janúar 30, 2007

Góð þjónusta

Eftir heimsókn okkar Birkis á bráðamóttöku barna, hefur líðan drengsins snarbatnað. Hitinn lækkaði jafnt og þétt í gær og hefur hann verið alveg hitalaus í dag. Hann hefur hins vegar borðað lítið sem ekkert og er alveg einstaklega geðvondur ungur drengur. Það kom mér nokkuð þægilega óvart þegar læknirinn hringdi í gær til að athuga líðan Birkis, fannst gott að vita að það væri fylgst með okkur. Það kom mér svo enn meira á óvart þegar hann hringdi aftur í dag til að athuga hver staðan væri. Hann var mjög feginn þegar hann frétti hvað hann væri orðinn góður og sagðist þá hætta að hafa áhyggjur af honum. Ekkert smá sem manni líður vel þegar fylgst er vel með heilsu barnanna manns. Ekkert smá góð þjónustu hjá barnalækninum sem við lentum hjá.

Annars varð ég í fyrsta skipti smá paranójuð á leiðinni inn á barnaspítala. Athugaði á hverjum ljósum hvort hann andaði ekki örugglega og fannst þetta óheyrilega löng leið e-ð. Ég sem reyni að hafa mig alla við að vera ekki paranójuð, heldur bara passlega ábyrg og fara til læknis þegar þess er þörf. Fór einmitt með Ásdísi til læknis í dag, í endurkomu og minntist á þetta við lækninn. Hann sagði að það væri bara allt í lagi að vera paranójaður varðandi börnin manns:) Benti mér líka á að ég hefði getað hringt á sjúkrabíl, en ég var greinilega ekki alveg það paranójuð því mér datt það nú ekki einu sinni í hug, og svo var ég líka á leiðinni inn á spítala þegar ég fékk þetta yfir mig.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:17 EH | 6 Ummæli

janúar 29, 2007

Lasið barn, kemur á óvart?

Það kemur væntanlega fáum á óvart að ég eigi lítið lasið barn. Það sem kemur hins vegar aðeins meira á óvart er að það er Birkir sem er lasinn en Ásdís fór í leikskólann. Litli stubburinn er búinn að vera að versna um helgina og þegar ég kom heim af fimleikaæfingu í gær var hann orðinn svo slæmur að ég dreif mig með hann á læknavaktina. Fékk þar að vita að hann væri með lungnabólgu og var send áfram á barnaspítalann. Þegar við loksins komumst að þar fengum við það staðfest að hann væri með lungnabólgu og líklegast rs vírus. Hann mettaði ekki fullkomnlega en samt ekkert hræðilega illa heldur, var í ca 90% mettun. Var líka með andþyngsli og átti í erfiðleikum með að anda þegar hann sat uppréttur. Fékk að fara heim eftir að ég sagðist treysta mér til þess. Hef heyrt miður góðar sögur af svefnsófunum þarna þ.a. ég var ósköp fegin að fá að lúlla í mínu rúmi. Vaknaði hins vegar á ca klukkutímafresti í alla nótt til að athuga stöðuna á dregnum, hitann, öndunina og reyna að fá hann til að drekka.

Hann er núna orðinn aðeins skárri, hitinn hefur lækkað aðeins, hann borðaði aðeins, hefur verið að horfa á Brúðubílinn og púslaði meira að segja aðeins hérna áðan. Í gærkveldi var hann hins vegar svo slappur að hann sýndi ekki einu sinni viðbrigði við TM auglýsingunni með fuglunum sem er gjörsamlega uppáhalds sjónvarpsefnið hans, hann skríkir í hvert sinn sem þessi auglýsing sést. Barnalæknirinn hringdi áðan til að athuga stöðuna á drengnum og var ánægður að heyra að hann væri orðinn skárri.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:14 FH | 3 Ummæli

janúar 27, 2007

Skoppa og Skrítla

Þar sem við komumst ekki með tvíburafélaginu á Skoppu og Skrítlu í haust þá var ákveðið að grípa tækifærið núna og fara á þessa skemmtilegu sýningu í Þjóðleikhúsinu. Vissum svo sem að við þyrftum að vera heppin til að bæði börnin væru frísk og kæmust með. Vorum ekki alveg það heppin, því eftir nokkra daga hjá Birki með nokkrar kommur seinnipartinn þá vaknaði hann í morgun með meiri hita og því nokkuð ljóst að hann kæmist ekki með. Drógum því Jökul og Guðbjörgu með okkur þar sem við áttum hvort eð er miðana.

