ágúst 26, 2006
Ég er svoooo ánægð!!!:-)
Þegar ég mætti í vinnuna í gærmorgun, var ég að fara að vera ein heima með börnin fram á sunnudagskvöld, frétti síðan í kringum hádegið að Jobbi kæmi í síðasta lagi heim á laugardagskvöldið en þegar ég labbaði út úr vinnunni hafði það enn á ný breyst og ég sótti hann strax í gærkvöldi!!! Ekki lítil gleði á okkar heimili því núna:-) Hann verslaði alveg slatta fyrir börnin, bæði föt og leikföng og hitti allt vel í mark (fötin hjá mér og dótið hjá börnunum;))
Í kvöld þegar ég var að hátta Ásdísi fannst mér hún heldur heit og komst þá að því að hún er með 39°C þ.a. hún er nú ekki mikið á leiðinni í afmælið sem við erum boðin í á morgun. Vona bara að hún hressist á morgun þ.a. hún komist til dagmömmunnar á mánudaginn, annars er það Jobbi sem fær að taka sinn fyrsta veikindadag barna, þar sem ég er nú bara rétt byrjuð að vinna.
Skrifaði eyrunl þann 26.08.06 22:11Til hamingju med leikskolaplassin. Verdur spenno ad fa ad fylgjast med hvernig gengur thar. Katarina er lika komin med Vuggestue plass og nu tharf ad taka akvordun um hvort hun eigi ad byrja thar eda ekki.
Kv AKA
Skrifaði: Anna Karen þann 28.08.06 07:07