apríl 29, 2007

Undur og stórmerki hafa gerst!

Letikast dauðans í myndamálum hefur svifið yfir vötnum hérna síðustu 4 mánuðina. Þvílíka letin hefur bara áður varla sést. Nú er allavega búið að fara í gegnum allar myndirnar frá því milli jóla og nýárs og heil glás komin inn. Meira að segja fleiri flokkar en sjást sem nýjar myndir á forsíðunni! Er annars búin að vera að skoða frekar mikið í myndaalbúminu okkar undanfarið (svona miðað við venjulega), fór að skoða Kínamyndirnar út í Osló og núna um helgina hafa bumbumyndirnar verið í efsta sæti vinsældarlistans. Ingunn frænka er jú að verða hálfnuð á sinni meðgöngu og því upplagt að skoða hvernig ég var á svipuðum tíma. Við komumst nú að því að ég var bara ekkert stærri en hún komin 19 vikur. Það eru hins vegar síðustu mánuðirnir sem munu hins vegar skera sig örlítið úr, gerum við ráð fyrir allavega;) Það er svo merkilegt hvað gleymskuhormónið virðist virka stórvel, því ég actually sakna risa bumbunnar minnar!! Ég veit samt alveg hvað ég sagði þegar ég var ólétt... en það nær bara ekki lengra en það. Hætt í óléttudraumunum... í bili allavega;)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:02 EH | 5 Ummæli

apríl 28, 2007

Reykingastybba

Ég gæti skrifað langan pistil um reykingastybbu á skemmtistöðum, en það er ekki efst í huga mínum núna. Í íbúðinni við hliðina er allt í einu farin að berast ÞVÍLÍKA reykingastybban fram á stigagang þ.a. manni líður nánast eins og í öskubakka! Þar sem hurðarnar eru greinilega ekki nógu þéttar þá berst helvítis stybban inn til okkur og við erum allan daginn í reykingalykt. Ætla reyndar að kaupa þéttilista á hurðina okkar til að reyna að hindra lyktina í að koma inn í okkar íbúð en það breytir því ekki að stigagangurinn er eins og öskubakki. Hér í blokkinni eru haldnir húsfélagsfundir annað hvert ár og helst ekki sagt neitt til að styggja ekki nágrannana. Common, stundum er bara spurning hver styggir hvern!! Kall á neðstu hæðinni reykir líka eins og strompur og maður hefur alltaf þurft að labba í gegnum reykingastybbu til að komast framhjá íbúðinni hans, en ég hef látið mig hafa það með því að drífa mig þar bara framhjá. Finnst staðan örlítið breytt þegar þetta er á stigapallinum hjá okkur og inni í íbúðinni. Ef ég hefði búið hérna í kringum það leytið sem ég fermdist, hefði ég verið í stanslausu astmakasti!

Skrifaði eyrunl klukkan 11:07 FH | 0 Ummæli

Neistann, nú finn ég neistann

Váá hvað það er langt síðan að ég skellti mér í bæinn!!! Þurfti að ákveða mig í dag hvort ég myndi vilja á Sálarball í kvöld. Var ekki að sjá fyrir mér að ég myndi meika það með uppsafnaða þreytu vikunnar á bakinu. Ákvað hins vegar að slá til og skemmti mér líka þokkalega vel. Fór hins vegar bara nokkuð snemma heim m.v. hinar og var lítið að stressa mig á því að vera ein af mest edrú manneskjunum á svæðinu. Ég man eftir því þegar ég var að komast á unglingsárin, þá fannst mér Stebbi Hilmars ótrúlega flottur, nú tók ég eftir því að hann er bara orðinn GAMALL!!! Ekkert flottur nema röddin;)

p.s. Bína, ég hlakka til að heyra fyrirsögnina við GOTT tækifæri e-n tímann seinna og sjá andlitin þegar kemst aðeins lengra inn í lagið;) Algjör snilld!!

Skrifaði eyrunl klukkan 03:08 FH | 0 Ummæli

apríl 26, 2007

Bid og meiri bid...

Eg er alltaf jafn dugleg ad blogga... ekki satt?;) Anyway, buid ad vera brjalad ad gera undanfarnar vikur og er nuna i Oslo ad bida eftir ad tad komi ad fluginu minu aftur heim. Mer leiddist ekki alveg jafn mikid ein herna uti eins og eg atti von a. Eiginlega bara ekki neitt. Fyrsta kvøldid er eg ad fara ut ad borda og alveg lost hvar eg eigi ad fara tar sem eg tekkti nu ekkert til i Oslo. A fyrsta stadnum sem eg kiki a standa 3 Islendingar vid hlidina a mer ad skoda matsedilinn. Eg spyr tau hvort tau tekki e-d til i Oslo t.a. eg gæti nu kannski fengid upplysingar um hvar væri gott ad borda. Ekki tekktu tau nu mikid til en a endanum vøldum vid sama stadinn og tau budu mer ad sitja hja teim. Ekki nog med tad, heldur voru tau a sama hoteli og eg og eg hitti tau aftur i morgunmatnum daginn eftir. I gærkveldi hitti eg tau svo aftur og skellti mer m.a. i ISKALDA (eda laugin var eiginlega hlandvolg, en eftir sma tima var komin gæsahud og tannaglamur...) sundlaugina med fyrrum stærdfrædikennara minum (litill heimur!) Slapp tannig alveg vid ad hanga ein og drepa timann eins og eg atti von a.
Anyway, ætla ad halda afram ad lesa bokina mina og aldrei ad vita nema eg bloggi oftar;)

Skrifaði eyrunl klukkan 02:07 EH | 2 Ummæli

apríl 09, 2007

Gleðikona í háska... nei gleðilega páska;)

Við erum búin að eiga nokkuð góða páska sem innihélt m.a. ferð til ömmu og afa á Akureyri þar sem Ásdís þurfti að vera lasin mestan tímann eftir nýtt met í fjölda hitalausra daga. Heilir 18 dagar liðu hitalausir þar sem fyrra met var 12 dagar yfir jólatímann og hún í fríi frá leikskólanum en fyrra met þar sem daman var í leikskólanum voru 9 dagar. Páskadagur var svo dagur matarboða þar sem við fórum í brunch að venju til mömmu og svo var matarboð hjá Möggu ömmu um kvöldið. Litlu börnin mín fengu þar Pik nik flögur og urðu alveg óð, réðust að alla diska og stálu smá á hverjum diski;) Þau urðu að nýta einu óhollustuna sem þau fengu þetta árið því ekki fengu þau súkkulaðiegg. Í staðinn fengu þau pappaegg með litlum rúsínupakka, sokkum og tannbursta. Þau voru alveg himinlifandi með þessa gjöf sína.

Þegar við fórum norður á miðvikudagskvöldið vorum við nú nánast nýkomin heim úr sumarbústaðarferð með gamla Tröröd genginu. Það gengi er alveg með ólíkindum samtaka. Við erum fjórar fjölskyldur og áttum jú öll heima á Tröröd þar til við fluttum heim á 10 mánaða tímabili. Við eignuðumst öll börn á tæplega 9 mánaða tímabili á meðan við bjuggum öll úti. Við fluttum öll í Hafnarfjörðinn og keyrum öll á station bíl. Allir nema við eiga heima nánast á sama blettinum á Völlunum og allir nema Guðbjörg og Vignir eiga bíl frá Heklu.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:11 FH | 3 Ummæli