maí 31, 2008
Afmælisvika framundan
Þetta er ein alls herjar afmælisvika sem framundan er. Hafnarfjörður er 100 ára á morgun og afmælisveislan stendur yfir í nokkra daga. Fórum í afmælisveislu hjá Bjarti í dag sem verður 4ra ára næsta fimmtudag, börnin okkar verða 3ja ára á mánudaginn, betri helmingurinn minn verður árin eldri á föstudaginn og ég því mikið yngri en hann í heilan dag eða þar til við verðum aftur jafn gömul á laugardaginn;) Það er því lítið rætt um annað en afmæli á okkar heimili þessa dagana. Það er samt aðallega eitt afmæli sem nær hylli yngstu kynslóðarinnar og mikið rætt um hverjir megi nú mæta í afmælið. Það er t.d. ekki sjálfgefið að Birkir megi mæta í afmælið hennar Ásdísar og öfugt... fer allt eftir því hvernig þeim semur það og það skiptið.
maí 28, 2008
Stóru börnin fóru í heimsókn í dag
Í dag fóru stóru börnin okkar Jobba í fyrsta skipti í heimsókn til e-s úr leikskólanum. Það er stelpa á deildinni þeirra sem býr hérna í götunni og hún bauð þeim og stelpunni á efri hæðinni hjá okkur í heimsókn til sín. Ég þurfti nú að koma með til að byrja með og vera með þeim að leika út í garði, því Ásdís var ekki alveg nógu hugrökk til að fara ein þó hana langaði mikið. Þegar krakkarnir ætluðu inn fór ég hins vegar heim og var eiginlega merkilegt hvað það var lítið mál, Ásdís ætlaði fyrst að fara með mér en hætti svo við og klæddi sig sjálf úr útifötunum.
Þennan klukkutíma sem þau voru í heimókn í þarnæsta húsi vissi ég varla hvernig ég ætti að láta... fannst þetta alveg ótrúlega skrítin tilfinning að þau væru e-s staðar ekki hjá náskyldum ættingjum og við foreldrarnir ekki með þeim. Eins gott að það er langt þar til þau verða unglingar/fullorðin og gætu hugsanlega farið að fara á deit;)
Þegar við náðum í þau var Birkir ekki á því að fara heim, grenjaði eins og óhemja því hann ætlaði sko að borða hjá þeim og vildi alls ekki heim. Móðir hans endaði á að halda á honum heim án þess að setja hann í skóna því ekki var hann til í að koma í skóna sína án mikilla vandræða;) Ásdís gat alveg sagt nánast niður í smáatriði hvað þau hefðu gert í þessari heimsókn og meira að segja grenjaði hún og kallaði á mömmu sína þegar hún var inni í herbergi niðri. Held það hafi nú reyndar bara verið e-ð mjög tímabundið því það var alveg mjög gaman hjá henni þegar við komum að sækja þau.
maí 20, 2008
Bensíneyðsla...
Svona í tilefni þess að bensínlíterinn kostar ekki nema tæplega 160kr, verðbólgan er himinhá, gengi krónunnar alveg í lægstu lægðum og hlutabréfin okkar eru ekki líkleg til að gefa okkur alveg jafn mikinn gróða og í fyrra þá höfum við fjölskyldan verið svolítið í því að skoða sundlaugarnar (það á að vera nokkuð hagkvæmt;)) í ca hálftíma - klukkutíma fjarlægð frá höfuðborginni (ekki alveg jafn hagkvæmt;)). Þegar maí gekk í garð með tvöföldum frídegi tókum við bíltúr á Stokkseyri, Eyrabakka og enduðum í sundi á Selfossi. Þar eru tvær litlar barnarennibrautir og krakkarnir byrjuðu á að vera svaka spennt í þeirri minnstu (átti ekki von á að þau myndu vilja eða þora í ostinn). Eftir að þau fóru í ostinn var sveppurinn svo lítið spennandi að þeim fannst það varla þess virði.
