febrúar 23, 2008
Síðasti í þorra...
Fyrir mánuði síðan, sagðist ég hlakka til að þorranum myndi ljúka. Þá þyrfti ég ekki lengur að hafa áhyggjur af því að vera boðið upp á e-n úldinn eða súran mat...;) Annars hefur undanfarinn mánuður verið ótrúlega góður, börnin ekkert verið lasin og ég var bara lasin í einn dag! Pælið í þessu, veikindahrinu minni má nú alveg fara að ljúka. Jobbi fékk svo hálsbólgu í gær og ég finn núna að það er e-ð að byrja að gerjast í mínum hálsi:/
Að öðrum fréttum, þá bilaði bíllykillinn að Renaultinum í vikunni, ég var komin á bílnum í vinnuna þegar ég gat ekki læst bílnum með lyklinum og þ.a.l. fór fljótlega í gang þjófavörn þ.a. ég gat ekki startað bílnum aftur til að komast heim. Bíllinn okkar hékk því í vinnunni minni hálfa vikuna eða þar til Halldór gat kíkt á lykilinn. Það var auðvitað ekkert að lyklinum, en dugði að hreinsa kontaktana... Eins gott að við fórum ekki með lykilinn í viðgerð og borguðum marga þúsundkalla fyrir að láta komast að því.
Enn aðrar fréttir, ég var að láta fullt af myndum inn í myndaalbúmið í dag, til viðbótar við þær myndir sem ég lét inn í vikunni og undanfarið. Er s.s. búin að láta nánast allar myndir, bara febrúar myndir eftir að koma en þær koma bara þegar febrúar er búið, enda ekki mikið eftir af honum.