janúar 31, 2008

Fjölgar í barnahópnum

Um jólin kom fyrsta hintið að það væri að fjölga í barnahópnum hjá okkur. Þá komu nefnilega tvær baby born dúkkur upp úr jólapökkum krakkanna. Ingunn og Óli hafa síðan fengið að lúlla hjá eigendum sínum og eru klædd í og úr fötum. Ásdís er alveg með móðurhlutverkið á hreinu því eftir að litla frænka þeirra hún Hildur Ýr fæddist lærði hún að mömmur gefa litlu börnunum sínum brjóst þá vill hún endilega gefa Ingunni brjóst. Í kvöld voru þær "mæðgur" komnar upp í rúm en Ásdís var ekki á því að fara að sofa. Í eitt skiptið þegar ég kem inn til hennar er hún komin úr náttpeysunni og hélt því fram að hún væri að gefa Ingunni að súpa brjóst! Nauðsynlegt að gefa börnunum að drekka fyrir nóttina;) Annars er Birkir ekkert að kippa sér upp við að hann sé strákur, hann gefur sko líka Óla að drekka brjóst og þarf þá eins og Ásdís helst að klæða sig úr öllu ofan mittis.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:55 EH

janúar 27, 2008

Húsbóndinn mættur aftur á svæðið

Það var alveg eðal plan um heimkomu Jobba á föstudaginn. Þá var bóndadagurinn og hann átti að lenda í Keflavík rétt fyrir hálf 5. Hann yrði s.s. kominn heim fyrir kvöldmat og mín ætlaði að taka sig til og elda voða fínan mat handa honum og gera eftirrétt. Krakkarnir áttu að borða á undan okkur þ.a. það yrði svona rómó dinner fyrir okkur skötuhjúin þegar þau væru komin í háttinn. Frekar snemma á föstudeginum átta ég mig á því að það er nú ekki líklegt að planið nái að ganga eftir. Flugvélar komust ekki frá landinu sem auðvitað varð til þess að vélin hans frá Frankfurt var ekkert á tíma. Að lokum lenti hann rúmlega 9 og við vorum komin heim um 11. Það varð því ekkert af rómó dinnernum. Bóndadeginum var því frestað um einn dag. Í gær tók ég mig til að verkaði kíló af stórum og flottum humri og bauð kallinum upp á. E-ð misreiknaði ég tímann sem þetta myndi taka mig (enda ég ekki vön að standa í eldhúsinu) og humarinn komst ekki inn í ofn fyrr en hálf 10!! Eftirrétturinn fær því að bíða í enn einn dag;)

Skrifaði eyrunl klukkan 11:24 FH | 3 Ummæli

janúar 19, 2008

Hoppa og hlaupa!

Loksins eru börnin aftur farin að mæta í íþróttaskólann sinn á laugardagsmorgnum. Þau komust ekki í síðasta tímann fyrir jól vegna veikinda og ekki í fyrsta tímann eftir áramót því þá voru þau í sumarbústað með Jökli vini sínum (við foreldrarnir fengum að fljóta með til að þjónusta börnin;)) Það var mikil gleði hjá þeim að fá að fara aftur í íþróttaskólann og ekki minni gleði þegar við vorum komin í salinn. Ásdís hljóp ca stanslaust áður en stöðvarnar byrjuðu og í fyrstu 2 stöðvunum. Í þriðju og næst síðustu stöðinni var greinilega smá þreyta komin í kroppinn hennar þ.a. hún var svona að nenna að gera ca helming. Í síðustu stöðinni kúrði hún bara hjá mér og meikaði ekki meira. Nennti allavega ekki að leika með e-a húllahringi!! Birkir var hins vegar í banastuði allan tímann.

Dagurinn hefur annars verið nýttur til framkvæmda í herbergi barnanna. Færðum kommóðuna þeirra inn í okkar herbergi og keyptum betri hirslur undir dótið þeirra. Allt í einu núna er bara komið pláss í herberginu fyrir þau að leika sér:) Í staðin er aðeins minna pláss í okkar herbergi en við þurfum nú ekkert mikið meira pláss en það sem rúmið tekur og til að velja föt á morgnana.

