júní 11, 2007

Þriðja lungnabólgan á 7 mánuðum

Síðasta sumar vissi ég varla um neitt barn sem hafði fengið lungnabólgu. Núna þekki ég alveg nokkur og þar af hafa börnin mín bæði fengið lungnabólgu og Ásdís tvisvar. Það var því þriðja lungnabólgan á heimilinu síðan í Nóvember sem skaut rótum núna um helgina. Á laugardaginn var komið að því að kíkja með dömuna til læknis, skelltum okkur á læknavaktina í Smáranum þar sem allir tímar voru farnir hjá Domus Medica. Hittum á heimilislækninn okkar þar sem sendi okkur áfram á bráðamóttöku barna. Læknirinn sem tók á móti okkur þar var systir yfirmanns míns, voru því kunnugleg andlit út um allt. Barnalæknirinn sem kom svo að kíkja á Ásdís fannst ástæða til að leggja dömuna inn og gefa henni bæði sýklalyf og næringu í æð. Eftir tæplega sólarhringsdvöl á spítalanum var Ásdís orðin töluvert hressari og við fengum leyfi til að fara heim. Þá var ég alveg búin á því eftir tvær frekar svefnlitlar nætur í röð.

Skrifaði eyrunl klukkan 12:43 EH | 5 Ummæli

júní 07, 2007

Enn eitt árið liðið...

Fyrir 6 árum síðan man ég að ég fékk sjokk yfir því að vera orðin 22 ára! Í dag skil ég ekkert í því, 22 ára er bara unglamb;) Svona miðað við að vera núna orðin 28 ára og styttist ískyggilega í þrítugsafmælið. Í gær fagnaði ég afmælinu hans Jobba ógurlega og söng með börnunum afmælissönginn og passaði að þau kynnu að pabbi ætti afmæli í dag. Í morgun voru börnin komin upp í og við að kúra, ég með litla lasarusinn, hana Ásdísi sem vaknaði með 39°C hjá mér og Jobbi með Birki hjá sér. Það var alveg ósköp notalegt þar til Ásdís byrjaði að gubba alveg heil ósköp í rúmið mitt!! Á afmælisdaginn minn!! Morguninn var því ekki alveg jafn notalegur og hann hafði verið daginn áður, meira svona að koma æludóti í þvottavélina, setja Ásdísi í bað og þá varð að leyfa Birki líka að fara í bað.

Litla daman hefur nú ekkert ælt meira, hefur borðað og er bara alveg ágætlega hress ef frá er talinn almennur slappleiki sem fylgir hitanum. Ég ætla því ennþá að vera með örfáar kökur í boði í kvöld fyrir þá sem vilja og þora að kíkja. Ég hef haldið því fram að ætla ekki að bjóða í afmæli, meira bara svona eiga köku, gos og kaffi (spurning hvort það verði instant eða ég fái lánaða kaffivél...). Eftir veisluna um síðustu helgi nenni ég sko ekki að stressa mig á neinu núna...

Skrifaði eyrunl klukkan 01:55 EH | 1 Ummæli

júní 02, 2007

DagurINN er runninn upp...

Sá dagur sem hafði mest áhrif á mig og mitt líf er runninn upp. Reyndar ekki nema rúmur klukkutími liðinn af honum, en dagsetningin er orðin RÉTT. Já það var þennan dag fyrir tveimur árum að við Jobbi urðum foreldrar. Er svo merkilegt að það séu liðin tvö ár, því mér finnst svo stutt síðan þau fæddust. Á sama tíma finnst mér við alltaf hafa haft þau hjá okkur. Undanfarið hafa þau verið í æfingarbúðum fyrir afmælið, Birkir segir Tegga (=tveggja) og bæði syngja þau "ammæl ííí da, ammæl ííí da" eins og þau fái borgað fyrir það. Á reyndar ekki von á að þau syngi með þegar það verður sungið fyrir þau á morgun því þetta eru alveg upprennandi einsöngvarar sem ég á, sem syngja ekki með öðrum;)

Lengra verður það ekki í bili, það er kominn háttatími hjá mér. Þó Jobbi hafi lofað að taka morgunvaktina í fyrramálið þá býst ég við að maður vilji nú samt vakna líka til að geta knúsað þau í klessu og gefið þeim afmælisgjöfina! Ég þykist viss um að ég hlakki meira til að gefa þeim gjöfina heldur en þau að fá pakka þar sem ég veit að þau verða yfir sig hrifin.

Skrifaði eyrunl klukkan 01:06 FH | 5 Ummæli