desember 31, 2006
Árið 2006
Janúar:
Komum aftur til Danmerkur eftir síðustu heimsókn til Íslands á meðan við bjuggum í Danmörku. Ég byrjaði á fullu að klára lokaverkefnið mitt því stefnan var sett á flutning aftur til Íslands á árinu. Fyrsta brjóstagjöfin var tekin út til að ég þyrfti nú ekki að koma heim í hádeginu. Var engin svaka sorg enda börnin orðin 7 mánaða. Það var annars kalt í janúar og snjórinn ætlaði aldrei að láta sig hverfa.
Febrúar:
Hélt áfram að vinna í lokaverkefninu.
Mars:
Fengum fullt af heimsóknum, mamma kom, Margrét kom og að lokum komu líka Inga og Simmi. Allir dáðust að sjálfsögðu að bestu börnunum og nutu þess að fá fría gistingu í Danmörku.
Apríl:
Birkir hætti á brjósti eftir að hann móðgaðist svo mikið þegar ég hastaði á hann þegar hann fór að brýna tennurnar þegar hann átti að fá sopann sinn. Síðustu vikurnar í lokaverkefninu höfðust með sæmilega mikilli vinnu og allt leit út fyrir skil á réttum tíma. Reyndum að pakka e-ð ofan í kassa þó það hafi að mestu beðið eftir skilum á verkefninu.
Maí:
Verkefninu var skilað á réttum tíma og við tók strembin vika í pökkun á dóti. Inga og Simmi foreldrar Jobba komu og hjálpuðu okkur óendanlega mikið. Við hefðum aldrei náð þessu annars. Fluttum heim til mömmu og pabba rétt passlega til að mæta í ferminguna hennar Agnesar. Jobbi byrjaði að vinna og ég naut þess að vera heima með börnunum.
Júní:
Fjögur ár bættust við samanlagðan aldur fjölskyldunnar því við áttum öll afmæli fyrstu vikuna í júní. Héldum fyrst upp á afmæli barnanna hjá ömmu og afa á Akureyri og svo aftur hjá ömmu og afa í Hafnarfirði viku seinna. Okkur fannst hálf vonlaust að vera á litla bílnum sem við höfðum í láni þ.a. við fjárfestum okkur í fínum station fjölskyldubíl og mamman dreif sig í að prófa bílinn og fór strax daginn eftir með börnin til ömmu og afa á Akureyri.
Júlí:
Mánuðurinn sem við fluttum aftur að heiman. Leigjum íbúðina hennar Kristínar frænku sem passar okkur fullkomnlega þar til við eignumst okkar eigin steypuklump. Var athyglisvert að taka upp úr kössunum því ég hafði fæstu pakkað sjálf. Skelltum okkur norður rétt fyrir mánaðarmótin og naut þess að vera í fríi.
Ágúst:
Síðustu vikurnar áður en ég byrjaði að vinna. Mánuðurinn byrjaði á Akureyri en fljótlega færðum við börnin okkur yfir í Skagafjörðinn í 2 daga þar sem foreldrar mínir voru í sumarbústað. Um verslunarmannahelgina vorum við ásamt heljarinnar fjölda af fólki í Hrísey og nutum lífsins í góðu veðri. Börnin byrjuðu hjá dagmömmu og áður en ég byrjaði að vinna fengum við að vita að þau kæmust inn á leikskóla í byrjun september. Um leið og ég byrjaði að vinna veiktist Ásdís í fyrsta skipti af óþekkt hve mörgum í langri veikindahrinu sem enn sér ekki fyrir endann á.
September:
Börnin byrjuðu á leikskóla og urðu allt í einu svo risa stór við það eitt. Fyrsti leikskólareikningur var einn sá hæsti sem sögur fara af, enda á aðra milljón!! Voru auðvitað mistök sem mikið hefur verið hlegið að. Lenti í því neyðarlega atviki að ganga inn á nakinn mann í blokkinni en hlæ auðvitað líka að því!
Október:
Skelltum okkur norður á Akureyri því okkur fannst of langt að fara ekki frá ágúst og fram til áramóta.
Nóvember:
Börnin byrjuðu í barnaleikfimi sem tók eflaust meira á foreldrana en börnin. Áttum því góðar stundir með börnunum snemma á laugardagsmorgnum. Um miðjan mánuð skellti ég mér í stutta kvennaferð með vinnunni austur á Egilsstaði. Ferðin lengdist um næstum helming vegna ÖMURLEGS veðurs... Veikindin héldu áfram sem endaði í lungnabólgu hjá litlu prinsessunni. Eftir sýklalyfjaskammt vorum við svo bjartsýn að halda að þessari veikindahrinu væri lokið...
