mars 30, 2007
Komin heim... nánast allslaus
Ferðin til Manchester gekk alveg ljómandi vel, komst í búðir og fyllti töskuna sem ég hafði farið með nánast tóma út. Í fyrsta skipti þurfti ég síðan að upplifa það að sjá færibandið klárast og engin taska merkt mér komin. Krakkarnir voru nú samt ótrúlega glöð með dótið sem ég hafði dröslað með í handfarangri, ég keypti nefnilega svona sett með fullt af dúkkudóti og þau virðast nú ekkert endilega fatta að þetta sé ætlað fyrir dúkkurnar þeirra. Þau reyna að drekka úr glösunum og pelanum, Birkir reynir að setjast á koppinn, Ásdís heimtaði að fá litla dúkkuslefsmekkinn á sig og greiða sér með dúkkuburstanum og -greiðunni. Ég er svo búin að vera heima í dag með krökkunum því Birkir fékk hita í gærkveldi. Gat ekki hugsað mér að senda Ásdísi á leikskólann og vera heima með Birki þ.a. Ásdís fékk því líka langt helgarfrí eins og Birkir. Ég ætla hins vegar að skipta við Jobba og fara í vinnuna eftir hádegi. Nóg í bili, það er orðið svo langt síðan ég bloggaði að ég hef alveg fullt að segja en læt þetta duga í bili og ætla að reyna að ganga aðeins frá hérna áður en Jobbi kemur heim
mars 15, 2007
Ástand á heimilinu
Ég mætti í vinnu í dag eftir tvo daga heima í veikindum. Get ekki sagt að ég hafi haft það mjög náðugt í veikindunum, ekki einu sinni þó við Jobbi værum bæði lasin því Ásdís var líka lasin og þurfti að hugsa um hana. Leikskólinn bjargaði hins vegar nánast lífi Birkis, þar sem lösnu foreldrar hans voru ekki upp á sitt besta. Ég slapp nú bara vel með að vera bara veik í 2 daga þó ég sé nú ennþá með vel stíflaðan nebba, því Ásdís er búin að vera veik síðan á laugardaginn og Jobbi síðan á mánudaginn og þau eru bæði ennþá lasin.
Á mánudagskvöldið þegar ég var að veikjast, þá var ég á fyrirlestri hjá Siggu frá Blátt áfram. Varð ótrúlega margs fróðari, en ég ímynda mér að það væri gott að mæta oftar en einu sinni á fyrirlestur hjá henni, til að hlutirnir festist nú örugglega á réttum stöðum í heilanum á manni. Er núna líka búin að kaupa bókina "Þetta eru mínir einkastaðir" sem Blátt áfram gefur út og fæst í Hagkaup. Mæli með að allir kynni sér þetta mikilvæga málefni.
mars 05, 2007
Aulalegt
Ég get verið svo "skemmtilega" óheppin stundum að það er eiginlega ekki fyndið. Á fimmtudaginn bættist alveg ný vídd í óheppni mína þegar ég hoppaði á trampolíni til að fara í heljarstökk upp á dýnu, nema ég fór upp, snérist á hvolf og fór niður á hvolfi á milli trampolíns og dýnu. Var gripin af þjálfaranum sem var sem betur fer með viðbragðið í lagi því það hefði getað farið ansi illa ef hann hefði verið örlítið seinni til. Hélt ég hefði nú sloppið en önnur öxlin fór nú fljótt að láta mig vita að hún væri ekki alveg 100% heil. Hélt þetta væri nú samt ekki neitt, því ég fann ekki neinn sársauka heldur bara óþægindi. Það var nú hins vegar bara óskhyggja. Get nú þakkað fyrir að ég finn ekki til í hinu daglega lífi, en finn hins vegar til þegar ég set bílinn í bakkgír, þegar ég beiti hendinni á e-n ákveðinn hátt, þegar ég hleyp (hvernig sem á því stendur!), þegar ég geri arabastökk (komst að því á æfingunni í gær), þegar ég lendi á öxlinni eftir kraftstökk og svona ýmsar aðrar útfærslur af fimleikahreyfingum. Æfingin í gær varð eiginlega til þess að mér varð bara ennþá meira illt! Maður er svo bjartsýnn um eigin getu;)
Annars endaði æfingin alveg snilldarlega. Fengum að vita í upphafi að það væri surprise í endann og þegar við vorum búin að rotta okkur saman þrjú og þrjú í hóp, þá kom það alveg þokkalega á óvart þegar við áttum að byrja að nudda einn úr hópnum (s.s. tveir að nudda einn). Byrjað á kálfunum, þá aftan á lærunum, slá á rassinn, nudda bakið og svo hendur og enda á að toga í hendur og fætur eins og til að reyna að lengja fólk um nokkra cm. Í fyrstu umferðinni átti ég nú eiginlega bágt með að halda hlátrinum í skefjum, en þegar kom að mér að liggja og láta nudda mig þá breyttist nú aðeins hljóðið í mér;)
Váá, klukkan farin að ganga 12 og ég sem ætlaði að ganga frá hérna í kvöld er bara ekki byrjuð á því... verð bara duglegri á morgun;) Á morgun segir víst sá lati... en ég verð þá bara að taka því.