Á fimmtudaginn var þriðja fimleikaæfingin en þar sem mín hefur hingað til verið þekkt fyrir að vera frekar mikill hrakfallabálkur þá var um að gera að viðhalda þeim titli. Í þrekinu í upphafi og e-m magaæfingunum þá fékk ég allt í einu e-ð í magann og hef líklegast tognað á einum vöðva í maganum. Gat mig varla hreyft án þess að finna til um kvöldið en var strax orðin betri morguninn eftir og er orðin alveg góð núna og tilbúin að mæta á næstu æfingu á morgun.

Skrifaði eyrunl klukkan 05:46 EH | 1 Ummæli

janúar 23, 2007

Fyrsta eyrnabólgan mætt á svæðið

Núna eru liðnir 11 dagar síðan Ásdís fékk hita og enn er hún með hita... Í gær fannst okkur alveg vera komið nóg og skelltum okkur til læknis, enda varð hún bara slappari og slappari. Þar kom í ljós eyrnabólga í vinstra eyra og e-r bronkítis/astma hljóð í lungunum. Hún er því komin á pensilín skammt nr. 2 á sinni ævi og á að koma í endurkomu eftir viku. Þar sem þetta er e-r ofur skammtur af pensilíni, þarf bara að taka 1 skammt á dag í 3 daga þá átti ég nú von á að hún yrði fljótlega hitalaus en núna þegar hún á bara einn skammt eftir er hún ennþá með hita. Það er því lán í óláni að flestir heima í Fagrabergi eru líka lasnir og geta haft hana hjá sér á meðan við Jobbi skundum í okkar vinnur.

Hjá lækninum í gær var ég spurð hvort það væri astmi í fjölskyldunni. Mér fannst nú varla taka því að minnast á að ég hefði einu sinni verið með áreynsluastma en hann væri alveg farinn núna. Læknirinn spurði aðeins frekar út í það og fékk það nú upp úr mér að ég get engan vegin hlaupið úti því þá verkjar mig svo í lungun. Þegar ég sagði honum að ég hélt ég myndi deyja eftir að hlaupa útí strætó og vera alla leiðina úr Reykjavík í Hafnarfjörð að jafna mig þá vildi hann meina að væri ennþá áreynsluastminn þrátt fyrir að ég gæti púlað innanhúss. Ég er því ekki lengur jafn mikill aumingi og ég hef talið, ég get bara kennt bölvuðum astmanum um!!! Alltaf gott að fá afsökun fyrir eigin aumingjaskap;) Reyndi að telja mér trú um að það væri líka astmanum að kenna að ég get varla gengið upp og niður tröppur eftir annan fimleikatímann út af harðsperrum, en þrátt fyrir mikinn sannfæringarkraft hjá sjálfri mér þá trúi ég því ekki alveg;)

Undanfarið hefur verið svo skítkalt í íbúðinni þar sem ofnarnir voru flestir með e-ð vesen og voru í smá verkfalli að nota þurfti öll ráð til að halda hita á heimilismeðlimum. Klæða aðeins betur, hafa þurrkarann í gangi og opið fram, draga fyrir gardínur, draga frá gardínur þegar sólin skein á gluggana o.s.frv. Í gær mætti hins vegar maður og var e-ð að grúska í kyndiklefanum fyrir blokkina og viti menn, allt í einu fóru ofnarnir á fullt. Komst svo að því í gærkveldi að það voru ekki bara við sem vorum með kalda íbúð, heldur öll blokkin og hefur víst verið bölvað vesen í heil 7 ár án þess að reynt hafi verið að laga vandann fyrr en í gær. Að þessu komst ég í gærkveldi þegar við vorum nokkrar íbúðir án rafmagns því það sló alltaf út í töflunni niðri. Eftir e-n tíma kom svo í ljós að það var íbúð á hæðinni hjá okkur sem var með vesen og með því að hafa bara eitt öryggið slegið út hjá þeim þá var allt í góðu hjá okkur og allt verið til friðs síðan. Það er s.s. búið að vera fjör hérna undanfarið:)

