ágúst 31, 2006

Ég er hetja!!!

Alveg satt, allavega sá ég auglýsingaplakat hvort spurt væri hvort fólk vildi verða hetja. Til þess þurfti bara að gefa blóð, en það var akkúrat það sem ég gerði loksins í dag eftir 3ja ára hlé. Þetta er sko minnsta mál í heimi. Þar sem ég hafði eignast börn síðan ég gaf síðast blóð, þá þurfti ég að fara í blóðprufu fyrst og blóðprufurnar eru sko meira mál en sjálf blóðgjöfin. Allavega finn ég aldrei neitt fyrir sjálfri blóðgjöfinni, nálarnar eru breiðari en þær eru beittari og miklu betri:) Svo finn ég ekki heldur ekki fyrir þessu, maður er með svo mikið af blóði í kroppnum:)

Í dag fékk ég að njóta góða matarins hjá Símanum en gat líka bölvað fyrirtækinu fyrir að vera klúðrarar klúðraranna. Á föstudaginn var pantaður fyrir mig gemsi sem átti að koma til mín á mánudag. Á miðvikudag hafði ég ekkert heyrt og fór að forvitnast. Þessu átti að redda og ég myndi fá þetta til mín í dag. Jújú, ég fékk símann í dag, en því fylgdi ekkert SIM kort!!! Þegar ég frétti að það átti að senda bílstjóra niðrí Ármúla (sama hús og Jobbi vinnur í) til að ná í SIM kortið, þá lét ég bara Jobba ná í það og núna er ég því komin með nýjan gemsa:) Alveg eins sími og Jobbi á (það er nú í lagi þar sem við eigum ekki eins jogginggalla;)) og númerið er líka svipað.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:18 EH | 0 Ummæli

ágúst 26, 2006

Ég er svoooo ánægð!!!:-)

Þegar ég mætti í vinnuna í gærmorgun, var ég að fara að vera ein heima með börnin fram á sunnudagskvöld, frétti síðan í kringum hádegið að Jobbi kæmi í síðasta lagi heim á laugardagskvöldið en þegar ég labbaði út úr vinnunni hafði það enn á ný breyst og ég sótti hann strax í gærkvöldi!!! Ekki lítil gleði á okkar heimili því núna:-) Hann verslaði alveg slatta fyrir börnin, bæði föt og leikföng og hitti allt vel í mark (fötin hjá mér og dótið hjá börnunum;))

Í kvöld þegar ég var að hátta Ásdísi fannst mér hún heldur heit og komst þá að því að hún er með 39°C þ.a. hún er nú ekki mikið á leiðinni í afmælið sem við erum boðin í á morgun. Vona bara að hún hressist á morgun þ.a. hún komist til dagmömmunnar á mánudaginn, annars er það Jobbi sem fær að taka sinn fyrsta veikindadag barna, þar sem ég er nú bara rétt byrjuð að vinna.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:11 EH | 1 Ummæli

ágúst 23, 2006

Litlu snillingarnir mínir

Eftir "smá" bakslag hjá dagmömmunni í síðustu viku, byrjuðum við eiginlega aðlögunina upp á nýtt og það er þvílíkur munur núna að fara með börnin. Í gær grétu þau hvorugt í fyrsta skipti í langan tíma þegar ég fór en horfðu samt á mig fara út um hurðina og í morgun toppaði Ásdís það heldur betur og lokaði hurðinni á eftir mér!!!! Ekkert smá frábært hvað það virðist vera ganga vel, hef reyndar smá áhyggjur að það komi þá stórt bakslag þegar þau fara á leikskólann svona nýbyrjuð hjá dagmömmunni... Dagmamman er svo æðisleg að ég er alveg í klemmu yfir því að setja þau á leikskóla, eins gott að þeim líki vel þar líka og verði vel hugsað um þau. Kostirnir við að þau fari á leikskóla eru alveg nokkrir (myndi auðvitað annars bara hafa þau hjá dagmömmunni), þau geta byrjað hálf 8, þ.a. við getum verið farin af stað í vinnuna áður en stíflan byrjar á leiðinni til Reykjavíkur, það er ódýrara og leikskólinn er við hliðina á blokkinni, þ.a. þó ég sé ekki tilbúinn getur Jobbi hlaupið með þau á leikskólann á meðan ég klára að verða til.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:47 FH | 0 Ummæli

