maí 27, 2007
5 "manna" fjölskylda á Sléttahrauninu
Þá hefur 4ra manna vísitölufjölskyldan stækkað tímabundið þar sem Ísar hefur verið í pössun hjá okkur um helgina. Ísar er ferfætlingur og alveg ótrúlega góður, krakkarnir mega gera nánast hvað sem er við hann, en í gær meiddi Birkir hann e-ð þ.a. Ísar vældi og ég veit ekki hvort hann hafi glefsað, því þegar ég bauð Birki að kissa á bágtið þá benti Birkir bara á Ísar! Hann hefur tvisvar gelt innandyra, í fyrra skiptið vorum við á leiðinni út og ég steig á fótinn á honum og í seinna skiptið var hundur að gelta í sjónvarpinu og Ísari þótti ástæða til að svara honum;)
Annars þurfum við að fara að undirbúa afmælisveislu enda styttist ískyggilega í tveggja ára afmæli barnanna. Það þýðir auðvitað að það styttist líka í afmælin okkar Jobba en maður er ekki alveg jafn spenntur að telja sín eigin ár og barnanna;) Ekki fleira í bili...
maí 12, 2007
Er allt vænt sem vel er grænt?
Ég segi allavega nei. Í fyrsta lagi eru Vinstri grænir ekkert svakalega vænir og svo var mér alveg hætt að líka við græna vegginn í stofunni. Af þessum sökum mun ég ekki kjósa Vinstri græna og lét loksins verða af því að mála yfir græna vegginn!! Ég hef ekkert velt mér of mikið upp úr þessum græna vegg, við munum búa hérna tímabundið og fannst ég alveg geta lifað með litnum. Svo allt í einu fékk ég alveg nóg og vildi fara að mála. Þegar ég heyrði í Bínu í vikunni og frétti að þau væru að mála hjá sér þá varð ég eiginlega alveg veik. Fór á fimmtudag og náði í litaspjöld, keypti málninguna í gær, málaði fyrri umferð í gærkvöldi og þá seinni í morgun. Ágætt að undirbúa sig aðeins í þessu áður en maður fer út í alvöru buisness;)
maí 02, 2007
Sæt og fín
Ég dýrka óvænta gleði. Ingunn bauð mér að koma með sér og vinnufélögum hennar á make up kennslu í Kringlunni í kvöld og versla svo með afslætti á eftir. Ingunn var máluð með dagförðun og ég með kvöldförðun, erum því ferlega glæsilegar með sitthvora málninguna á sitthvoru auganu;) Við hefðum líklega verið álitnar mjög skrítnar ef við hefðum þorað að láta sjá okkur svona;)
Í dag lagði ég annars í smá geðveiki. Ég legg það alls ekki í vana minn að fara í búð með bæði elskulegu börnin mín en þar sem Jobbi þykist vera duglegur og hjóla í þessu hjólaataki í vinnuna þá kom hann ekki heim fyrr en seint og síðarmeir og ískápurinn var við það að tæmast. Ég fór því í Fjarðarkaup, því þar eru kerrur með 2 sætum. Þurfti að bíða smá stund eftir að ein þannig kerra myndi losna því þær voru báðar í notkun og það sem meira var, af fólki með aktúally 2 lítil börn. Í kerrunni sem ég fékk voru hins vegar engin beisli og það gekk samt bara vel framan af. Þau voru voða dugleg að hjálpa mér að velja appelsínur og epli og setja í poka og vildu helst bara kaupa allt sem þau sáu. Svo fattaði Birkir að hann gæti staðið upp og þá um leið var sú vitneskja komin til Ásdísar þ.a. restina af búðarferðinni var ég að berjast við krakkana að halda þeim sitjandi. Eins og það sé ekki nógu mikið mál að fara með þau í búð til að þetta bætist ekki ofan á. Held það verði langt í næstu búðarferð með börnin í för...