ágúst 14, 2007
Adrenalínkikk
Fyrir nokkrum árum síðan þegar ég var aðeins yngri en ég er núna fór ég í rafting í Hvítá. Skemmti mér alveg konunglega þá. Um síðustu helgi fórum við Jobbi svo í Austari Jökulsá í rafting og holymoly, það var sko MIKLUMIKLUMIKLU skemmtilegra en Hvítá, Hvítá er sko bara lækjarspræna m.v. Austari Jökulsána og það var sko GEÐVEIKT!!! Eina sem hægt var að setja út á, var að guide-inn okkar var helst til rólegur og var ekkert í því að velta neitt of mikið, þ.a. við veltum bátnum bara einu sinni. Jobbi flaug svo einu sinni út úr bátnum í flúðum, og við ýttum hvort öðru einu sinni út í vatnið.
Þegar við komum að ca 8 metra háa klettinum þar sem hægt var að stökkva út í vatnið, var ég nú ekki á því að stökkva. Fannst ég samt eiginlega ekki getað sleppt því þ.a. ég dreif mig af stað upp og var nú alls ekkert svo mikið mál að klifra upp. Um leið og ég komst á toppinn þar sem einn guide-inn var til aðstoðar, ákvað ég að hætta við og bakka aftur niður. Guide-inn var ekkert á því, sagði mér bara að horfa áfram, ekki niður og stökkva svo bara. Þurfti bara að muna að spyrna vel frá klettinum þ.a. ég myndi ekki lenda of nálægt klettinum. Með þá hugsun í höfðinu reyndi ég mitt allra besta til að komast sem lengst frá klettinum, svo mikið lagði ég á mig að ég teygði efri hlutann greinilega aðeins lengra en fæturnar sem endaði heldur óheppilega þegar ég lenti á bringunni!!! Ég hélt ég myndi deyja (ekki alveg, en svona nálægt því), en náði að snúa mér yfir á bakið og jafna mig í smá tíma áður en ég synti aftur í land. Nú veit ég alveg að ég þarf ekkert að gera þetta aftur;)
Langar samt aftur í rafting, þarf eiginlega að láta vinnuna mína skipuleggja rafting ferð, en þessi var með Jobba vinnu;) Annars getur maður alveg farið bara einhvern tímann þegar maður er fyrir norðan:)