Desember:
Börnin okkar voru skírð í barnamessu í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Var alveg eins og ég óskaði mér, passlega frjálslegt og börnin okkar skáru sig ekkert úr þó þau vildu ekki vera alveg stíf í fanginu okkar:) Mánuðurinn fór annars að mestu í að hugsa hvernig við ættum að undirbúa jólin því e-ð fór nú lítið fyrir sjálfum jólaundirbúningnum. Jólin komu nú samt og alveg eins góð og við hefðum getað undirbúið;) Erum núna á Akureyri yfir áramótin eins og verið hefur undanfarin ár ef frá er talið árið þegar við Jobbi vorum í Danmörku yfir jól og áramót.
desember 26, 2006
Jólamyndirnar
Stutt tilkynning þess efnis að ofurduglega Eyrún dreif í því að láta inn desember myndir og jólamyndir í myndaalbúmið. Var bara eins gott að drífa bara í þessu þar sem ég var ein á fótum en Jobbi fór bara að sofa stuttu á eftir krökkunum.
Önnur jólin
Í fyrra vöru börnin svo lítil að þau höfðu ekki neitt vit á jólunum. Þá fengu þau að rífa og tæta í pakkana en virtust ekki átta sig mikið á því að það væri gjöf inní pappírnum ætluð þeim. Þetta árið höfðu þau töluvert meira vit á umhverfi sínu. Pakkarnir voru látnir undir tréð um 6 leytið því við lögðum ekki í að freista þau of mikið með að hafa pakkana fyrir augunum á þeim of lengi. Á aðfangadagsmorgun var ég nefnilega að pakka inn allra síðustu pökkunum og þau fengu að vera hjá mér. Ég hafði klippt niður pappír utan um 2 pakka og var hálfnuð að pakka inn fyrri pakkanum þegar ég límbandið kláraðist og ég þurfti að redda meira. Þegar það loksins hafðist var Ásdís búin að krumpa pappírinn sem eftir var og rífa utan af hinum pakkanum!! Ég var því aftur komin á byrjunarreit.
Við vorum svo ofurbjartsýn að ætla okkur að vera með þríréttaðan kvöldmatinn. Humar í forrétt, hamborgararhryggur í aðalrétt og heimagerðan ís í eftirrétt. Krökkunum fannst humarinn ekki spennandi og voru orðinu heldur stúrin þ.a. ég byrjaði bara að gefa þeim hrygg á meðan Jobbi brúnaði kartöflurnar. Grænu baunirnar voru vinsælastar og Ásdís borðaði líka slatta mikið af kjöti. Birkir borðaði bara heldur lítið enda hafði hann líka ælt í bílnum þegar Jobbi var að koma með þau heim úr jólapakkaleiðangri og var frekar lystarlítill. Þau áttu að sjálfsögðu flesta pakkana og við ákváðum að bíða með okkar pakka þar til þau væru búin og farin í háttinn. Með smá hjálp undir lokin náðu þau að klára að opna alla pakkana sína og voru komin í háttinn rétt fyrir 9, sem er MJÖG seint á þeirra mælikvarða. Birkir var YFIR SIG ánægður með allar gjafirnar sínar, mátaði jakkann frá ömmu og afa og pósaði vel og mikið fyrir pabba sinn sem var með myndavélina! Eftir að pakkinn með snjóþotunni var opnaður, sat hann þar sem fastast og opnaði restina af gjöfunum sitjandi í þotunni. Vildi helst máta öll fötin sem hann fékk, en þar sem við vildum fara að koma þeim í rúmið þá stóð það ekki til boða. Síðasti pakkinn sem þau opnuðu var pakki sem þau fengu saman. Í kassanum voru tvíburar, einn lítill strákur með bláan pela og ein lítil stelpa með bleikan pela. Þau voru svo yfir sig hrifin af dúkkunum sínum að litlu börnin þeirra fengu að sofa hjá þeim. Voru svo mikið krútt bæði að knúsa dúkkurnar sínar í tætlur og gefa þeim pela á milli þess sem þau sjálf tóku sér smá súp úr dúkkupelanum (sem ekkert kemur úr).
Þegar börnin voru loksins komið í rúmið var röðin komin að okkar pökkum og eftirrétt. Kvöldið var því rólegt og vel heppnað. Takk kærlega fyrir okkur!!