Skrifaði eyrunl klukkan 08:52 EH | 3 Ummæli

janúar 21, 2007

Meiri fimleikafréttir:-)

Það er nú meira hvað maður er stoltur af sjálfum sér núna. Mætti í fimleikatíma nr. 2 í dag, núna með Önnu Maríu og Margréti en Linda beilaði, neinei hún var lasin og löglega afsökuð. Þetta er svo sjúklega gaman að það nær engum enda. Í dag tókst mér að gera nokkuð vel aftur á bak heljarstökk (með aðstoð að sjálfsögðu;)) eftir 2 misheppnaðar tilraunir síðast, í síðasta stökkinu í dag náði ég meira að segja að lenda á fótunum!! Trampolínið er síðan náttúrulega hrein snilld. Fór þar í heljarstökk áfram og gerði fyrstu tilraun (takið eftir, tilraun er lykilorðið;)) að skrúfu. Gerði líka heljarstökk áfram á fibernum og af svona stökkbretti og yfir kubb. Þetta er náttúrulega bara stórkostlegt afrek þegar tekið er tillit til hreyfingarleysis míns undanfarin ca 10 ár... Mér líður næstum eins og 10 ára stelpu sem er að byrja í fimleikum, nema ég geri mér ekki nokkrar vonir um að verða að e-i stjörnu, dugar mér alveg að skemmta mér, fá hreyfingu og ná að gera e-ð smá flott:)

Af öðrum heimilisfréttum er það helst að frétta að litla daman okkar er ennþá lasin, búin að vera með hita í rúma viku, þ.a. þetta er farið að verða heldur langdregið... Við Birkir erum hins vegar ekki að láta veikindi hennar stoppa okkur, þ.a. við mæðginin fórum ein saman í íþróttaskólann í gær. Í dag fórum við svo í Smáralindina að skipta því sem ég skipti í gær... var nefnilega gallað sem ég fékk í gær. Keypti svo heilan helling af fötum á krakkana á útsölunni. Nokkuð vel af sér vikið á ca einum og hálfum klukkutíma sem við vorum í bænum. Eftir þann tíma var þolinmæði Birkis hins vegar alveg búin, hún varð búin reyndar töluvert fyrr en þá skelltum við okkur í dótabúðina og hann fékk agalega fínan löggubíl með sírenu og hurðum til að opna sem hélt athyglinni aðeins lengur;) Þegar við lögðum af stað heim fattaði ég að ég hafði ekki keypt neitt dót handa lösnu músinni minni, bara handa Birki sem fékk þó að koma út með mömmu en þurfti ekki að hanga heima enn einn daginn. Fékk auðvitað þvílíkan móral, en með smá tiltölum fengust þau til að skiptast nokkuð vel á og svo var gamla púslið líka bara skemmtilegt.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:55 EH

janúar 19, 2007

Í kjólinn fyrir jólin...

