september 30, 2006

Magnað stuð og magnaðir tónleikar

Í gær varð Síminn 100 ára og bauð því til heljarinnar veislu fyrir starfsmenn og maka milli 5 og 7 í gær. Í fyrradag komu síðan boðsmiðar á tónleikana á Broadway með Magna, Dilönu og Á móti sól. Eftir afmælið vorum við hvorug í ökuhæfu ástandi og röltum upp á Broadway. Þar skemmtum við okkur konunglega, fann engan mun á því að vera þarna á milli 8 og 10 eða eftir miðnætti. Við tróðum okkur fremst og létum eins og verstu grúppíur;) Þrátt fyrir að vera með næturpössun, fórum við nú bara beint heim og fljótlega í háttinn... svona er maður slappur;)

Þegar við keyrðum að Laugardalshöllinni í gær, þá lentum við í töluverðri biðröð að komast yfir beygjuljósin af Suðurlandsbrautinni og ég minntist á að það hefði nú kannski verið gáfulegt að beygja bara hjá Grand Hótel Reykjavík. Í dag þegar við fórum að ná í bílinn um miðjan dag, þá hugsaði ég út í stífluna sem hafði verið daginn áður, en það gæti nú bara ekki verið að það væri e-ð erfitt að komast yfir ljósin núna. Ég átti eftir að verða fróðari, því það var víst bikarúrslitaleikur að byrja á laugardalsvelli korteri seinna!!!

Skrifaði eyrunl klukkan 10:01 EH | 1 Ummæli

september 20, 2006

Gekk inn á nakinn mann í blokkinni!!!!

Jújú, mín getur nú verið ansi óheppin og gærdagurinn var engin undantekning frá þeirri reglu. Ég var heima með Birki nokkuð sprækan en Ásdísi fasta á handleggnum sökum veikinda þegar ég heyri í háværu hljóði af ganginum sem ég giska á að sé reykskynjari. Ekki lætur Eyrún eldhrædda það vera að athuga málið og þegar ég opna fram á gang er galopin hurðin inn í íbúðina á móti og þar pípti reykskynjarinn. Ég banka á hurðina en verð ekki vör við að neinn sé í íbúðinni. Finn enga reyklykt en fer inn í íbúðina til að athuga hvað valdi þessu væli í skynjaranum. Þegar ég kem inn á svefnherbergisganginn er galopið inn á baðherbergið þar sem karlmaður var greinilega að koma úr sturtu!! Hann hélt nú sem betur fer á handklæði fyrir framan heilagasta svæðið, en mér brá svo að ég snéri mér bara við og beinustu leið út aftur!! Kannski vissi hann ekki að það var opið fram og gang og heldur því að ég hafi ráðist inn í íbúðina, en ég gat bara ekki með neinu móti farið að útskýra málið fyrir honum á þessum tímapunkti!!

Af veikindum barna okkar er það helst að frétta að Birkir fékk nú bara hita í eitt kvöld og hefur annars verið eiturhress. Ásdís hins vegar var með rúmlega 39°C í 3 daga, var með minni hita í gær en e-r óútskýrð vanlíðan olli því að hún grét nánast stanslaust frá hádegi í gær fram undir morgun. Svaf nú sem betur fer aðeins í nótt en rauk alltaf reglulega upp með þvílíkum gráti. Í morgun var hún svo aftur komin með 39,4°C og komin með útbrot um allan líkamann og hafði ekkert borðað síðan e-ð smá í gærmorgun þ.a. ég fór aftur með hana niður á heilsugæslu. Enn og aftur fannst ekkert annað að en bara flensa sem ég má búast við að taki um viku að ganga yfir!! Í dag svaf hún svo bara að mestu, vaknaði reglulega upp og vildi láta halda á sér og sofnaði svo í fanginu á mér. Þegar Jobbi kom heim seinnipartinn hafði Ásdís ekki stigið í fæturnar í allan dag, því hún var svo lítil í sér og máttfarin. Þar sem hún hafði sofið meira og minna frá hálf 9 til 4 í dag, var ég ekki alveg viss hvort hún myndi vilja fara að sofa klukkan 8, en jújú rúmlega 7 sýndi hún þreytumerki og rúmlega hálf 8 var hún sofnuð, reyndar í fanginu á mér en það er smá dekurmeðferð í gangi þar sem hún er lasin;) Þar sem ég svaf heldur lítið síðustu nótt, og heldur ekkert allt of mikið næturnar þar á undan þá er ég farin í háttinn núna, eins gott að nýta tímann á meðan börnin sofa vel og sofa bara sjálf líka.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:02 EH | 2 Ummæli

september 17, 2006

Mánudagsveikin heldur áfram...

