júní 25, 2006

Dekur, verkfræðingur og ferðalag...

Þegar það líður svona langt á milli blogga þá hefur oft margt gerst í millitíðinni. Um síðustu helgi fengum við Jobbi afhenta afmælis- og útskriftargjafirnar frá Margréti, Jóni og Alex. Fórum í Laugar spa í dekur og vorum svo bara allan daginn í baðstofunni á meðan Margrét passaði börnin okkar voða vel. Um kvöldið og nóttina pössuðu svo amma og afi á meðan við fórum austur á Þingvelli, borðuðum grillaðan humar og skemmtum okkur. Reyndar var ég svo þreytt að það var ekki mikið stuð á mér og ég fór nú bara nokkuð snemma (mjög snemma myndu sumir segja;)) að sofa. Fyrsta nóttin án barnanna gekk nú bara nokkuð vel, þó ég hefði nú helst vilja bruna í bæinn þegar ég vaknaði eldsnemma um morguninn. Þar sem þessi gjöf var bæði afmælis- og útskriftargjöf þá var einkar heppilegt að ég fékk þá vitneskju rétt áður að ég náði lokaverkefninu mínu og því búin að ljúka mínu verkfræðinámi og komin með næga menntun til að titla mig Verkfræðing:-)

Eftir að hafa dregið það alltof lengi að kaupa okkur bíl, fjárfestum við loksins í einum kagga í síðustu viku. Fyrir valinu varð silfurlitaður VW passat station, árgerð 2003. Á miðvikudagskvöldið, eftir að hafa átt bílinn í nokkra klukkutíma ákvað ég að skella mér norður strax morguninn eftir með börnin og skilja Jobba eftir þar til á föstudaginn. Þar sem okkar lengsta ferðalag með börnin í bíl undanfarið var upp í Mosfellsbæ, þá vissi ég nú ekki alveg hvernig þau myndu vera í svona löngu ferðalagi og fékk því Hólmar til að koma með rútunni frá Akureyri í Staðarskála og fara svo aftur til baka með okkur. Planið gekk svo vel upp að við vorum komin 10 mínútum á undan Hólmari í Staðarskála, en það var okkar fyrsta stopp á leiðinni því börnin sváfu bara mestan hlutann framan af. Eftir ágætis stopp lögðum við af stað og áfram sváfu börnin og við þurftum ekkert að stoppa aftur fyrr en við mættum til ömmu og afa á Akureyri. Þar sem þau sváfu svona vel er planið að keyra bara heim í kvöld og við vonumst auðvitað til að þau sofi bara heimleiðina af sér.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:41 FH | 6 Ummæli

júní 15, 2006

Afmælisveisla, 12 mánaða skoðun og dagmamma

Um helgina voru börnin sem betur fer orðin hitalaus og því ekkert til fyrirstöðu að gestirnir sem við vorum búin að bjóða kæmu og brögðuðu á því sem var búið að baka og sulla saman.Veislan heppnaðist bara mjög vel og við vel sátt við daginn. Fengum alveg fullt af flottum pökkum, takk fyrir okkur!!! Börnin eru alveg yfir sig hrifin af öllu nýja dótinu sínu og sína þess engin merki að sakna gamla dótsins sem er í kassa niðrí bílskúr.

Í gær kom loksins að 12 mánaða skoðuninni sem ég varð að fresta vikunni áður vegna veikinda. Þau fengu 2 sprautur, þar sem þau höfðu ekki fengið heilahimnubólgusprautuna úti í Danmörku. Þær voru 2 hjúkrunafræðingar og voru með sitt hvora sprautuna sem fór svo samtímis í sitthvort lærið hjá þeim. Birkir hætti mjög fljótlega að gráta og fór að leika sér á gólfinu en Ásdís hætti varla fyrr en hún sofnaði í vagninum þegar við vorum að leggja af stað heim. Þessi heimleið var nú síðan alveg sér kapitúli út af fyrir sig. Þvílíka skýfallið og rokið, þ.a. ég átti fullt í fangi með að ýta vagninum á undan mér og þegar ég var komin inn í Setbergið hélt ég á tímabili að ég kæmist ekki lengra, með rokið beint í fangið og að ýta þessum tæpum 50kg á undan mér.

