júní 25, 2008

Síðan risin upp frá dauðum...

Serverinn krassaði hjá okkur um daginn og Jobbi þurfti að koma sér í að redda því. E-ð stóð á því að það gerðist, en í dag gerðust þeir merku hlutir að Jobbi dreif í þessu:)
Annars er allt ljómandi að frétta af okkur fjölskyldunni, alltaf nóg að gera og styttist í sumarfríið. Erum samt búin að þjófstarta aðeins með útilegu um síðustu helgi.

Skrifaði eyrunl klukkan 08:05 EH | 1 Ummæli

júní 06, 2008

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag...

... hann á afmæli hann Jobbi, hann á afmæli í dag *klapp*klapp*klapp*klapp*

6. júní er alltaf góður dagur. Það er afmælisdagurinn hans Gísla afa og hann hefði orðið 79 ára í dag ef hann hefði ekki látist alltof ungur fyrir rúmum 9 árum síðan. Ég fæddist daginn eftir að hann varð fimmtugur og við ætluðum alltaf að halda upp á 50 ára og 100 ára afmælin okkar saman. Ekki bara lágu afmælisdagarnir okkar saman, heldur var hann líka rafmagnsverkfræðingur eins og ég (þegar ég fæ löggildinguna vonandi fljótlega;)) og meira að segja líka í háspennu. Um tveimur árum eftir að hann dó byrjum við Jobbi saman, hann hafði fæðst á 50 ára afmælisdaginn hans afa og er því heilum degi eldri en ég. Við kynnumst í rafmagnsverkfræðinni í HÍ þ.a. það er greinilega e-ð með þessa afmælisdaga og rafmagnsverkfræði:) Núna er 6. júní eini dagur ársins sem ég fæ að vera árinu yngri en Jobbi og ég nýt þess alltaf í botn:)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:46 EH | 6 Ummæli

júní 04, 2008

Nýjar myndir í myndaalbúminu

Maður er ekki lengi að því sem lítið er... þess vegna eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið okkar. Komnar myndir frá mars, apríl, maí, ferð norður á Akureyri og svo líka nokkrar myndir af væntanlegu heimili okkar fjölskyldunnar:)

Skrifaði eyrunl klukkan 12:30 FH | 2 Ummæli

júní 02, 2008

Þrjú ár liðin frá mestu breytingu lífs míns

Fyrir akkúrat þremur árum lá ég dauðuppgefin á sængurkvennaganginum á Gentofte spítalanum eftir að hafa ungað út tveimur litlum krílum;) Ári síðar fannst mér þau vera orðin risa stór en e-ð finnst mér þau hafa verið pínu lítil þá miðað við fyrir ári síðan þegar þau urðu 2ja ára. Síðasta árið hafa þau svo stækkað enn meira og eru engin kríli lengur heldur bara orðin nokkuð stór sem vita að þau eiga heima á Klettagötu 10, vita einnig að það er í Hafnarfirði og héldu upp á afmæli Hafnarfjarðarbæjar um helgina. Eru búin að læra að pabbinn vinnur hjá Símanum, en ekki ennþá búin að læra að mamman vinni hjá Landsneti. Þau þekkja hins vegar háspennulínur um leið og þau sjá þær og eru alltaf heilluð þegar keyrt er framhjá línum:) Enda flott og merkileg mannvirki:)

Skrifaði eyrunl klukkan 10:10 EH | 2 Ummæli

júní 01, 2008

Slys hjá Halastjörnunni ("gamlingjar" í fimleikum hjá Stjörnunni)

Í fyrravetur var ég í fimleikum hjá GGG í Gerplu ("gamlingjar";)) og skemmti mér konunglega. Var einu sinni mjög nálægt (eiginlega óþæginlega nálægt) því að stórslasa mig á æfingu þegar ég var á hlaupatrampolíninu og ætlaði bara að gera einfalt heljarstökk. Hljóp að trampolíninu, hoppaði og gerði snúning en endaði á hvolfi á milli trampolíns og dýnu. Ef ekki hefði verið fyrir þjálfarana sem stóðu ALLTAF við hliðina á trampolínunum þegar við stukkum þá hefði ég endað annað hvort fyrst með öxlina á trampolíninu og svo höfuðið í gólfið eða endað beint með höfuðið í gólfinu. Mig langar eiginlega ekki að vita hvað ég hefði slasast mikið ef þjálfarinn hefði ekki gripið mig, en ég hefði líklega verið heppin ef ég hefði ekki hálsbrotnað eða brákast.

Síðasta haust var Gerpla með svo tímana fyrir "eldra fólkið" á svo óheppilegum tímum fyrir fjölskyldufólk að ég ákvað að prófa að mæta á eina æfingu hjá Halastjörnunni í Garðabæ. Þar var einn þjálfari með fullan sal að fólki sem gerði hinar ýmsu æfingar. Þar voru t.d. nokkur hlaupatrampolín og þjálfarinn kom bara og leiðbeindi fólki þegar þess var óskað. Þess utan stökk fólk bara án þess að þjálfari væri nálægt. Þess vegna kemur mér það ekkert á óvart að tvö alvarleg slys verði hjá Halastjörnunni frekar en GGG hjá Gerplu.

Það að þær sem slösuðust hafi oft áður gert þessar æfingar segir ósköp lítið því ég var búin að gera samskonar stökk margoft þegar stökkið mitt klúðraðist og þakka mínu sæla fyrir að hafa verið hjá Gerplu frekar en Stjörnunni.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:52 FH