nóvember 26, 2006
Veikindahrinu að ljúka... allavega í bili
Veikindi krakkanna okkar (sérstaklega Ásdísar) hafa verið heldur mikil síðan í ágúst. Hámark 8 dagar hitalausir í röð hjá Ásdísi frá því að ég byrjaði að vinna. Eftir viku hitavellu rauk hún upp um síðustu helgi og var ótrúlega mikið lasin, svaf nánast allan daginn, vaknaði, lyfti í mesta lagi upp höfðinu áður en hún lagðist aftur niður og sofnaði aftur. Fór með hana á læknavaktina um kvöldið, var send þaðan niður á barnaspítala þar sem kom í ljós að hún var komin með lungnabólgu. Fékk því sinn fyrsta sýklalyfjakúr sem hún smjattar á með bestu lyst og vill helst fá meira þegar sprautan er búin.
Annars er greinilegt að jólin nálgast, ekki út af auglýsingum eða jólastressi, heldur fjölda veislna sem við erum boðin í. Í fjölskyldu minni virðist nefnilega vera frekar stuttur fengitími og því mikið um afmæli rétt í kringum jólin. Um síðustu helgi þegar krakkarnir voru lasin, þá vorum við boðin í 4 veislur og við sendum okkar fulltrúa í allar þeirra, við Jobbi skiptum þeim á milli okkar og sáumst því heldur lítið þá helgina þar sem við vorum svo upptekin að mæta í sitthvora veisluna á meðan hitt var heima með börnin. Þessa helgina var "bara" eitt afmæli, enn eitt í næstu viku og svo um næstu helgi verður smá veisla hjá okkur, því nóg að gera... Það sem ég þarf að finna út úr núna, er hvernig sé auðveldast að þrífa sófann og lazy-boy. Þarf helst að vera ótrúlega fljótlegt og áhrifaríkt, því þeir eru báðir orðnir aðeins of skítugir. Verður fínt að ná að þrífa sem mest núna þ.a. það sé ekki mikið meira en venjuleg þrif eftir fyrir jólin.
nóvember 18, 2006
Home sweet home
Eftir smá ævintýraferð á Austurlandi komumst við loksins heim rétt fyrir hádegi í gær þegar þota var send að sækja allt liðið á Egilsstöðum sem var búið að vera veðurteppt. Þrátt fyrir að vera með góðu fólki á ferðalagi þá var manni farið að leiðast frekar mikið að hanga á hótelinu og þurfa að dúða sig frá toppi til táar til að komast út í búð sem var hinum megin við götuna. Græddum hins vegar alveg lúxus mat þegar við borðuðum þríréttað á hótelinu um kvöldið. Heima er samt bara best og var alveg æði að koma heim og knúsa litlu angana sína. Birkir vissi ekki hvernig hann átti að láta þegar ég var komin heim og gat eiginlega ekki einbeitt sér að því að borða eins og hann átti að gera;) Þetta var líka lengsta fjarvera mín frá þeim frá upphafi...
Í lokin, TIL HAMINGJU MEÐ 16 ÁRA AFMÆLIÐ ELSKU FRÍÐA RAKEL!!!
nóvember 16, 2006
Veðurteppt á Egilsstöðum
Skellti mér í kvennaferð Landsnets í gær til Egilsstaða til að skoða bæði Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði. Í gær var svo vont veður upp á stíflu að við áttum ekki að komast þangað en sem betur fer rættist nú úr því þ.a. við fórum upp á stíflu. Í morgun lögðum við af stað yfir til Reyðarfjarðar. Á miðri leið endaði rútan utan vega og við húkktum úti í skafrenningi og -15°C þar til okkur var orðið heldur kalt. Komumst á leiðarenda en þegar þangað var komið fréttum við að flugið frá Reykjavík til Egilsstaða væri í athugun. Ennþá er flugið frá Reykjavík í athugun þ.a. við bíðum bara og bíðum og erum jafnvel farin að búast við að þurfa að gista hérna auka nótt... Væri nú til í að komast heim til litlu fjölskyldunnar minnar í kvöld og kúra í mínu rúmi.
Ferðin er annars búin að vera mjög vel heppnuð þrátt fyrir að nákvæma tímaáætlunin sem gerð var hafi nú staðist í fæstum atriðum...
nóvember 12, 2006
Óléttuveikin
Ég fékk hina furðulegustu pest í síðustu viku. Var samt ekki veik. Einkenni þessarar pestar voru nákvæmlega eins og óléttueinkenni þ.a. þrátt fyrir að eiga vera ómögulegt var ég orðin ansi hrædd um að vera orðin ólétt aftur. Eftir nokkra daga af ógleði og síþreytu skánaði hins vegar þessi pest þ.a. ég þurfti ekki lengur að hafa áhyggjur. Fyndna var að þegar ég fór að hitta bónergellurnar á fimmtudaginn, rétt orðin góð af þessari furðulegu pest, þá minnist ég á þetta við þær og tvær af þeim höfðu verið nákvæmlega eins!!!
Vegna endurtekinna veikinda á heimilinu okkar þá fórum við Jobbi fyrst í gær að kíkja á litlu Bínu- og Logadóttir. Hún er auðvitað algjört æði!!!!!! Þvílíkt bjútí!!! Alveg næstum því jafn falleg og Ásdís;) Bjartur stóribróðir fór á kostum og lét okkur Bínu fara á fjóra fætur á gólfinu. Vildi nú helst fá Jobba og Loga líka, en þá var sagt stopp. Skiljanlega þarf hann að fá athygli svo litla systir fái nú ekki alla athyglina í heiminum;)
nóvember 05, 2006
Harðsperrur
Jájá, ég er í frekar (vægt til orða tekið) lélegu formi... Í síðustu viku var ég að drepast í harðsperrum í maganum eftir barnaleikfimina. Í gær vorum við ekkert látin labba eins og könguló með börnin ofan á maganum þ.a. ég þóttist nokkuð viss um að hafa bara sloppið við harðsperrur. Þegar ég vaknaði í morgun var ég hins vegar að drepast í öllu bakinu, öxlunum og upp í háls, ég slapp s.s. ekki, fékk bara harðsperrur á aðra staði líkamans. Svo er maður líka svo endalaust þreyttur að ég var sofnuð rúmlega 9 bæði föstudags- og laugardagskvöld... mætti halda að maður væri eitthvert gamalmenni...
Annars gerðist ég svo fræg í gær að skoða nýja IKEA í fyrsta skipti. Við Birkir fórum saman strax eftir leikfimina og vorum mætt 5 mínútur yfir 10. Var alveg passlega lítið af fólki og hentaði okkur fínt. Birkir spjallaði heilmikið við mig um vifturnar í loftinu, honum þótti þær ógurlega spennandi. Síðan fékk einn maður í IKEA þann heiður að fá kveðju frá unga herramanninum mínum, þegar Birkir snéri sér að honum og sagði "hæææ" með þvílíka brosinu. Birki fannst aðrir IKEA gestir greinilega ekki þess virði að eyða kveðju í;) Ástæða þess að við Birkir fórum ein í IKEA eftir að hafa farið ein í leikfimina var ósköp einföld, litla daman var auðvitað lasin og var ennþá með pínu hita í gærkveldi.