október 29, 2006

Lítið sjarmatröll

Hann Birkir sonur minn er svo mikið yndi. Við fjölskyldan skelltum okkur í sunnudagaskóla í morgun og þar fengu þau að leika nokkuð lausum hala eftir að þau voguðu sér niður á gólfið. Birkir gekk á milli allra bekkjanna, brosti undurblítt til þeirra sem þar sátu og sagði "hæææ". Hann fékk að sjálfsögðu bros til baka frá öllum, enda algjört krútt. Maðurinn sem var með myndavélina og Birkir skellti sér beint fyrir framan linsuna brosandi, brosti meira að segja til baka þó Birkir hafi algjörlega farið fyrir myndefnið (sem ég held að hafa verið dóttir hans). Tók bara mynd af Birki líka. Feimna dóttir mín, hún Ásdís varð líka bara nokkuð frökk eftir því sem leið á tímann, hún vildi fyrst bara hafa mömmu sína hjá sér og vildi helst hafa Birki líka hjá sér (sem var nú ekkert á því að vera kyrr, enda nóg að gera að heilla fullorðna fólkið á bekkjunum;)) en undir lokin var hún farin að klifra sjálf upp í tröppurnar og sitja ein með hinum krökkunum á meðan mamma var á gólfinu fyrir neðan tröppurnar (virkaði ekki alveg að mamman færi of langt í burtu og sæti með pabbanum á bekknum).

Seinnipartinn var okkur boðið í kaffi á Einivellina til Gunna, Ninu og Lilju Ránar. Var gott og gaman að hitta þau og Guðbjörgu og co. aftur eftir alltof langan tíma. Lilja Rán var orðin nokkuð sátt við mig, sýndi mér bækur og vildi koma í fangið á mér. Þegar við vorum á leið út bað hún mig um að taka sig og vinkaði pabba sínum bless. Var svo heldur stúrin þegar hún þurfti að fara aftur til pabba síns og segja bless við okkur;) Ásdís var hins vegar alveg einstaklega vælin og ég var orðin hrædd um að hún væri að verða enn og aftur lasin. Þegar við komum aftur heim lék hún síðan allt í einu á alls oddi og fór að gera allt sem hún veit að hún má ekki með glott á vör. Nú er hins vegar kominn háttatími og ég á leið í draumalandið. Spurning hvort mig dreymi á þýsku eins og síðustu nótt, íslensku eins og oftast eða dönsku. Nú svo gæti ég hugsanlega lært e-ð nýtt tungumál í draumi;)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:57 EH | 1 Ummæli

október 28, 2006

Enn ein vikan liðin

Þessar vikur líða alveg óheyrilega hratt, allavega finnst mér ótrúlega margar vikur liðnar síðan ég byrjaði að vinna. Í vikunni datt mér í hug að skrá börnin á námskeið hjá Hreyfilandi á laugardagsmorgnum og byrjaði námskeiðið í morgun. Við vorum hress og kát komin út í bíl rétt fyrir hálf 9 á laugardagsmorgni og keyrðum um nánast auðar götur því það voru greinilega ekki margir jafn morgunhressir og við;) Þegar við komum út um 10 leytið ákváðum við að athuga hvort Margrét væri ekki tilbúin að vakna og skelltum okkur í heimsókn til ekki alveg jafn morgunhressa liðsins;) Núna erum við mæðgurnar tvær einar á fótum þar sem feðgarnir eru að kúra saman. Er að spá hvort ég eigi að baka pönnslur eða hvort við eigum að drífa okkur e-ð út... veit bara ekki alveg hvert við ættum að fara út þ.a. ég er pínu lost akkúrat núna...

Skrifaði eyrunl klukkan 02:23 EH | 0 Ummæli

október 22, 2006

Til hamingju Bína, Logi og Bjartur!!!