ágúst 20, 2006

Grasekkja

Næstu vikuna verð ég ein með börnin þar sem Jobbi er stunginn af til London. Hlutirnir eiga það til að gerast allir á sama tíma og þessa dagana er að mér finnst einum of mikið að gerast. Börnin eru að aðlagast hjá dagmömmunni, þegar ég frétti að börnin eru komin inn á leikskóla og byrja eftir 2 vikur!! Jobbi er í útlöndum og ég byrja að vinna í sömu vikunni!! Við erum LOKSINS búin að fá bílskúrinn, aulinn sem var með hann áður skilaði honum ekki nema rétt tæpum þremur vikum of seint! Það þýddi að í gærkvöldi hentumst við til að tæma dótið úr bílskúrnum hjá pabba því þeim vantaði orðið skúrinn og núna þarf ég því að fara í gegnum afganginn af dótinu okkar. Svo vorum við í eins árs afmæli í dag og annað eins árs afmæli á morgun. Bjargaði mér reyndar snilldarlega ein í afmælinu í dag með því að mæta bara með tvö matarstóla með mér fyrir börnin, þá gat ég fengið mér smá að borða í rólegheitunum á meðan þau borðuðu:)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:12 EH | 2 Ummæli

ágúst 16, 2006

Pissað og kúkað á parketið

Spaði fékk að koma í pössun til okkar seinni partinn í dag. Við Jobbi vorum á leiðinni í Laugardalinn með börnin og Hans Adolf þegar Margrét hringdi og spurði hvort ég gæti reddað henni. Ég náði því í hann og við skelltum okkur í göngu. Þegar um 11 vikna hvolp er að ræða sem ekki er orðinn vanur að ganga í taumi þá var þetta nú svona pínu skrautlegt;) Þegar við komum heim þá þurfti hann að þefa af hverju einasta horni og endaði á því að kúka á gólfið!!! Hann endaði á að sofna og svaf alveg þar til Margrét kom og vakti hann. Það var þá sem hann meig undir stól inní stofu!! Ef e-r skyldi vera í vafa þá er Spaði ekki alveg orðinn húsvanur ennþá, en það er verið að venja hann:) Á morgun mætir svo litla dýrið til okkar fyrir klukkan 7 í fyrramálið.

Það er alveg kostulegt að fylgjast með Ásdísi og Birki leika við Spaða. Birkir eltir Spaða alveg þangað til Spaði fer að elta hann, þá hættir honum að vera sama og hleypur undan. Ásdís hagar sér allt öðruvísi, hún eltir hann yfirleitt ekki mikið en fer heldur ekki í alveg jafn mikið kerfi ef hann nálgast hana. Spaði reynir stundum að sleikja Ásdísi og þá reynir hún af veikum mætti að ýta honum frá sér á meðan hún yfirleitt skellihlær:)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:02 EH | 1 Ummæli

ágúst 14, 2006

Dugnaður

Þvílíkt og annað eins hefur nú varla sést lengi. Um helgina fór upp hilla í barnaherbergið þ.a. rifni pappakassinn sem var undir dót barnanna hefur fengið að fjúka. Í staðin fyrir rúmteppið sem við hengdum alltaf yfir gardínustöngina eru núna líka komnar gardínur, þ.a. barnaherbergið lítur nokkuð betur út núna:) Fékk líka tækifæri til að nota nýju fínu saumavélina mína til að malla saman gardínurnar:) Þvílíkt tryllitæki!!:-) Þar sem þessi verk eru búin að hanga yfir okkur ansi lengi, þá er ég þokkalega sátt núna við að þetta sé komið upp.

Við börnin erum á leiðinni út þegar þau vakna, að hitta Bínu, Berglindi, Helgu Björt og co. Ekki nóg með það heldur erum við svo boðin í mat til Margrétar og Jóns í kvöld til að kíkja á Spaða, litla nýja hundinn þeirra. Verður forvitnilegt að sjá hvort börnin verði hræddari við Spaða heldur en hann við þau;)

