apríl 27, 2008
Ormur í matnum
Við höfðum aldrei eldað sjálf skötusel þegar okkur áskotnaðist nokkrir slíkir fiskar um daginn. Elduðum fyrri hlutann strax eftir að við fengum fiskinn en seinni hlutinn var eldaður í kvöld. Allt gekk vel, ég ákvað að fá mér ábót og tók síðasta bitann úr mótinu. Er að verða hálfnuð með bitann þegar ég sé e-n rauðan blett á fiskstykkinu sem eftir er. Skoða þetta aðeins nánar og þá er fo**ing hringormur í fisknum!!!! Ég er ekki gjörn á að missa matarlistina og man hreinlega ekki eftir því að það hafi algjörlega gerst, fyrr en áðan. Ég kúgaðist eftir þetta, fékk hroll og klígjaði öll þessi ósköp. Sjáum til hvort ég nái að safna kjarki til að borða fisk aftur fljótlega...