Með litlu dótturina og systirina sem fæddisti í fyrrinótt. Fékk alveg fiðring í magann að skoða myndirnar af henni, hún er svo lítil og sæt og svo lík öllum í fjölskyldunni sinni. Auðvitað ansi skemmtileg tilviljun að við Bína höfum eignast síðustu 4 börnin í bónerhópnum og það var strákur, stelpa, strákur stelpa. Loksins þegar það byrjuðu að koma stelpur í hópinn:)

Þetta var annars fínn dagur sem litla daman valdi að koma í heiminn, því Kjartan sonur Fjólu og Ingólfs varð eins árs þennan sama dag. Vil ég því líka óska þeim til hamingju með afmælið á litla drengnum sem er ekki svo lítill lengur (allavega ekki miðað við nýfædda Logadóttir);)

Þessa helginu erum við við búin að vera á Akureyri í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa. Börnin orðin þokkalega sátt við ömmu sína og afa og afinn farinn að minnast á að taka þau ein í heila viku næsta sumar í ferð í húsbílnum, eigum nú alveg eftir að sjá það gerast að þau haldi svo lengi út;) Mömmuhjartað hugsar í dag mesta lagi helgi;)

Skrifaði eyrunl klukkan 12:46 EH | 3 Ummæli

október 10, 2006

Loksins, loksins nýjar myndir

Jájá það lifnaði við myndaalbúmin okkar í kvöld, ótrúlegt en satt. Var að setja inn myndir alveg frá mánaðarmótunum júní/júlí!!!! Ég lofaði tengdamömmu þetta fyrir svo löngu síðan að ég VARÐ að klára þetta áður en þau koma heim frá útlöndum núna í kvöld;)

Af okkur fjölskyldunni er annars allt fínt að frétta, mamman skellti sér á fyrsta fund hjá stjórn foreldrafélagi leikskólans í gærkveldi og í kvöld fengum við góða gesti í mat en Bjartur dró bumbumömmu sína (aka Bína) og pabba sinn í heimsókn til okkar. Krakkarnir voru nú öll frekar feimin til að byrja með en fóru nú svo að leika. Bjartur gat e-ð dröslað Ásdísi til og frá en Birkir varð heldur fúll þegar Bjartur reyndi að leiða hann e-ð áfram.

Ótrúlegt en satt er hvorugt barnið mitt lasið þessa stundina og Ásdís hefur ekki verið veik síðan á föstudagskvöldið. Ég þori auðvitað ekki einu sinni að vona að þetta sé yfirstaðið þ.a. ég er alltaf viss um að þurfa að redda næsta degi með veiku barni.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:44 EH | 3 Ummæli

október 04, 2006

Bíó... í fyrsta skipti síðan í fyrrasumar

Ótrúlegt en satt þá skellti ég mér í bíó í gær. Fór með mömmu þar sem Ingunn átti boðsmiða á "The Devil Wears Prada" sem hvorki hún né Hafdís gátu nýtt sér. Hún gleymdi reyndar að bjóða okkar þar til hálftíma í sýningu þ.a. við hentumst út. Skemmti mér alveg konunglega, þetta var líka nánast nýtt fyrir mér að koma inn í bíósal;)

Annars fór ég á undan bíóferðinni á foreldrafund í leikskólanum og er komin í stjórn foreldrafélagsins, fyrsti fundurinn strax í næstu viku:) Rétt áður en ég kom heim af leikskólanum, var ég að tala við starfsfólkið á deildinni hjá krökkunum um veikindin, sem ég var svo að vonast til að væru yfirstaðin. Það hlyti bara að vera þar sem þau væru orðin svo ferlega hress og kát. Þegar ég kom heim var Ásdís komin með hita, enn eina ferðina!!! Hún var ennþá með hita í dag og svo er skipulagsdagur í leikskólanum á föstudaginn þ.a. hún náði tveimur dögum í leikskólanum í þessari viku sem er það sama og í síðustu viku en vikuna þar á undan fór hún ekkert. Það saxast líka heldur hratt á veikindadag barna hjá okkur þó við séum að rembast við að vinna til skiptis. Í dag var ég ca 8-14 og Jobbi 14-20. Ég vann svo síðustu 2 tímana í kvöld þ.a. ég slapp alveg við að taka frí í dag. Þetta er reyndar ekki e-r ideal lausn þar sem maður rétt nær að slappa af yfir blánóttina.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:52 EH