Tja... ekki að það sé neitt sérstakt markmið að passa í e-n kjól, þar sem ég passa ágætlega í fötin mín og hef sérstaklega eftir að krakkarnir fæddust ekki þurft að losa mig við nein aukakíló. Hins vegar ákvað ég svona til tilbreytingar að það væri nú kannski bæði gott og gaman að hreyfa sig aðeins. Ég strengi nú aldrei áramótaheit, enda endast þau skv. könnunum ekki nema fram í miðjan janúar, en samt sem áður byrjaði ég í gær að hreyfa mig. Ég og Linda Rós mættum galvaskar hjá Gerplu í oldies fimleika!! Já þið lásuð þokkalega rétt, við fórum í fimleika!!:) Ég hef hingað til ekki verið þekkt fyrir að hreyfa mig neitt of mikið, mætti nokkrum sinnum í háskólanum í fótbolta/körfubolta/bandý með strákunum í bekknum en þar áður mætti ég örfáum sinnum í líkamsræktarstöðina á Garðatorgi þegar ég var í Flensborg (það er svo langt síðan að ég man ekki einu sinni hvað stöðin hét eða heitir). Því var nú eiginlega ótrúlegt að ég væri ennþá uppistandandi eftir 2ja tíma fimleikaæfingu í gærkveldi. Viðurkenni fúslega að þreytt var ég og harðsperrurnar eru aðeins byrjaðar að láta á sér kræla. Það besta við þetta var að það var svo rosalega gaman á æfingunni að við ætlum þokkalega að mæta aftur á sunnudaginn:)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:59 FH | 0 Ummæli

janúar 11, 2007

Misgáfaðir pennar

Fjarðarpósturinn var að koma í hús enda fimmtudagur. Fletti blaðinu eins og oftast og þegar ég var búin að lesa innsenda grein eftir eldri konu gat ég ekki annað en hlegið. Ég vona að ég fari aldrei að upplýsa alþjóð (eða Hafnarfjörð) um fáfræði mína með því að skrifa grein í blað um e-ð sem ég veit ekki.

Þannig er nefnilega mál með vexti að með nýju raforkulögunum geta allir kaupendur rafmagns valið frá hvaða framleiðanda þeir kaupa. Rafmagnið er hins vegar þannig að það geymist ekki, það þarf að notast um leið og það flyst eftir flutningsleiðum ca stystu leið frá framleiðslu að neytanda (þessi stysta leið er ekki endilega mæld í kílómetrum heldur viðnámi línanna). Því get ég alveg valið að kaupa rafmagn af Norðurorku á Akureyri en myndi samt fá rafmagn sem er framleitt nær mér eins og t.d. Reykjanesi eða Hellisheiði. Því gæti fræðilega séð verið stóriðja á Norðurlandi sem keypti rafmagn af virkjun á Suðurlandi og stóriðja á Suðurlandi sem keypti af virkjun á Norðurlandi og það væri enginn flutningur á milli Norður- og Suðurlands.

Ef greinahöfundur í síðasta Fjarðapósti hefði haft þessa vitneskju hefði hún nú væntanlega ekki farið að hneykslast yfir því að Grundartangi keypti orku frá Reykjanesi á meðan Alcan keypti orku frá Þjórsá og Hellisheiði.

Skrifaði eyrunl klukkan 05:22 EH | 2 Ummæli

janúar 06, 2007

Út með jólatréð!!

Eftir að við komum að norðan var fína stóra jólatréð okkar búið að vera vatnslaust í aðeins of marga daga. Það varð til þess að maður mátti helst ekki anda á tréð án þess að það hrundi verulega af því. Áðan drifum við okkur svo í að taka tréð niður og loksins þegar allt skrautið og serían var farin af trénu, þá var tréð nú ósköp nakið!! Enda vorum við með næstum fullan poka af barri þegar tréð var loksins komið út. Sem minnir mig á að tréð er ennþá bara hérna fyrir neðan svalirnar... ég redda því á morgun:) Þar sem jólin eru nú formlega alveg að verða búin þá fannst mér líka kominn tími til að fjarlægja restina af jóladótinu (sem upphaflega var nú aldrei mikið...) og er allt að verða komið raðað ofan í kassa. Snilld, því eins og ég dýrka jólin þá get ég yfirleitt ekki beðið eftir að mega fjarlægja jólaskrautið um leið og áramótin eru liðin. Sérstaklega eins og núna þegar við komum aftur heim til okkar eftir áramótin, þá var ekki kveikt á jólatrénu eða seríunum.

