mars 29, 2008

Pestabæli

Þessi hlaupabóla er um það bil að gera út af við bæði Ásdísi og okkur foreldrana... Tvær nætur í röð hefur hún sofið alveg hræðilega illa og haldið vöku fyrir foreldrum sínum. Hún er öll undirlögð í bólum og ég vona bara heitt og innilega að Birkir sleppi e-ð betur þegar kemur að honum. Þar sem Birkir er ekki enn kominn með hlaupabóluna og Jobbi var ekki heima í dag þá fékk hann að vera í heimsókn hjá ömmu sinni og afa í dag til að sleppa við leiðindin með okkur Ásdísi. Þvílík gleði hjá drengnum:) Lítið varið í að vera heima hjá veikri systur sinni sem þarf alla athygli hálf veiku mömmunnar. Þegar Ásdís lagði sig í dag, fannst mér ótrúlega sniðugt að leggja mig með henni. Við vöknuðum svo ekki fyrr en löngu seinna, þá var ég búin að fá tveggja tíma svefn og Ásdís e-ð meira. Hún var nú samt ekki tilbúin að vakna alveg strax þ.a. hún hélt áfram að kúra. Þess vegna er hún ennþá vakandi og lætur mig klæða Ingunni í og úr öllum dúkkufötunum sem amma sendi heim með Birki... Vona að það verði fljótlega hægt að koma henni í rúmið svo ég komist í rúmið;)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:17 EH | 5 Ummæli

mars 26, 2008

Veikindi

Það mætti halda að ég væri ný byrjuð á leikskóla, ég er orðin veik enn eina ferðina. Virðist vera oftar lasin en börnin undanfarið og er ekki hrifin af þessu... Reyndar verð ég oftast frekar lítið lasin, en samt e-a hitavellu og almennan slappleika. Í vetur vorum við Ásdís veikar saman, það sparar veikindadaga vegna barna. Áðan var ég bara nokkuð ánægð með að vera ein lasin og þurfa ekki að sjá um veikt barn í eigin veikindum. Sú gleði dugði þó skammt eða þar til Jobbi kallar á mig og spyr hvort ég viti hvaða útbrot Ásdís sé með. Ég gat ekki betur séð en að þetta væri hlaupabóla! Komnar tæplega 10 bólur, reyndar allar frekar litlar. Ef Birkir smitast líka (sem maður hlýtur að gera ráð fyrir) þá vona ég að það gerist sem fyrst svo hann taki ekki við af Ásdísi.

Farin í háttinn, ætla að safna kröftum fyrir morgundaginn;)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:13 EH | 1 Ummæli

mars 23, 2008

Gleðilega páska!

Þá er maður mættur aftur í netheima, búin að vera nánast netlaus tími (allavega netlítill tími;)) hér á Akureyri í páskafríinu. Búin að hafa það ósköp gott, fórum í leikhús í gærkveld og sátum þar á fremsta bekk á Fló á skinni. Mig verkjaði í kinnarnar lengi á eftir, ég hef sjaldan hlegið jafn mikið. Fór með miklar væntingar um að þetta yrði gaman og fyndið en það breytti engu, þetta var miklu skemmtilegra og miklu fyndnara en ég hafði getað gert mér vonir um! Við förum sjaldan jafn mikið út eins og á Akureyri, enda ósköp þægilegt að vera hjá ömmu og afa sem nenna að passa í sama húsi (ekki að við séum ekki vel sett með pössun heima líka). Fórum á Kaffi Akureyri eftir leikhúsið þar sem Benni var að spila, alltaf gaman að hitta hann og Írisi þ.a. við náðum að hitta á þau aftur í dag og þá með litla kút, hann Nökkva líka. Páskadagur átti að vera einn allsherjar letidagur hjá mér. Tókst ágætlega fram yfir hádegi en eftir hádegislúr hjá krökkunum drifum við okkur upp í Hlíðarfjall á Stiga sleða og renndum okkur í klukkutíma. Krakkarnir skemmtu sér konunglega og við Jobbi líka, aðallega af því að þau skemmtu sér svo vel:) Úr fjallinu fórum við svo gott sem beint í vöfflukaffi.