Það er nú ekki kominn mánudagur ennþá, en við erum nú samt búin að átta okkur á því að börnin fara ekki í leikskólann á morgun, og í þetta skiptið hvorugt þeirra. Ásdís vaknaði með hita í gærmorgun og eftir að hafa verið enn og aftur með háan hita og ferlega slöpp fórum við á heilsugæslustöðina með hana. Læknirinn þar gat útilokað streptókokka en sendi okkur inn á bráðamótöku barna til að útiloka þvagfærasýkingu og e-ð fleira. Eftir nokkra tíma þar fengum við að fara heim án frekari skýringa á þessum endurteknu veikindum. Ég gat nú alveg sannfært mig um að ég væri ekki alveg paranojuð mamma að fara á heilsugæsluna, en eftir að hún sendi okkur inn á barnaspítala var mér farið að líða aðeins eins og ég væri þvílíkt paranójuð.
Í dag var Birkir síðan orðinn frekar slappur líka og er núna kominn með rúmlega 38°C þ.a. þau fara hvorugt á leikskólann á morgun. Ég sé fyrir mér að veikindadagarnir okkar vegna barna verði búnir áður en mánuðurinn verður á enda með þessu áframhaldi!!!

Skrifaði eyrunl klukkan 07:42 EH | 2 Ummæli

september 13, 2006

Tvíburavangaveltur

Síðan ég frétti að við ættum von á tvíburum hef ég hugsað mikið um alls konar málefni tengd tvíburum. Nöfnin, ættu þau að vera í "stíl" eða í setti (eins og Hans og Gréta og þess háttar) eða hafa sömu byrjun, eða byrja á A og B eftir því hvort fæddist á undan o.s.frv? Við ákváðum að gera ekkert af þessu því börnin væru tveir ólíkir einstaklingar, það að nöfn barna okkar byrji á B og Á hefur ekkert að gera með í hvaða röð þau fæddust, við völdum nöfnin í sitthvoru lagi og þegar Birkis nafnið var ákveðið kom ekki til greina að Ásdís fengi nafn sem byrjaði á A. Hættum næstum því við Ásdísar nafnið þar sem þetta var næstum því A og B nöfn, en ákváðum svo að velja frekar bara eftir því hvað okkur fannst fallegast.

Sérstaklega eftir að þau fæddust hef ég hugsað töluvert um hvað þau eru kölluð. Ég vil að það séu notuð nöfnin þeirra og ég tala aldrei um þau sem tvíburana því mér finnst það svo ópersónulegt. Ég segi vissulega stundum að þau séu tvíburar, en það er þá bara til upplýsinga fyrir fólk sem ekki veit að ég á tvíbura. Jobbi á t.d. tvíburafrændur (eineggja sem ég get engan veginn þekkt í sundur) sem ég vissi lengi vel varla hvað hétu því þeir voru alltaf kallaðir tvíbbó. Að kalla börnin mín alltaf bara tvíburana finnst mér nógu slæmt, en afbakanir af því eins og t.d. tvíbbó finnst mér ennþá verra. Fæ alveg gæsahúð og hroll við tilhugsunina.

Af sama meiði er þegar sagt er þeir í staðin fyrir þau. Ásdís er stelpa og Birkir er strákur og það gerir skv. minni íslenskukunnáttu að þau eru þau en ekki þeir. Aldrei myndi fólk spyrja foreldra tveggja stráka "hvað eru þau gömul?" (sem vísun í að þetta eru 2 börn, og maður segir þau börnin), eða foreldra tveggja stelpna "hvað eru þeir gamlir?" (þá með vísun í að þetta séu tveir krakkar og maður segir þeir krakkarnir). Þess vegna skil ég ekki alveg hvers vegna fólki finnst í lagi að tala um börnin mín sem þeir, eins og þau séu tveir strákar.

