desember 26, 2007

Gleðilega jólahátíð

Við vísitölufjölskyldan á Klettagötunni erum búin að eiga alveg æðisleg jól hingað til og ekki við öðru að búast en að það haldi svo áfram. Stressið fyrir því að setjast að matarborði á slaginu sex var í algjöru lágmarki, því krakkarnar tóku sér lúr seinnipartinn og sváfu bæði þegar jólin hringdu inn. Voru nú heldur ódugleg að borða jólamatinn, smökkuðu ekkert nema baunir og ananas... Eftir fyrstu tvo pakkana hennar Ásdísar (Baby born dúkka og dúkkubílstóll) þá hefði hún ekki þurft neitt meira. Hún er reyndar núna öll að koma til og er hæst ánægð með allt dótið sitt. Passar samt upp á að "bitna badnið" gleymist ekki og kemst varla á klósettið nema dröslast með barnið sitt með sér. Birkir passar líka vel upp á sitt litla barn, vill bara líka fá svona bílstól eins og Ásdís, því Ásdís er ekki til í að lána sinn;) Það sem vekur mesta lukku hjá drengnum núna eru míkrafónar sem Margrét systir gaf þeim og þeir stoppa ekki núna, Jobbi e-ð aðeins að verða þreyttur á þeim og tók fram að hann hefði alveg gleymt að "þakka" Margréti fyrir þessa míkrafóna;) Það er hægt að slökkva á þeim, en drengurinn er að sjálfsögðu snjallari en það og kveikir bara aftur á þeim:)

Langar bara að þakka öllum fyrir allar góðu gjafirnar sem við fjölskyldan fengum og góðar kveðjur í jólakortunum:) Ætla að reyna að koma mér á fætur fyrir hádegi;)

Skrifaði eyrunl klukkan 11:00 FH | 0 Ummæli

desember 12, 2007

Bílnum leiddist...

Ég var svo leiðinleg við bílinn okkar (drusluna) að ég skildi hann aleinan eftir úti á bílastæði á meðan ég var að vinna. Bílnum mínum hefur greinilega leiðst frekar mikið því þegar ég kom út aftur hafði hann kysst bílinn við hliðina!!

Þegar ég kom út úr vinnunni og hljóp út í bíl sem var lagt í brekku (bíllinn var þvert á brekkuna) þá var svo mígandi rigning að ég hljóp bara beint inní bíl. Þegar ég leit út um bílinn mundi ég ekki eftir því að hafa lagt svona herfilega skakkt í stæðið og hvað þá svona nálægt bílnum sem var við hliðina á okkur (þ.e. fyrir neðan í brekkunni) og fer og athuga málið. Þá hafði framendinn á bílnum okkar runnið til hliðar og framdekkin á bílunum liggja bara saman. Ótrúlegt en satt þá var ekki rispa á hvorugum bílnum þ.a. bíllinn slapp við skammir;)

Update 16/12 '07: Færslan birtist af e-m ástæðum ekki á netið þegar hún var skrifuð, betra er seint en aldrei;)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:11 EH | 2 Ummæli

desember 09, 2007

Risin upp frá dauðum...

Síðast þegar ég bloggaði var ég ekkert að fara að hætta að blogga... svo leið bara aðeins lengri tími og alltaf eftir því sem lengri tími leið vissi ég enn minna um hvað ég ætti að blogga o.s.frv. Íhugaði á tíma hvort maður ætti kannski að hætta en komst nú reyndar aldrei að neinni góðri niðurstöðu;)
Ég er allavega enn á lífi og styttist í jólin á okkar heimili... svona eins og hjá flestum öðrum væntanlega líka;) Búin að baka mitt fyrsta piparkökuhús, setja það saman og skreyta:) Baka eina sort og búa til jólaísinn. Þar með er jólaundirbúningurinn nánast upptalinn á okkar heimili;) Er alveg að fara að byrja að skreyta eins og fyrir viku síðan... hef ekkert komist nær því á viku;)

Börnin eru þvílíkir snillingar að annað eins hefur ekki sést. Þau eru farin að tala heil ósköp, vita hvað mamma og pabbi heita, hvar þau eiga heima, hvað þau eru gömul og hvenær þau eiga afmæli. Mamma heitir t.d. Eyðún og ef maður spyr hvað meira, þá kemur Ninnet. Pabbi heitir Jobbi og Jósef Simmusso. Ég reyndi að kenna þeim Jósef Þeyr Sigmundsson, en hætti bara við Þeyr þar sem það flækti málið óþarflega mikið;)

Skrifaði eyrunl klukkan 06:51 EH | 2 Ummæli