Í ár fengu börnin engin páskaegg, og ég hafði nú alveg hugsað mér að gefa þeim smá smakk ef þannig myndi standa á, en hér voru bara borðuð egg á meðan þau sváfu hádegislúrinn og svo í kvöld þ.a. það kom ekki einu sinni til. Í staðin fyrir páskaegg fengu þau sitt hvorn bolinn frá ömmu sinni og afa og ég fór og keypti smá krakkanammi (rúsínur og fleiri þurrkaða ávexti) og baby born föt handa þeim. Krakkanammið er hins vegar enn inn í skáp, ætli þau fái það ekki bara á morgun;) Baby born fötin slógu gjörsamlega í gegn, Ingunn var meira að segja látin sofa í fínu dragtinni sinni, hún var heppin að sleppa við að þurfa að sofa í skónum líka;)

Aðrar praktískar upplýsingar um heimasíðurnar okkar, þá er búið að flytja vistunina á síðunum til Íslands, þ.a. fyrir fólk á Íslandi á að vera töluvert fljótlegra að opna myndirnar í myndasíðunni og vonandi verður síðan ekki eins oft í e-u rugli þ.a. það verður vonandi alltaf (eða svo gott sem) hægt að logga sig inn. Einnig hefur stundum kommentakerfið hérna á bloggsíðunni verið til vandræða og erfitt að komast inn á síðuna til að blogga, það er vonandi orðið breytt til batnaðar:)

Farin í háttinn og vonandi nýtist nóttin vel til að melta allt átið í dag, ég er alveg með upp í háls eftir ofát dagsins;)

Update 24/03/08: Flutningurinn á bloggsíðunni klikkaði örlítið, þ.a. færslan birtist ekki í gær, því hefur nú verið reddað:)

Skrifaði eyrunl klukkan 11:23 EH

mars 06, 2008

Kvennatími í Sundhöllinni

Við fluttum hingað í næstu götu við Sundhöll Hafnarfjarðar fyrir tæpum 5 mánuðum síðan og ég var að fara í fyrsta skipti í sundhöllina síðan þá. Eða réttara sagt í fyrsta skipti síðan e-n tímann í Flensborg og þar áður fór ég örugglega bara þegar ég var enn að æfa sund... Skellti mér í sund áður en Jobbi færi í bandý, tók vel á því og synti án þess að stoppa ca 700m sem er ekki upp í nös á ketti miðað við hvað ég synti hér forðum daga á æfingum, en ég tók allavega nóg á til að verða móð. Þolið ekki alveg upp á sitt besta;) Helminginn synti ég með froskalappir og nýtti það til að taka enn betur á fótunum. Það sem mér fannst nú svolítið fyndið, var að það eru alltaf kvennatímar á þriðjudögum og fimmtudögum milli klukkan 20 og 21 en karlmenn komast aldrei í sundhöllina eftir klukkan 20. Greyið Jobbi sem finnst líka voða gott að drífa sig í sund eftir að krakkarnir eru komnir í háttinn.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:32 EH

mars 04, 2008

Stolt mamma:)

Þegar ég sótti krakkana í leikskólann í dag, skellti ég mér með þau í Fjarðarkaup. Ekki oft sem ég legg í það eftir leikskóla, en þar sem ég þurfti að fara að undirbúa boð á morgun þá dreif ég okkur í búðina. Síðast þegar við fórum, voru þau ekki sátt við að setjast saman í innkaupakerruna (er kerra með tveimur sætum), en eftir smá umræður þar sem mamman kom þeim í skilning um að það væri hún sem réði en ekki þau, þá settust þau en voru samt ekkert voða ánægð með hlutskipti sín. Núna hins vegar komum við inn, og þau mundu greinilega alveg að þau þyrftu að setjast í kerruna því það var haft á orði að nú myndu þau setjast í kerruna, saman. Voru svo eins og ljós alla búðarferðina, hjálpuðu mömmu sinni að passa vörur og setja ofan í kerruna. Í biðröðinni á kassanum breyttist aðeins hljóðið, þá vildi Ásdís fá e-rjar bílavörur (sem var ekki í boði) og þá var sniðugt að leggjast nánast ofan á Birki, ekki sætti hann sig við það þegjandi og hljóðalaust þannig að hann reyndi að leggjast yfir Ásdísi. Með þau á orginu, raðaði ég vörunum upp á borðið og ímyndaði mér hvað aðrir hugsuðu (þó mér væri alveg sama, á meðan ég vissi að ég væri að bregðast rétt við aðstæðunum). Þau hættu auðvitað áður en ég borgaði og við gengum saman út í bíl og allir sáttir:)

Eftir búðarferðina voru þau hins vegar orðin vel þreytt, enda vaknaði Birkir alltof snemma í morgun eins og marga aðra daga... Þau fengu því aðeins að kvarta og kveina yfir óréttlæti heimsins þegar mamman krafðist þess að þau þyrftu að sitja við matarborðið ef þau ætluðu að fá að drekka, en þessi mamma getur verið svo asskoti þrjósk að á endanum var gefist upp að reyna að fá vatnsglasið út á gólf;) Nú er bara að vona heitt og innilega að Birki finnist gott að sofa í fyrramálið og veki okkur ekki fyrir allar aldir. Í morgun var ég búin að berjast við að halda honum í rúminu heillengi áður en ég sleppti honum fram um hálf 7. Það er ekki í boði að vakna eldsnemma og t.d. fá að borða um miðjar nætur, been there, done that!

Skrifaði eyrunl klukkan 11:37 EH | 1 Ummæli