júlí 30, 2007

Gæsun og Ísafjörður

Á laugardaginn var komið að þaulskipulagðri gæsun fyrir Lindu Rós vinkonu. Dagskráin var alveg ágætlega þétt og skemmtum við okkur konunglega og það sem ennþá betra er þá virtist Linda skemmta sér frábærlega. Við byrjuðum á að senda tvær til hennar til að byrja að undirbúa ýmis fönduratriði fyrir brúðkaupið sem hún hafði sjálf beðið þær um að gera með sér (reyndar ekki á þessum laugardagsmorgni...) og síðar klifruðum við allar upp á svalir og stukkum inn til hennar með Þorgerðar Katrínar grímur fyrir andlitunum. Þegar hún var búin að klæða sig í fína bolinn sem við komum með sem var með mynd af Þorgerði Katrínu ásamt textanum "Hetjan mín" og taka saman allan langa listann af dótinu sem hún "þurfti" fyrir daginn var lagt af stað og hún með bundið fyrir augun. Næsta stopp var kvartmílubrautin þar sem við sendum hana í eina spyrnu með pabba hennar Önnu Maríu. Þangað var hún svo sótt af tveimur mótorhjólagæjum sem keyrðu í samfloti með hana í áttina að Nauthólsvík þar sem Jón var með þyrluna sína og við sendum hana í flug með honum. Eftir þessa stífu dagskrá var komið að hádegismat og smá afslöppun í grasagarðinum. Að því loknu skelltum við okkur allar í magadans og enduðum daginn á heitum potti þar sem við hittum stegg í Borat skýlu! Mjög smekklegt allt saman;) Þar með var skipulagðri dagskrá um borg og bý lokið en haldið var heim til Önnu Maríu þar sem við pöntuðum mat frá Culiacan og höfðum annað mexíkóskt góðgæti eins og heimalagað guacamole (eða var það avókadó Berglind?;)) Þar sem Linda var nú gæs þurfti aðeins að vera smá typpaþema og því var borinn fram eftirréttur fyrir hana sem samanstóð af banana, ískúlum og rúsínum (= typpi, pungur og punghár;)) Rúsínan í pylsuendanum var svo þegar við settum Lindu á stól á miðju gólfinu og tilkynntum henni að við vildum endilega færa henni e-ð sérstakt og eftirminnilegra yrði það nú líklega ekki o.s.frv. og haldið var áfram með smá ræðu þar til hún var orðin vel hrædd um að strippari væri á leiðinni en þá gekk Geir Ólafs inn í íbúðina, talaði smá til hennar, söng eitt lag og spjallaði svo við okkur. Þetta var alveg ótrúlega vel heppnað allt saman:)

Hafdís hafði verið svo elskuleg að passa fyrir okkur börnin okkar og leyfa þeim að gista hjá sér og ég rumskaði ekki fyrr en Jobbi kom heim með þau um hádegið. Þurfti líka heldur betur á því að sofa aðeins út eftir heldur snemmt ræs síðustu vikuna í sumarfríinu. Seinnipartinn í gær skellti ég mér svo á Ísafjörð með flugmanninum henni Margréti litlu systur. Var meiriháttar upplifun að fljúga niður Ísafjarðardjúpið og fylgjast með Margréti þegar hún tók á loft og lenti vélinni. Við hittum mömmu, pabba, Agnesi og Hans Adolf en þau komu á flugvöllinn að hitta okkur í þær 5 mínútur sem við vorum inni í flugstöðinni. Ég lærði um nýjan sjúkdóm fyrir þessa ferð, en það er CRAFT sjúkdómurinn (= Can't remember a fucking thing;)). Greyið mamma þess sem sagði okkur frá þessum sjúkdóm því hann tilkynnti henni alvarlegur í bragði að hann væri með CRAFT sjúkdóminn og mamman var alveg komin með tárin í augun þegar honum fannst rétt að útskýra sjúkdóminn aðeins nánar. Í morgun var svo vinna hjá mér og leikskóli hjá börnunum eftir fjórar vikur í sumarfríi. Get nú ekki sagt að ég hafi verið farin að bíða eftir að komast í vinnuna... en verður vonandi í lagi fljótlega.

Skrifaði eyrunl klukkan 08:34 EH

júlí 24, 2007

Gömul... og heit

Við vinkonurnar fórum í útilegu snemma í júlí með börnum og mökum. Svaka fín ferð í alla staði. Seinna kvöldið kemur ungur strákur vel í glasi til okkar og fer að spjalla við okkur. Komumst seinna að því að hann bjó sér til nýjan raunveruleika þegar hann kynnti sig, en hann var samt það fyndið að okkur var alveg sama. Eitt skiptið segir hann við mig að ég sé gömul og eftir smá hik bætti hann við og heit;) Við vorum nú líka alveg nokkrum árum eldri en hann og eflaust hefur honum fundist við hundgömul;) Allavega fannst mér hann nú bara vera barn;)

Að öðru, þá komum við úr Hrísey í fyrrakvöld en við vorum þar frá miðvikudagskvöldi. Vissi nú ekki fyrr en á leiðinni norður að það væri Hríseyjarhátíð akkúrat þessa helgi en það reddaðist nú alveg, var ekki svona unglingadrykkjuhátíð eins og einu sinni þegar við vorum í eyjunni þessa helgi. Við fengum meira að segja pössun á föstudagskvöldið og skelltum okkur í óvissuferð. Það var byrjað á að fara í Sævar (ferjuna sem fer á milli lands og eyju) og siglt yfir á Árskógssand. Þar gengum við upp að gömlum bóndarbæ þar sem Magnús og Eyjólfur tóku á móti okkur og leiddu okkur yfir í bjórverksmiðjuna Kalda. Þar var boðið upp á bjór og fiskisúpu. Að lokum var rúsínan í pylsuendanum enginn annar en Björgvin Frans Gíslason sem var með gott grín og enn betri eftirhermur:)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:43 FH | 4 Ummæli

júlí 14, 2007

Fríið hálfnað...