Í gær fórum við í heimsókn til ömmu og afa áður en við mættum í jólaboðið til ömmu. Finnst svo notalegt að fara á jóladag og hitta alla fjölskylduna. Annað kvöldið í röð fóru börnin ekki að sofa fyrr en um 9 (þó Birkir hafi reyndar sofnað aðeins hjá afa sínum), en í verðlaun fengum við hins vegar að þau vöknuðu ekki fyrr en klukkan 8 í morgun!! Þau hafa ALDREI sofið svona lengi!!
Nú eru mamma og pabbi og krakkarnir hins vegar að koma í smákökur og súkkulaði, þýðir ekkert að hanga of mikið í leti;)
desember 24, 2006
Korter í jól
eða svona næstum því. Búið að vera meira að gera í vinnunni en venjulega akkúrat síðustu tvær vikurnar fyrir jól þ.a. jólaundirbúningurinn hefur verið að mestu gerður á hlaupum. Nú er allt að smella saman og tími til kominn að fara í háttinn þ.a. maður vakni nú hugsanlega með krökkunum í fyrramálið...
GLEÐILEG JÓL!!! Hafið það sem allra best um jólin.
desember 12, 2006
Brothætt jólaskraut... ekki alveg að gera sig...
Ég ákvað að vera agalega bjartsýn og setja smá jólaskraut í gluggakistuna um helgina. Þar af voru 2 brothættir snjókallar. Í gær komst Birkir í annan þeirra og þrumaði honum í gluggakistuna þ.a. hann brotnaði. Í dag ákvað pabbinn að fjarlæga seinni snjókallinn til að koma í veg fyrir að sá myndi einnig brotna. Það vildi nú samt ekki betur til en svo að þegar hann var í fótbolta með krökkunum þá þrusaði hann boltanum í jólasveininn sem átti að vera í nokkuð öruggu skjóli upp á skenknum.
Við Birkir skelltum okkur í smá leiðangur í dag, fórum á læknavaktina á heilsugæslustöðinni þar sem það lekur svo úr augunum á honum. Eftir LANGA bið, þar sem drengurinn var orðinn heldur þreyttur á að bíða og farinn að rölta um allt pleisið með mömmuna í eftirdragi til að skoða umhverfið komumst við að og fengum dropa í augun. Þar sem ég var nú hvort eð er inni hjá lækninum ákvað ég að spyrja aðeins út í verkinn í kinninni minni sem er búinn að vera að hrjá mig síðustu tæpu 2 vikur. Var með öll týpísku einkenni kinnholubólgu (eins og ég hafði nú alveg heyrt að væri líklegt) sem var einnig staðfest eftir skoðun. Ég fékk því líka lyfseðil handa mér og hætti því vonandi fljótlega að vera með "tannpínu". Vorum því ágæt saman mæðginin í dag.
Að lokum fyrir þá sem hafa ekki ennþá rekist á merkilegheitin, þá lét ég inn nýjar myndir um helgina
desember 09, 2006
Bráðum koma blessuð jólin...
Vá hvað tíminn líður ískyggilega hratt, það eru ekki nema "nokkrir" dagar í jólin og ég sem ætlaði að vera ótrúlega tímanlega með allt saman, er bara varla byrjuð á neinu!! Stór hluti jólahreingerningarinnar er reyndar búin (þ.e. gluggar, gardínur og þ.h.) en því var lokið fyrir skírnina um síðustu helgi. Stóru börnin okkar voru s.s. skírð á fyrsta sunnudegi í aðventu í barnamessu og fóru þar á kostum. Þau þóttust sko eiga staðinn!
Kvöldið fyrir skírn fórum við Jobbi á jólahlaðborð hjá Landsneti og þurftum auðvitað að vera ofur settleg þar sem það var ræs eldsnemma morguninn eftir. Í gærkveldi var svo jólahlaðborð hjá sviðinu hans Jobba í Símanum og þar vorum við nú ekki alveg jafn ofur settleg þar sem börnin fengu að gista hjá ömmu og afa og við gátum því sofið út:) Þetta voru alveg ótrúlega misjöfn jólahlaðborð. Betri matur/drykkur hjá Landsneti, betri eftirréttir hjá Símanum, betri veislustjórn og skemmtilegri skemmtiatriði hjá Símanum en meira stuð hjá Lansdneti eftir matinn. Væri auðvitað best ef maður gæti blandað þessu saman og fengið hið fullkomna jólahlaðborð:)