júlí 31, 2006
Orðin ein eftir með börnin á Akureyri
Þá er Jobbi farinn aftur heim eftir helgarferð á Akureyri en við börnin ætlum að vera á Norðurlandinu þar til yfir verslunarmannarhelgina. Jobbi ætlar að koma aftur til okkar á föstudaginn og við ætlum að eyða helgi verslunarmanna úti í Hrísey í rólegheitum. Við höfum ekki farið út í eyju síðan áður en við fluttum út til Danmerkur svo það er nú kominn tími til. Við erum annars búin að hafa það ósköp gott hérna, börnin una sér vel og finnst æðislegt ef þau sleppa út af kaffistofunni á kaffihúsinu. Vilja þá helst hlaupa fram í eldhús og hjálpa afa sínum með uppvaskið eða hjálpa krökkunum að afgreiða kúnnana. Sagði í dag í gríni að við værum með fólk í vinnu við að týna þau upp af gólfinu því starfsfólkið á kaffihúsinu hefur stundum gripið þau á leiðinni e-ð aðeins of langt í burtu frá okkur.
Norðurleiðin á föstudagskvöldið gekk alveg ágætlega. Planið var að leggja af stað um kvöldmatarleytið og láta börnin sofa á leiðinni. Heppnaðist ljómandi að fá þau til að sofna en í Borgarnesi stoppuðum við til að skipta um ökumann (ég keyrði svo mikið sem frá Reykjavík til Borgarness á meðan Jobbi keyrði rest) og ég tók úr mér linsurnar svo ég gæti nú sofið á leiðinni. E-ð gekk það plan illa eftir því Ásdís vaknaði í Borgarnesi og vakti þar til í Skagafirðinum!! Í Varmahlíð ákváðum við að stoppa og kaupa handa henni e-ð að borða og athuga hvort það fengi hana til að sofna sem heppnaðist. Í Öxnadalnum voru tónleikar Sigur Rósar að klárast og reyndum að stoppa til að heyra í tónleikunum úr bílnum en við vorum rekin áfram af löggunni þar sem við máttum ekki fara niður á bílastæði og máttum ekki stoppa í vegarkantinum.
júlí 24, 2006
Lásinn er inn, út, inn, inn, út...
Þessa dagana erum við eins og jójó inn, út, inn, inn, út úr íbúðinni því elsku börnin okkar eru ÚTISJÚK!! Væri auðvitað lítið mál ef við ættum ennþá heima í yndislegu íbúðinni okkar á Trørød þar sem garðurinn er beint út, en af þriðju hæð verður þetta aðeins meiri pakki. Svo ég tali nú ekki um þegar kerran var upp á svölum í morgun og þurfti ég því að drösla kerrunni niður til að labba niður í bæ. Eftir útiveruna í morgun dröslaði ég svo kerrunni aftur upp til að láta börnin sofa. Þegar ég ákvað að fara labbandi til mömmu seinnipartinn, nennti ég ekki að koma kerrunni aftur niður, þ.a. ég var voða fegin að vagninn var niðri í hjólageymslu sem ég gat látið börnin sitja í á leiðinni upp í Setberg.
júlí 17, 2006
Flutt að heiman... aftur
Nú erum við fjölskyldan flutt á Sléttahraunið, netið farið að virka og komin með heimasíma. Fengum íbúðina í fimmtudeginum og sváfum hérna strax á föstudagskvöldinu. Þá var nú allt út um allt og vantaði t.d. ennþá öll hnífapörin þ.a. börnin borðuðu hafragrautinn á laugardagsmorgninum úr silfur rjómaskeið! Ennþá vantar e-ð af dótinu okkar, en þetta klárast ekki endanlega fyrr en við fáum bílskúrinn og getum farið að koma dóti í geymslu sem við ætlum ekki að hafa uppi við. Við flutninginn fengu börnin sitt eigið herbergi og sofa því ekki lengur inni hjá okkur. Í staðin erum við með 2 skrifborð í svefnherberginu, annað fyrir tölvuna og hitt fyrir saumavélina mína:-) Hlakka frekar mikið til að fara að prófa tryllitækið:)
Á þessum langa tíma síðan ég bloggaði síðast, hefur nú ýmislegt gerst. Það sem stendur upp úr (ekki á jákvæðu nótunum samt) er fyrsta ælupest barnanna sem ég ásamt flestum öðrum fjölskyldumeðlimum á Fagraberginu tók þátt í en Jobbi var sá eini sem slapp!! Mamma tók því upp á því að kalla þetta Akureyrarpestina því Jobbi hlyti að hafa fengið þetta e-n tímann áður og verið ónæmur og því var rökréttast að hann hefði e-n tímann fengið þetta á Akureyri og þaðan kemur nafnið:)
júlí 05, 2006
Eyrún eyðslukló...
Man að systir hennar Hrafnhildar kallaði mig alltaf Eyrúnu eyðslukló hérna í "gamla" daga eftir persónu í held ég Latabæ. Hef nú sjaldan staðið undir því nafni en undanfarna daga hefur hins vegar orðið breyting þar á. Berglind vinkona er með þessa líka snilldar sölu þar sem ég keypti og keypti. Fór síðan aftur daginn eftir með mömmu og systrum mínum (öllum þremur;)) þannig að þær gætu nú líka keypt. Ég fór með bara til að fara með þeim, en kom samt heim með tvo nýja boli. Þær keyptu sér alla e-n slatta og við mátuðum boli og var nánast rifist um hver mætti kaupa hvaða boli svo við myndum ekki allar eiga eins;) Í dag fór ég svo og eyddi smá pening í Smáralindinni, en það var svona meira nauðsyn...;)
júlí 03, 2006
Hótuð uppsögn
Jæja, þetta er orðið slæmt, búið að hóta manni uppsögn af bloggrúnti;) Þetta er svona þegar maður kemst varla í tölvuna því ég er alltaf að hugsa um börnin og nánast vonlaust að vera í tölvunni með þau hjá mér.
Í dag fórum við með litlu göngugarpana okkar í heimsókn til Benna, Írisar og litla 3ja vikna kútsins þeirra. Auðvitað alveg gullfallegur og krúttlegur:-) Venjulega þegar maður fær að kíkja í heimsókn á nýfædd börn er frekar að maður mæti með e-ð snarl með sér, en neinei þau buðu okkur í mat!! Fengum þannig nýja hugmynd af fáránlega einföldum mat, sem á sama tíma er alveg hrikalega góður!!
Þar sem við foreldrarnir erum algjörir sundgarpar (finnst gott að fara í sund, þó við nennum ekki endilega að synda lengur...;)) þá erum við búin að koma börnunum okkar upp á lagið og núna finnst þeim sundið eitt það skemmtilegasta sem þau gera. Þau skelltu sér meira að segja sjálf út í laugina og fannst ótrúlegt sport. Fórum um síðustu helgi í bæði nýju Salalaugina í Kópavogi og svo í Suðurbæjarlaugina. Þvílíkur munur á þessum tveimur sundlaugum. Salalaugin þvílíkt fín, hlý og meiriháttar á meðan það var kalt í Suðurbæjarlauginni, bæði inni í búningsklefum, sturtum og hjá innilauginni og svo þarf maður að fara framhjá ísköldum útganginum. Hér eftir leggjum við því leið okkar í Kópavoginn til að fara í sund.