Nokkrum dögum seinna lá leiðin með Bjarti, Sunnu og foreldrum til Keflavíkur í Vatnaveröldina. Held það sé á fáum stöðum ódýrara að fara í sund og allt mjög barnvænt. Leiksvæðið þar er innandyra svo það er ekki nauðsynlegt að hafa bongóblíðu til að fara með litla kroppa í sund. Nóg af leiktækjum og vatnið passlega grunnt. Viku seinna skelltum við okkur aftur til Keflavíkur og þá þóttist Ásdís vera nógu stór til að vera kútalaus. Var með radarinn á henni og hún stóð sig eins og hetja... var á fullu í rennibrautunum og vakti athygli annarar mömmu á því hve dugleg hún væri:)
Nú verður reyndar ekki mikið meira um sundferðir á næstunni þar sem hún varð lasin í síðustu viku og er komin með ansi leiðinlegan hósta. Þar sem hún hefur ekki verið neitt lasin að ráði síðan um áramótin þá "gleymdi" ég alltaf að hringja í barnaofnæmislækninn til að fá út úr blóðprufunni sem hún fór í um áramótin til að athuga með ónæmiskerfið hennar. Dreif mig svo í því í síðustu viku og þá kom í ljós að hún var í neðri mörkum og e-ð undir mörkum í e-m gildum (ekki alveg með þetta á hreinu eftir eitt símtal) og læknirinn vildi fá hana í e-a sprautu til að reyna að hjálpa ónæmiskerfinu. Hann ákvað samt að bíða með það fram á haustið og fara þá í nýja blóðprufu þar sem hún er búin að vera svona hraust, vonum að það haldi bara áfram og hún reddi þessu bara sjálf:) Það var s.s. ekki alslæmt að vera gleymin og finna ekki út úr því hvenær hann væri með símatíma;)
maí 16, 2008
Samtal við sjúklinginn
Ásdís er heima lasin og við áttum smá samtal áðan.
Mamma: Hver á bráðum afmæli?
Ásdís: ÉG!
M: Hvað viltu fá í afmælisgjöf?
Á: Bleikt
M: Á pakkinn að vera bleikur?
Á: JÁ!
M: En hvað á að vera inní pakkanum? Dót?
Á: Já
M: Hvernig dót?
Á: *hugsi*hugs* Ingunnar dót... og Óla dót... og Birkis dót. Birkir fær bláan pakka.
M: Birkir má líka fá bleikt
Á: jájá
M: og Ásdís má líka fá blátt
Á: Nei!
Þessi bleika/bláa umræða er mjög algeng á okkar heimili. Það vill jú þannig til að fötin hennar Ásdísar eru oft bleik og fötin hans Birkis oft blá. Af einhverjum ástæðum var Ásdís alveg orðin föst í því að bara stelpur mættu fá bleikt og bara strákar fá blátt. Þá tók mamman málin í sínar hendur og hefur stimplað því inn hjá þeim að stelpur megi líka fá blátt og strákar líka bleikt. Ásdís er farin að sætta sig við það, þó hún þurfi stundum að tala sjálfa sig aðeins til. Mamma púki gæti hins vegar átt það til að gefa henni bláan pakka og Birki bleikan bara til að sýna henni að allir megi fá alla liti:) Það var líka sama mamma sem leyfði drengnum sínum að fara í pilsi í leikskólann einn daginn þegar hann óskaði eftir því.
maí 05, 2008
Bíð eftir símtali...
...frá Frede vini mínum;) Skil ekkert í því að hann og Mary séu ekki búin að bjalla á þráðinn og boða komu sína til mín eða bara bjóða mér í smá dinner. Ég hefði t.d. alveg getað verið laus í kvöld fyrir dinnerinn á Bessastöðum;) Mamma varð hins vegar svo fræg í dag að fá að taka á móti þeim í vinnunni sinni og á meðan bíð ég bara og bíð eftir að heyra í þeim;) Ég heyri þá kannski bara í þeim í sumar þegar ég skelli mér til Danmerkur ef ég heyri ekkert í þeim í þessari heimsókn;)
Í ár ætlaði ég að vera svo ótrúlega tímanleg í að plana afmælisveislu handa frumburðunum okkar Jobba. Ætlaði að vera búin að ákveða kökur og þema og allt alveg LÖNGU fyrir afmælið... Núna er innan við mánuður í afmælin og ég er bara ekki einu sinni byrjuð að hugsa neitt, ekki einu sinni komin með afmælisgjafirnar... óska eftir hugmyndum að þriggja ára afmælisgjöfum...