Í fyrramálilð ætlar bóndinn á heimilinu að yfirgefa fjölskylduna sína í 5 daga. Við vonum bara að hann komi með e-ð fallegt handa okkur, ég er búin að undirbúa langan innkaupalista en e-ð er hann að reyna að malda í móinn að hann muni hafa lítinn tíma etc... en ég get þá bara minnt hann á það að ég verslaði heil ósköp í 2ja nátta ferð minni til Osló þegar ég fór á ráðstefnu þar. Það er ekki tíminn sem skiptir máli, heldur ákveðnin í að ná að versla mikið:) Það mottó var við líði í Boston og þess vegna náðum við að versla jafn mikið og raun bar vitni:)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:05 EH

janúar 02, 2008

Skrítin ferð á veitingastað

Við fjölskyldan fórum á ónafngreindan veitingastað núna stuttu fyrir áramót með Hólmari og Guðrúnu. Ætlunin var að eiga huggulega stund saman í smá stund. Ferðin byrjaði nú ekki vel þar sem litla daman okkur tók sig til og pissaði niður heilu flóði þar sem hún var á stólnum, það var svo mikið að það flæddi út á gólf. Eftir að hafa "stolið" sokkabuxum af Birki til að lána Ásdísi, gátum við pantað matinn. E-u seinna fattar Hólmar að það hafði verið tyggjóklessa í sætinu hans sem hann hafði sest á og tyggjóklessa því föst í buxunum hans. Hann fékk nýjan stól og áfram biðum við eftir matnum. Höfðum nokkrum sinnum orð á því að þetta væri nú orðin heldur löng bið. Vorum mikið að velta fyrir okkur að spyrja hvort maturinn hefði týnst. Loksins kom maturinn, þ.e. allt nema Jobba matur, sá var nefnilega orðinn svo kaldur að hann var sendur aftur til baka og átti hann að fá nýjan mat. Matur krakkanna var kaldur, en þau eru nú svo sem vön að borða kaldan mat en verra var að maturinn hans Hólmars var rétt volgur og orðinn kaldur áður en hann náði að klára helminginn. Guðrún hafði pantað sér salat sem átti að vera kalt þ.a. það var rétt, en minn matur var sá eini sem var heitur. Þegar við vorum öll búin að borða afpantaði Jobbi matinn sinn, nennti ekki að bíða lengur.

Við (eða Guðrún sá nú um það) létum vita af þessum óþægindum okkar og tók staðurinn vel á málunum, Hólmar fær hreinsun á buxunum og við þurftum ekki að borga fyrir matinn. Er það ástæðan fyrir því af hverju staðurinn er ónafngreindur. Ég hefði samt frekar viljað borga fyrir matinn og eiga notalega stund þar sem allir fá góðan mat.

Skrifaði eyrunl klukkan 11:34 EH | 1 Ummæli

janúar 01, 2008

Gleðilegt nýtt ár

Þá er árið 2007 liðið og komið alveg glænýtt ár. Árið sem var að líða var alveg nokkuð gott ár, reyndar þó nokkur veikindi en ekki mikið alvarlegt þ.a. við tökum þessum bara með jafnaðargeði og vonumst til að þessum veikindahrinum fari að ljúka. Fórum fjórum sinnum í sumarbústað, þar af fór ég einu sinni ein með börnin með Jobbi var að vinna, og nutum þess að vera í fyrsta sumarfríinu á launum. Vinnan við framtíðarhúsnæði okkar fjölskyldunnar gekk meira og minna á afturfótunum á síðasta ári, en byrjað var að byggja nú rétt fyrir jól þ.a. næsta ár verður vonandi miklu betra og að ári verður vonandi styttra í að það verði fullbúið en núna:)

Að lokum smá tilkynning... það er e-ð af nýjum myndum í albúminu okkar!!!

Skrifaði eyrunl klukkan 10:57 EH