september 19, 2007

Nýjar myndir

Ótrúlegt en satt þá lét ég e-ð af nýjum myndum inn í myndaalbúmið okkar í gær! Megið endilega kommenta að villd;)

Skrifaði eyrunl klukkan 07:06 FH | 6 Ummæli

september 18, 2007

"É hjápa mömmu baka köku"

Þessi setning var á repeat hérna heima hjá okkur í gær. Þegar ég kom að sækja börnin á leikskólann í gær byrjuðum við á því að fara í búðina og svo fengu þau að vita að þau mættu hjálpa mömmu sinni að baka köku þegar við kæmum heim. Það var að sjálfsögðu þrisvar sinnum meira mál að baka kökuna með þau til hjálpar og fimm sinnum meiri skítur og drasl í eldhúsinu en jiii það var sko alveg þess virði (nú svo tók Jobbi líka til í eldhúsinu eftir baksturinn;)) Þau voru að deyja úr stolti og Birkir kom aftur þegar ég var að klára að setja á kökurnar og fékk aftur að hjálpa til. Í morgun minntist hann aftur á að hann hefði hjálpað mömmu sinni að baka köku.

Í dag var Ásdís inni í herbergi að leika en Birkir var að kúra hjá mér upp í sófa. Ásdís kallar "Gikki (=Birkir) toddu" þá svarar Birkir "Nei, é mömmu" (=Nei, ég er hjá mömmu). Var sko ekki til í að fórna mömmukúri til að fara að leika við Ásdísi.

Þegar ég kem og sæki börnin á leikskólann þá er Ásdís yfirleitt fyrri til að taka eftir mér. Hún hoppar fram og aftur og skríkir af gleði "MAMMA, mamma MÍN, MAMMA,..." svo knúsar hún mig aftur og aftur, kallar á Birki og lætur hann vita að mamma sé sko komin. Í gær var hann ekkert á því að koma með okkur, hann var í bílaleik. Kom hálfa leið til okkar Ásdísar en snéri svo aftur við og hélt áfram í bílaleik. Samþykkti þó að koma þegar ég sagði honum að við ætluðum í stóra bílinn. Þá sagði hann öllum sem hann hitti: "É stóða bílinn, é stóða bílinn...". Leit út eins og hann væri að fara í e-n risa bíl en ekki bara ósköp venjulegan VW Passat station...;)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:27 EH | 1 Ummæli

september 13, 2007

Ferðamánuður

Ég var í næstum allan júlímánuð í sumarfríi en ferðaðist sama og ekkert, fórum einu sinni norður í nokkra daga. Nánast um leið og ég mætti í vinnu aftur eftir sumarfrí fórum við að keyra um landið. Um verslunarmannahelgina vorum við í Fljótshlíðinni, lifðum þar í synd við hliðina á háheilaga fólkinu sem var á Kotmóti Hvítasunnumanna;) Helgina eftir var farið í rafting í Skagafirði (reyndar farið með rútu þ.a. við sluppum við að keyra). Viku seinna keyrðum við hringinn í kringum landið til að vera viðstödd brúðkaup hjá Lindu vinkonu á Eskifirði. Helgina eftir fórum við ekki neitt sem betur fer því ég var í engu ferðaástandi, búin að vera sárlasin alla vikuna. Viku seinna var ég búin að jafna mig á veikindunum þ.a. við skelltum okkur í sumarbústað við Kirkjubæjarklaustur. Eins og það væri ekki komið gott af helgarferðalögum þá fórum við til Akureyrar um síðustu helgi og vorum viðstödd brúðkaup hjá Helgu frænku. Nú er farið að styttast í næstu helgi og ég ætla ekkert út úr bænum:)

Af yngri kynslóðinni á heimilinu er allt gott að frétta, eru loksins hætt að hágráta þegar maður skilur þau eftir á leikskólanum en það var orðið heldur þrálátt vandamál að vilja ekki kveðja mann á morgnana og vilja bara að mamma eða pabbi væri með þeim á leikskólanum, nú eða fara með þeim í vinnuna þau voru líka til í það. Þau skiptu um deild núna eftir sumarfrí en Birkir er frekar hrifinn af gömlu deildinni sinni sem er með samliggjandi fatahengi og sú nýja. Á morgnana hangir hann oft í glugganum á gömlu deildinni og í dag þá fannst drengurinn ekki þegar ég kom að sækja þau. Við leituðum um alla deild en enginn Birkir. Auðvitað alveg fáránlegt að barn geti bara horfið af deildinni án þess að starfsfólkið taki eftir því en það var nú bót í máli að hann hafði bara stungið af yfir á Krók (gömlu deildina), fundið þar Helgu og var í fanginu á henni. Það er nefnilega svo fyndið að alltaf þegar hann sér Helgu þegar ég sé til þá horfir hann með aðdáunaraugum á hana, brosir út að eyrum og segir með þvílíkum aðdáunartón "Hegga". Ég hélt alltaf að deildarstjórinn á báðum deildunum (hún var á gömlu deildinni en skipti eftir sumarfrí og er núna á nýju deildinni) væri uppáhaldið hjá honum þar til ég varð vitni að því hvað hann dýrkar Helgu, verst að hún skuli vera að vinna á gömlu deildinni;)

Spurning hvort ég fari að verða duglegri að blogga... fékk e-a leti yfir mig í þessum málum, finnst ég nánast vera að tala við sjálfa mig (sem ég geri nú hvort eð er í raunlífi þ.a. það ætti kannski ekki að skipta máli;), kemur allt í ljós.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:49 EH | 3 Ummæli