Í dag var ég annars alveg ótrúlega dugleg. Labbaði með krakkana í morgun í heimsókn til langömmu sinnar (Jobbi kom aðeins á eftir okkur á bílnum, e-r leti í gangi;)) og sníktum þar hádegismat. Eftir hádegi voru nýju snjóþoturnar hins vegar dregnar fram og röltum við í heimsókn til Bjarts og Sunnu. Eftir smá feimni þá virtust öll börnin (tja nema Sunna sem sýndi þeim ekki mikla athygli) bara nokkuð dugleg að leika sér. Rétt fyrir kvöldmat var síðan komið að föstum lið eins og venjulega, þ.e. að uppgötva að Ásdís er enn einu sinni komin með hita!!! Var heila 4 daga í leikskólanum!! Um jólin var því slegið nýtt met í hitaleysi, eða alveg 12 dagar, enda var hún í fríi frá leikskólanum fyrstu 8 dagana af þessum 12 dögum. Verður því líklegast rólegheitadagur á morgun, sem er svo sem líka allt í lagi:) Aldrei að vita nema það náist að klára að ganga frá og taka til þ.a. íbúðin líti út eins og mannabústaður.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:43 EH | 2 Ummæli

janúar 05, 2007

Litli unglingurinn á heimilinu

Það er alveg orðið ljóst hvort barnanna okkar finnst betra að sofa út á morgnanna. Nánast undantekningarlaust er það Birkir sem ræsir liðið á morgnana og á meðan lúrir Ásdís aðeins lengur. Í morgun var hún komin upp í til okkar þegar Birkir vaknaði og fékk hann að leika sér í kringum okkur á meðan við mönuðum okkur upp í að koma okkur fram úr bælinu. Þó Birkir væri búinn að kveikja ljósið kúrðum við mæðgurnar áfram saman og hún opnaði ekki augun fyrr en löngu seinna. Þá var klukkan samt orðin korter yfir 7 og litla daman hafði farið í rúmið á sama tíma og drengurinn eða á slaginu 8, því mamman var sko á leiðinni í Smáralindina til að kíkja aðeins á útsölurnar...

Skrifaði eyrunl klukkan 11:33 EH | 0 Ummæli

janúar 04, 2007

Skyggn

Undanfarið hef ég velt því fyrir mér hvort það geti verið að Birkir sé skyggn. Oft hefur það komið fyrir að hann er einn e-s staðar í íbúðinni og þá oftast frammi í holi (ég þá kannski inni í herbergi, inná baði eða í stofunni (s.s. hann veit að ég er rétt hjá honum) og þá truflast hann úr hræðslu. Einu sinni var ég með bæði börnin inni hjá mér inní svefnherbergi þegar Birkir ætlar að fara að loka hurðinni. Hann hættir í miðju kafi, rífst e-ð fram á gang og skellir svo hurðinni alveg truflaður úr hræðslu. Í dag var hann í holunu og ég rétt handan við hornið inní stofu þegar hann truflast úr hræðslu og ég kem og hann kúrir sig upp að mér. Þegar hann svo sleppir sér frá mér varð hann aftur stjarfur og þurfti ég að róa hann aftur niður. Merkilegt nokk þá kippi ég mér ekkert upp við þetta, en er farið að finnast samt óþægilegt að honum skuli oft líða svona illa heima. Þetta gerist nefnilega bara hérna heima og yfirleitt bara í holinu. Ætli maður geti ekki gert e-ð sniðugt til að losna við svona "heimalinga"?

Að allt öðru, ætli það lesi enginn þetta blogg lengur? Hingað til hef ég ekki kippt mér upp við hve mörg komment ég fæ og hef ekki verið að sníkja þess háttar en þegar enginn hefur kommentað í lengri tíma þá fer maður að velta fyrir sér hvort maður sé bara að blaðra út í tómt loftið... Anyway, kominn háttatími...

Skrifaði eyrunl klukkan 10:53 EH | 5 Ummæli