Skrifaði eyrunl klukkan 02:40 EH | 0 Ummæli

ágúst 11, 2006

Með hor- og hnerrkveðju

Það lætust litlir púkar í heimsókn til mín í gær, algjörlega í óþökk gestgjafans. Ég þoli ekki svona kvefpestir, maður er bara kvefaður, en samt eins og undin tuska. Til að bæta gráu ofan á svart, svaf Birkir alveg einstaklega illa og var uppí hjá okkur því hann var alltaf að vakna grátandi og við því ennþá myglaðari en annars. Ljósi punkturinn í deginum er hins vegar nokkuð stór:) Þar sem Jobbi var ekki farinn í vinnuna rúmlega 8, ákváðum við að hann færi með okkur til dagmömmunnar klukkan 9. Eftir 20 mínútur með börnunum þar, kvöddum við þau og það var ekki grátið eitt tár!!! Ásdís vinkaði okkur bara bless, og Birkir kippti sér nú ekki mikið upp við að við værum að fara, hann var svo upptekinn að leika sér. Um 10 leytið fékk ég hins vegar símtal frá dagmömmunni um að Birkir væri nú sofnaður, kannski ekki skrítið eftir heldur erfiða nótt en þar sem það gekk svo vel með Ásdísi var ákveðið að hann mætti bara sofa í vagni hjá henni.

Nýyrði dagsins er kjaftlaus, en það kom frá mér eftir að við komum út frá dagmömmunni og Ásdís hafði bara vinkað okkur bless. Ég skeytti s.s. saman kjaftstopp og orðlaus og fékk þetta líka fína orð;)b

Skrifaði eyrunl klukkan 11:16 FH | 2 Ummæli

ágúst 09, 2006

Litlir tannálfar

Á tæpum mánuði hafa hrúgast niður nýjar hjá báðum börnunum okkar. Ásdís hefur fengið þrjár nýjar tennur og er núna komin með 8 tennur (4 í efri góm og 4 í neðri góm). Birkir hefur hins vegar fengið 7 nýjar tennur og er núna kominn með 14 tennur (8 í efri góm og 6 í neðri góm), hann er líka búinn að slefa heldur mikið undanfarna daga. Áður en þessi tannhrina hófst, hafði ekki komið upp tönn í 2 mánuði.

Nú eru Guðbjörg, Vignir og Jökull Örn flutt í nýju íbúðina sína, TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!! Hlökkum til að fá að sjá ykkur og íbúðina ykkar:)

Skrifaði eyrunl klukkan 08:45 FH | 2 Ummæli

ágúst 08, 2006

Fyrsta dagmömmuheimsóknin

Í morgun fórum við þrjú í heimsókn til Hansínu dagmömmu. Birkir lék sér nokkuð mikið að dótinu en kvartaði þó þegar hann mátti ekki fara í ruslaskápinn og mætti því til mömmu að klaga. Fékk nú ekki miklar undirtektir þ.a. hann hélt bara áfram að leika. Ásdís vildi nú bara helst vera í mömmufangi, en lét sig síðan hafa það að leika líka með dótið þó hún væri með radar á mömmu sinni og kíkti mjög reglulega á mig. Förum aftur á morgun og svo á fimmtudaginn er planið að skilja þau í fyrsta skipti eftir.

Komum annars heim í nótt eftir góðan tíma á Norðurlandinu. Helgin var algjört æði í Hrísey og við fórum svo í sund á Akureyri í gær og kvöldmatur hjá ömmu og afa Akureyri áður en við lögðum í hann. Ferðin gekk eins og í sögu, börnin sváfu alla leiðina og ég svaf frá Blönduósi. Í staðin fékk Jobbi að sofa út í morgun.

Skrifaði eyrunl klukkan 01:59 EH | 0 Ummæli

ágúst 01, 2006

Dagmömmubörn

Í dag eru börnin mín formlega orðin dagmömmubörn (þ.e. eiga pláss hjá dagmömmu) en þau byrja samt ekki fyrr en eftir verslunarmannarhelgi. Núna eftir einn sólarhring á þeytingi á eftir krökkunum, passandi að þau hlaupi ekki niður stigann, fikti ekki í gólfhitakerfinu og hendi ekki niður einum af skrilljón gólflömpunum og Jobbi langt í burtu og lítinn svefn í nótt get ég alveg sagt að það verður ágætt að fá ogguponsu pásu. Drullukvíði nú samt fyrir að þurfa að láta þau svona mikið í pössun. Ef ég byggi í mínum eigin draumaheimi, myndi ég vinna frá 9-14 með forstjóralaun. Þá fengi ég minn pening sem þarf til að byggja hús, ég myndi hitta fullorðið fólk og nota heilann aðeins en mikilvægast af öllu fengi ég að vera meira með börnunum mínum.

Á morgun ætlum við börnin að flytja okkur yfir í Skagafjörðinn í sumarbústað með ömmu, afa, Agnesi og Hans Adolfi. Ætla að láta það svolítið ráðast hvort ég komi aftur á fimmtudag eða föstudag en Jobbi kemur einmitt svo aftur á föstudaginn.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:50 EH | 4 Ummæli