júní 06, 2008
Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag...
... hann á afmæli hann Jobbi, hann á afmæli í dag *klapp*klapp*klapp*klapp*
6. júní er alltaf góður dagur. Það er afmælisdagurinn hans Gísla afa og hann hefði orðið 79 ára í dag ef hann hefði ekki látist alltof ungur fyrir rúmum 9 árum síðan. Ég fæddist daginn eftir að hann varð fimmtugur og við ætluðum alltaf að halda upp á 50 ára og 100 ára afmælin okkar saman. Ekki bara lágu afmælisdagarnir okkar saman, heldur var hann líka rafmagnsverkfræðingur eins og ég (þegar ég fæ löggildinguna vonandi fljótlega;)) og meira að segja líka í háspennu. Um tveimur árum eftir að hann dó byrjum við Jobbi saman, hann hafði fæðst á 50 ára afmælisdaginn hans afa og er því heilum degi eldri en ég. Við kynnumst í rafmagnsverkfræðinni í HÍ þ.a. það er greinilega e-ð með þessa afmælisdaga og rafmagnsverkfræði:) Núna er 6. júní eini dagur ársins sem ég fæ að vera árinu yngri en Jobbi og ég nýt þess alltaf í botn:)
Skrifaði eyrunl þann 06.06.08 22:46VÁ!! Ekkert smá magnað maður! Eeeeen hér í Baunalandi er þó kominn nýr dagur og dagurinn er 7.JÚNÍ og því verður þú að viðurkenna góða mín að dagurinn sem þú ert ári yngri er liðinn;) Hehe- Innnnnilega til lukku með daginn esskan- var búin að óska þér til lukku með kallinn í gær, en vonum að þú eigir FRÁBÆRAN afmælisdag skvíz:) Kiss og knúz HB & IP (btw. vona ekki að fleiri haldi BARA HB og finnist það MJÖÖÖG eðlilegt...hehehehe!)
Skrifaði: Helga Björt þann 07.06.08 06:50Til hamingju með daginn í gær Jobbi.... oooog til hamingju með daginn í dag Eyrún mín :) Færð knús á eftir... brjálað að gera í afmælisstússi hjá ykkur familíunni þessa dagana hehe...
Skrifaði: Matthildur þann 07.06.08 10:39Til hamingju með kallinn og sjálfa þig;o)
Skelli nú einum á ykkur á eftir....
Til hamingju með daginn í dag elsku frænka. Bóndann í gær og tvíburana þann 2. Nóg af afmælum í einni viku.
Þin frænka Rósa
Skrifaði: Rósa Guðrún Linnet þann 07.06.08 18:36Til hamingju með allt saman síðustu vikuna ; )
Frábær vika í ykkar familíu.... endalausar veislur, afmæli og gleðiefni!!
Kossar og knús
Berglind
Takk fyrir allar kveðjurnar:)
Skrifaði: Eyrún þann 10.06.08 10:31