október 04, 2006

Bíó... í fyrsta skipti síðan í fyrrasumar

Ótrúlegt en satt þá skellti ég mér í bíó í gær. Fór með mömmu þar sem Ingunn átti boðsmiða á "The Devil Wears Prada" sem hvorki hún né Hafdís gátu nýtt sér. Hún gleymdi reyndar að bjóða okkar þar til hálftíma í sýningu þ.a. við hentumst út. Skemmti mér alveg konunglega, þetta var líka nánast nýtt fyrir mér að koma inn í bíósal;)

Annars fór ég á undan bíóferðinni á foreldrafund í leikskólanum og er komin í stjórn foreldrafélagsins, fyrsti fundurinn strax í næstu viku:) Rétt áður en ég kom heim af leikskólanum, var ég að tala við starfsfólkið á deildinni hjá krökkunum um veikindin, sem ég var svo að vonast til að væru yfirstaðin. Það hlyti bara að vera þar sem þau væru orðin svo ferlega hress og kát. Þegar ég kom heim var Ásdís komin með hita, enn eina ferðina!!! Hún var ennþá með hita í dag og svo er skipulagsdagur í leikskólanum á föstudaginn þ.a. hún náði tveimur dögum í leikskólanum í þessari viku sem er það sama og í síðustu viku en vikuna þar á undan fór hún ekkert. Það saxast líka heldur hratt á veikindadag barna hjá okkur þó við séum að rembast við að vinna til skiptis. Í dag var ég ca 8-14 og Jobbi 14-20. Ég vann svo síðustu 2 tímana í kvöld þ.a. ég slapp alveg við að taka frí í dag. Þetta er reyndar ekki e-r ideal lausn þar sem maður rétt nær að slappa af yfir blánóttina.

Skrifaði eyrunl þann 04.10.06 22:52