Mér finnst það eiginlega ótrúlegt að helmingurinn af fríinu mínu sé liðið... finnst það hafa liðið allt of hratt og kvíði eiginlega fyrir því að þurfa að skila börnunum aftur á leikskólann eftir 2 vikur...:/ Ég er samt svo ánægð með það sem liðið er af fríinu mínu og þá sérstaklega þessu frábæra veðri:) Við erum bara meira og minni úti, búin að fara í sund nokkrum sinnum, gefa öndunum brauð, fara í Húsdýragarðinn, slappa af í Hellisgerði og í dag gengum við Búrfellsgjána með Ingunni og fjölskyldu og Möggu ömmu. Fólk fór reyndar svona mislangt... Jobbi fór alveg upp á topp á Búrfelli með Halldóri, við Ásdís vorum rétt byrjaðar að hækka okkur upp fjallið þegar við snérum við, en Birkir fór styðst, hann tók sinn beuty blund og var því "geymdur" hjá þeim sem nenntu styðst. Heimilið ber þess alveg merki að við séum aldrei heima, gerist ósköp lítið hérna á heimilinu í formi tiltektar og þrifnaðar en mér finnst bara miklu mikilvægara að njóta þess að vera úti svona á meðan veðrið er svona gott.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:44 FH

júlí 02, 2007

Fyrsta alvöru sumarfríið!

Í dag er fyrsti sumarfrísdagurinn minn af ansi mörgum:) Það sem kannski merkilegra er, þá er þetta fyrsta alvöru sumarfríið sem ég fæ. Áður en ég flutti út vann ég alltaf á sumrin og fékk í mesta lagi frí til að fara erlendis en ekkert bara til að "hanga" í fríi;) Úti vorum við nú bara í fríi á sumrin sem var auðvitað algjör lúxus... myndi alveg þiggja það aftur ef mér byðist það:) Helgin var alveg þétt plönuð og byrjaði á 25 ára afmælisveislu hjá Margréti á föstudagskvöldið. Aðfararnótt laugardags vorum við með Spaða hjá okkur og ómæómæ. Hann var sko ekkert á því að fara að sofa og hélt vöku fyrir okkur í ágætan tíma eftir að við vorum búin að gera íbúðina "spaðahæfa". Þegar við loksins vorum öll sofnuð þá ældi Ásdís ofan á pabba sinn og var komin með hita. Hún komst því ekki með í fertugsafmælið hjá Ingunni sem var haldið í sumarbústað á Apavatni. En þar sem hún var orðin sprækari og með minni hita eftir hádegi þá ákvað ég að fara austur með Birki. Hann naut sín í botn í sveitinni með fullt af fólki til að leika við sig, hann naut sín greinilega svo vel að hann hefur ekki týmt að sofa of mikið og vaknaði því hálf 6 á sunnudagsmorgun!! Ég hafði nú sem betur fer farið "snemma" að sofa eða um hálf 2 en ekki um hálf 5 eins og síðustu í húsinu (krakkarnir voru nú e-ð lengur að úti). Ég var alveg óheyrilega mygluð og þvílíkt fegin þegar pabbi kom út úr fellihýsinu um 9 leytið og bauðst til að taka litla afastrákinn sinn. Ég vaknaði svo ekki fyrr en mamma kom inn með Birki rúmlega hádegi og lagði hann steinsofandi í rúmið sitt!

Klúður helgarinnar var hiklaust sundferðin sem við Birkir fórum í með mömmu, pabba og Hans Adolfi. Það var pottur í bústaðnum, en Hans Adolfi langaði svo í sund þ.a. við skelltum okkur í sund á Laugavatni. Við vorum ágætlega kát þegar við förum úr bílnum við sundlaugina því það var enn hlýrra en í bústaðnum. Við erum hins vegar varla komin ofan í pottinn þegar fyrstu droparnir láta sjá sig. Svo rignir meira og meira og það hellirignir ALLAN tímann sem við erum í sundi!! Við gáfumst upp á að bíða eftir að það myndi stytta upp og drifum okkur upp úr. Þegar við svo komum upp úr er auðvitað hætt að rigna!! Í bústaðnum hafði hins vegar ekki rignt einum dropa!

Um kvöldmatarleytið í gær voru svo fagnaðarfundir þegar fjölskyldan sameinaðist á ný og þá sérstaklega hjá systkinunum sem létu eins og kýr þegar þeim er sleppt út á vorin;) Hlupu og kölluðust á, kölluðu saman og skemmtu sér alveg konunglega:)

Skrifaði eyrunl klukkan 12:37 EH | 2 Ummæli