september 01, 2006
Dýrasti leikskóli Íslands?
Maður gæti spurt sig hvort ég sé að láta börnin mín á lang dýrasta leikskóla landsins eftir að hafa fengið fyrsta reikninginn fyrir september mánuð. Skv. gjaldskrá leikskólans áttum við nú alveg að hafa efni á því að hafa börnin þarna allan daginn, en það breyttist heldur betur í dag. Ég fékk nefnilega reikning upp á 1.246.483kr fyrir einn mánuð!!! Ég var nú ekki lengi að hringja og spyrja út í þetta, þá kom í ljós að leikskólastýran hafði skráð að Ásdís yrði 8,5 tíma á dag en Birkir 850 tíma á dag!!! Þessi líka fína vitleysa komst síðan alla leið í póstkassann til mín.
Skrifaði eyrunl þann 01.09.06 21:08Þetta kalla ég frábæra frammistöðu hjá leikskólayfirvöldum. Ekki viss um að margir aðrir en Birkir hafi 850 tíma í sólarhringnum. haha....
Skrifaði: Anna Karen þann 02.09.06 06:37Whahahahahahahaa- jeminnnn eini... þetta er náttla hrikalega fyndið!!! Aumingjas barnið þokkalega BUSYYY í leikskólanum maður.... hahaha- og AUMINGJAS foreldrarnir að fá þennan líka "skemmtilega" reikning! Jaaahérna- ætli þetta hafi átt að verða nýr Gaflara-brandari??
Skrifaði: Helga Björt þann 03.09.06 15:31Hehe, já við erum allavega búin að hlægja vel og mikið af þessu. Spurning hvort þær telji að það fari 100 sinnum meira fyrir Birki og því reynt að rukka m.v. að hann væri 100 sinnum lengur í leikskólanum;)
Skrifaði: Eyrún þann 03.09.06 15:44