hafa hann ekki heima, er greinilega orðin alltof góðu vön því helst hefði ég viljað að við gætum bara alltaf verið bæði heima. Þá er ég nú hrædd um að ekki myndi nú ganga svo vel að kaupa okkur bíl, byggja og reka heimili. Núna erum við því orðin FULLORÐIN!! Veit ekki alveg hvernig mér líkar það, en það hlýtur nú að venjast...

Verð nú bara að segja að ég sakna Danmerkur gríðarlega þessa dagana, sakna þess að "eiga" mína eigin íbúð, sakna ódýra matsins, sakna þess að hafa Jobba heima og sakna rólega samfélagsins, þó ég sé nú ennþá í nokkuð rólegu tempói, fór meira að segja í strætó í gær inní Reykjavík, þótti ekki tiltökumál nema hefði verið betra að taka strætóinn í Kópavoginum í rétta átt og sleppa við að rúnta upp að Vatnsenda í strætó. Ég lét þetta smáatvik þó ekki taka mig úr jafnvægi og skellihló því bara að þessum mistökum mínum. Næst veit ég þó allavega hvernig ég kemst hjá því að gera þessa vitleysu;)

Skrifaði eyrunl þann 19.05.06 11:22
Ummæli

Maður er búinn að bíða spenntur eftir einhverju bloggedí bloggi frá ykkur.

Ég er alltaf spennt að sjá hvort það séu ekki komin einhver ný hringtorg, þegar ég fer til Íslands. Þú hlýtur nú að hafa séð nokkur ný á leiðinni út á Vatnsenda :)

Skrifaði: Fjóla þann 19.05.06 13:56

Ég segi það sama og Fjóla, maður var búin að þurfa að bíða óþarflega lengi eftir færslu. Greinilegt hverjir það eru sem enn búa í rólegheitunum í Danmörku og geta hangið í tölvunni :)

Gangi ykkur vel með allt sem þið eruð að fara að framkvæma á Íslandi... og ekki gleyma að leyfa okkur hinum að fylgjast með því sem við eigum í vændum þegar við flytjum heim

Kveðja yfir hafið úr 12c

Skrifaði: Anna Karen þann 19.05.06 14:30

Spurning um að starta sínum eigin fréttamiðli hér :)

Var hjá lækninum í síðustu viku þegar hjúkkan sagði að stráksi væri orðinn svo stór og flottur. Ég var voða montin að hún þekkti okkur, þar til hún spurði hvort stelpan mín hefði það ekki gott.
Hún hélt sem sagt að ég væri þú með Birki!!! Svo ég sagði nú bara að þið væruð flutt, óggisslega móðguð :p

Þá var nú ekki hægt að segja að "tæplega ársgamalt barnið" væri stórt, í mínum huga a.m.k. Mig minnir að hún hafi sagt einhverja vitleysu við mig áður en nú man ég ómögulega hvað.

Kveðjur til allra

"Your 4th sister"

Fjólgerður

Skrifaði: Fjóla þann 24.05.06 13:10

hehe snilld, þessi læknir virkaði ekkert smá vel á mig fyrst en fór einmitt svo að koma með svona steypu öðru hvoru... Ég fór til hennar með þau bæði rétt áður en við fluttum og sagði henni þá að við myndum flytja eftir ca viku og kæmum því ekkert aftur.

Skrifaði: Eyrún þann 24.05.06 20:37

Hjúkkan sagði þetta ekki Ellen læknir ;p

Skrifaði: Fjóla þann 25.05.06 09:01

hehe ok smá mis hjá mér, hjúkkan vissi ekkert að við værum að fara að flytja.

Skrifaði: Eyrún þann 25.05.06 11:46