ágúst 23, 2006
Litlu snillingarnir mínir
Eftir "smá" bakslag hjá dagmömmunni í síðustu viku, byrjuðum við eiginlega aðlögunina upp á nýtt og það er þvílíkur munur núna að fara með börnin. Í gær grétu þau hvorugt í fyrsta skipti í langan tíma þegar ég fór en horfðu samt á mig fara út um hurðina og í morgun toppaði Ásdís það heldur betur og lokaði hurðinni á eftir mér!!!! Ekkert smá frábært hvað það virðist vera ganga vel, hef reyndar smá áhyggjur að það komi þá stórt bakslag þegar þau fara á leikskólann svona nýbyrjuð hjá dagmömmunni... Dagmamman er svo æðisleg að ég er alveg í klemmu yfir því að setja þau á leikskóla, eins gott að þeim líki vel þar líka og verði vel hugsað um þau. Kostirnir við að þau fari á leikskóla eru alveg nokkrir (myndi auðvitað annars bara hafa þau hjá dagmömmunni), þau geta byrjað hálf 8, þ.a. við getum verið farin af stað í vinnuna áður en stíflan byrjar á leiðinni til Reykjavíkur, það er ódýrara og leikskólinn er við hliðina á blokkinni, þ.a. þó ég sé ekki tilbúinn getur Jobbi hlaupið með þau á leikskólann á meðan ég klára að verða til.
Skrifaði eyrunl þann 23.08.06 09:47