Eitt sem ég hef sjálf ekki orðið mikið vitni að, en heyrt frá öðrum tvíburaforeldrum, er þegar fólk gefur tvíburum eina gjöf. Stundum geta tvíburar grætt á því að fá eina gjöf saman eins og þegar Ásdís og Birkir fengu risa pakka með römbu í, frá Margréti systur minni. En eins og þegar ég heyrði af tvíburasystrum sem fengu eitt silfuralbúm í skírnargjöf saman. Hvor á eiginlega að eiga það þegar þær eldast? Í eins árs afmæli hafa börnin ekki mikið vit á því hvort þau fái eins, einn pakka eða sitt hvorn pakkann, en strax við tveggja ára aldur og uppúr getur þetta skapað mikil leiðindi fyrir börnin og auðvitað vilja allir foreldrar forða börnum sínum frá því að upplifa það.

Á aðeins jákvæðari nótunum, þá er ég búin að ákveða hvernig tveggja ára afmælissöngur barna okkar verður sunginn, það lærði ég í tvíburagrúppu sem ég er í. Þá er fyrsta erindið

Hann á afmæli í dag,
Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli hann Birkir,
hann á afmæli í dag.

Næsta erindi er þá

Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Ásdís,
hún á afmæli í dag

Þriðja og síðasta erindið er svo

Þau eru tveggja ára í dag,
þau eru tveggja ára í dag,
þau eru tveggja ára bæði,
þau eru tveggja ára í dag.

Svo af því að ég vil ekki gera upp á milli, hvort nafnið er alltaf á undan, þá er það bara sitt á hvað eftir afmælum hvort þeirra fær fyrsta og hvort fær annað erindið:)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:39 EH | 5 Ummæli

september 12, 2006

Mánudagsveikin

Þrjár vikur í röð erum við búin að vera heima á mánudegi vegna veikinda barna!! Sem betur fer hafa þessi stuttu veikindi barnanna hitt vel saman við að mamma vinnur bara fyrir hádegi á mánudögum og ekki á þriðjudögum, því Ásdís var líka heima í dag. Þetta hefur því reddað okkur og sparað okkur 2 og hálfan veikindadag barna, og ég rétt búin að vinna í rúmar 2 vikur. Talandi um vinnu, þá er ég svo niðursokkin í verkefni að ég kom ekki heim fyrr en um hálf 8 í gærkveldi. Varð líka að afþakka ferð upp í Sultartanga í dag af sömu ástæðu, en ég gat ekki heldur farið upp í Blöndu um daginn því þá átti ég bókaðann fund með Gæðastjóranum.

Annars er nú ósköp lítið að frétta af okkur, við erum svona að komast í gírinn með að vera bæði útivinnandi, búið að vera frekar mikið púsluspil þar sem þau eru ennþá í aðlöguninni og svo ég tali nú ekki um út af þessum veikindum. Það hefur þýtt nokkrar strætóferðir fyrir 7 á morgnana til að ná sæmilegum tíma í vinnunni áður en við höfum farið snemma heim til að sækja börnin. Verður örugglega allt auðveldara, þegar við verðum öll komin í fastari rútínu.

Skrifaði eyrunl klukkan 08:27 EH | 2 Ummæli

september 01, 2006

Dýrasti leikskóli Íslands?

Maður gæti spurt sig hvort ég sé að láta börnin mín á lang dýrasta leikskóla landsins eftir að hafa fengið fyrsta reikninginn fyrir september mánuð. Skv. gjaldskrá leikskólans áttum við nú alveg að hafa efni á því að hafa börnin þarna allan daginn, en það breyttist heldur betur í dag. Ég fékk nefnilega reikning upp á 1.246.483kr fyrir einn mánuð!!! Ég var nú ekki lengi að hringja og spyrja út í þetta, þá kom í ljós að leikskólastýran hafði skráð að Ásdís yrði 8,5 tíma á dag en Birkir 850 tíma á dag!!! Þessi líka fína vitleysa komst síðan alla leið í póstkassann til mín.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:08 EH | 3 Ummæli