júlí 05, 2006
Eyrún eyðslukló...
Man að systir hennar Hrafnhildar kallaði mig alltaf Eyrúnu eyðslukló hérna í "gamla" daga eftir persónu í held ég Latabæ. Hef nú sjaldan staðið undir því nafni en undanfarna daga hefur hins vegar orðið breyting þar á. Berglind vinkona er með þessa líka snilldar sölu þar sem ég keypti og keypti. Fór síðan aftur daginn eftir með mömmu og systrum mínum (öllum þremur;)) þannig að þær gætu nú líka keypt. Ég fór með bara til að fara með þeim, en kom samt heim með tvo nýja boli. Þær keyptu sér alla e-n slatta og við mátuðum boli og var nánast rifist um hver mætti kaupa hvaða boli svo við myndum ekki allar eiga eins;) Í dag fór ég svo og eyddi smá pening í Smáralindinni, en það var svona meira nauðsyn...;)
Skrifaði eyrunl þann 05.07.06 22:29Til hamingju með öll fötin. Hlýtur að vera að gaman að eyða svona "litlum" peningum í jafn mikið af dóti.
Njóttu veðursins í dag, gæti verið síðasti sumardagurinn, hehe;)
Skrifaði: Guðbjörg þann 07.07.06 09:56Það versta við að byrja að eyða er að maður kemst svo ansi fljótt upp á lag með það. Hver veit nema nafnið Eyrún eyðslukló komi til með að festast við þig ef þú ferð oft til Berglindar :)
Skrifaði: Anna Karen þann 08.07.06 22:58Iss er ég bara duglegri en þú að blogga og þó er ég löt!!!
Skrifaði: Margrét besta frænka þann 15.07.06 07:58