Þar sem dagmamman sem ég minntist á um daginn ákvað að flytja líklegast til Reykjavíkur þurfti ég að byrja upp á nýtt að finna dagmömmu. Fann eina ekki langt frá Sléttahrauninu með 2 laus pláss og fór og skoðaði hjá henni í dag. Ætlaði að taka ákvörðun í síðasta lagi á morgun, en ég var varla komin heim þegar ég ákvað að þangað myndi ég vilja að börnin færu, hún virkaði bara alveg fullkomin og ég hringdi því í hana um leið og matartími barnanna var búinn og tók plássin:) Hún er á 1. hæð í blokk, með mikið pláss og ótrúlega almennileg. Börnin fóru fljótt að leika sér og vildu helst ekki koma aftur heim!! Ég ætti því að geta byrjað að vinna eins og planað er:)

Skrifaði eyrunl klukkan 01:44 EH | 2 Ummæli

júní 07, 2006

Afmælishrina í pestabæli

Nú erum við Jobbi bæði orðin árinu eldri. Jobbi fékk að vera "miklu" eldri en ég í einn dag, en svo ákvað ég að það væri nú ekkert gaman að vera svona mikið yngri lengur og varð því bara 27 ára líka. Birkir veiktist fyrir norðan á sunnudaginn í afmælisveislunni sinni og er ennþá lítill lasarus. Ásdís er svo núna að kvefast en ég vona að það verði ekki mikið meira en það. Birkir er nefnilega búinn að vera með e-a sýkingu í augunum og hita auk kvefs og hálsbólgu alveg síðan á sunnudaginn. Þetta hefur ekki verið okkar uppáhald, og þá sérstaklega ekki á nóttunni, síðustu tvær nætur eru búnar að vera heldur slæmar, en í nótt gátum við samt sofið á milli 1 og 5 en á undan og eftir var það e-ð takmarkað. Þrái núna LANGAN ótruflaðan svefn... sem ég ætti að fá þegar við Jobbi förum og gistum á hóteli fljótlega:) Jobbi fékk nefnilega að velja afmælisgjafirnar okkar frá okkur þetta árið, og við ætlum að fá pössun fyrir börnin, fara út á land, borða góðan mat og gista á hóteli!!! mmmm, sé það alveg í hyllingum:-)

Mamma og pabbi komu heim frá Noregi í gær, gáfu börnunum agalega gæjalegar hettupeysur og börnin fengu þá líka afmælisgjafirnar sínar frá þeim sem við mamma keyptum áður en þau fóru út. Í gær var ég alveg að skipuleggja hvað ég gæti nú gert í dag því mamma væri jú komin heim! Ég gleymdi bara að taka með í reikninginn að hún er að vinna í dag!!!

Skrifaði eyrunl klukkan 10:19 FH | 4 Ummæli

júní 02, 2006

Eitt ár liðið!!!

Litlu nýfæddu börnin mín eru ekki lengur smábörn, nei þau eiga sko eins árs afmæli í dag!! Fengu fyrstu pakkana í morgun frá okkur upp í rúmi og fengu svo líka pakka frá ömmu, afa og Hólmari. Verða agalega fín í Nike göllunum sínum frá þeim:) Annars var innihald pakkanna ekkert voða spennandi, krulluböndin voru töluvert mikið skemmtilegri og þurfti á endanum að fjarlægja þau til að fá börnin til að opna pakkana;) Í dag er svo planið að fara í sund og gera bara e-ð skemmtilegt. Verður svo haldið smá afmæli hérna á sunnudaginn, en um næstu helgi í Hafnarfirði.

Ég er búin að vera í smá sjokki undanfarið að ársafmælið sé svona skammt undan, en í morgun varð ég bara stolt, þurfti alveg að halda aftur af mér til að knúsa Ásdísi ekki til hamingju með afmælið þegar hún kom uppí í nótt, mátti auðvitað ekki vekja hana meira því hún átti að sofa áfram;)

Í fyrradag heimsótti ég Guðbjörgu og við vorum að ræða að við vorum hvorugar komnar með dagmömmu fyrir börnin okkar. Vorum hálf stressaðar yfir þessu en samt ekki farnar að drullast til að gera e-ð í málunum. Seinna um daginn rak systir Guðbjargar á eftir henni að hringja og viti menn, hún komin með dagmömmu. Í gærmorgun ákvað Guðbjörg því að ég skyldi líka hringja og sparkaði duglega í rassinn á mér og ég byrjaði að hringja. Gekk nú ekki vel til að byrja með, en endaði á að finna eina með 2 laus pláss sem býr rétt hjá þar sem við flytjum í sumar. Ætla að skoða hjá henni á þriðjudaginn, en hún virkaði mjög fín í símann þegar ég spjallaði smá stund við hana.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:03 FH | 6 Ummæli