október 29, 2006

Lítið sjarmatröll

Hann Birkir sonur minn er svo mikið yndi. Við fjölskyldan skelltum okkur í sunnudagaskóla í morgun og þar fengu þau að leika nokkuð lausum hala eftir að þau voguðu sér niður á gólfið. Birkir gekk á milli allra bekkjanna, brosti undurblítt til þeirra sem þar sátu og sagði "hæææ". Hann fékk að sjálfsögðu bros til baka frá öllum, enda algjört krútt. Maðurinn sem var með myndavélina og Birkir skellti sér beint fyrir framan linsuna brosandi, brosti meira að segja til baka þó Birkir hafi algjörlega farið fyrir myndefnið (sem ég held að hafa verið dóttir hans). Tók bara mynd af Birki líka. Feimna dóttir mín, hún Ásdís varð líka bara nokkuð frökk eftir því sem leið á tímann, hún vildi fyrst bara hafa mömmu sína hjá sér og vildi helst hafa Birki líka hjá sér (sem var nú ekkert á því að vera kyrr, enda nóg að gera að heilla fullorðna fólkið á bekkjunum;)) en undir lokin var hún farin að klifra sjálf upp í tröppurnar og sitja ein með hinum krökkunum á meðan mamma var á gólfinu fyrir neðan tröppurnar (virkaði ekki alveg að mamman færi of langt í burtu og sæti með pabbanum á bekknum).

Seinnipartinn var okkur boðið í kaffi á Einivellina til Gunna, Ninu og Lilju Ránar. Var gott og gaman að hitta þau og Guðbjörgu og co. aftur eftir alltof langan tíma. Lilja Rán var orðin nokkuð sátt við mig, sýndi mér bækur og vildi koma í fangið á mér. Þegar við vorum á leið út bað hún mig um að taka sig og vinkaði pabba sínum bless. Var svo heldur stúrin þegar hún þurfti að fara aftur til pabba síns og segja bless við okkur;) Ásdís var hins vegar alveg einstaklega vælin og ég var orðin hrædd um að hún væri að verða enn og aftur lasin. Þegar við komum aftur heim lék hún síðan allt í einu á alls oddi og fór að gera allt sem hún veit að hún má ekki með glott á vör. Nú er hins vegar kominn háttatími og ég á leið í draumalandið. Spurning hvort mig dreymi á þýsku eins og síðustu nótt, íslensku eins og oftast eða dönsku. Nú svo gæti ég hugsanlega lært e-ð nýtt tungumál í draumi;)

Skrifaði eyrunl þann 29.10.06 22:57
Ummæli

Jeyyy líst vel á þessar bloggfærslur :) Var orðin hálf einmana hérna á netinu, vantaði lesefni ;)

Skrifaði: Margrét besta frænka þann 30.10.06 08:48
Skráðu ummæli









Muna upplýsingar?