júní 02, 2008

Þrjú ár liðin frá mestu breytingu lífs míns

Fyrir akkúrat þremur árum lá ég dauðuppgefin á sængurkvennaganginum á Gentofte spítalanum eftir að hafa ungað út tveimur litlum krílum;) Ári síðar fannst mér þau vera orðin risa stór en e-ð finnst mér þau hafa verið pínu lítil þá miðað við fyrir ári síðan þegar þau urðu 2ja ára. Síðasta árið hafa þau svo stækkað enn meira og eru engin kríli lengur heldur bara orðin nokkuð stór sem vita að þau eiga heima á Klettagötu 10, vita einnig að það er í Hafnarfirði og héldu upp á afmæli Hafnarfjarðarbæjar um helgina. Eru búin að læra að pabbinn vinnur hjá Símanum, en ekki ennþá búin að læra að mamman vinni hjá Landsneti. Þau þekkja hins vegar háspennulínur um leið og þau sjá þær og eru alltaf heilluð þegar keyrt er framhjá línum:) Enda flott og merkileg mannvirki:)

Skrifaði eyrunl þann 02.06.08 22:10
Ummæli

Til hamingju með daginn elsku vinir okkar =)

Skrifaði: Bjartur & Sunna þann 02.06.08 21:46

Innilega til hamingju með daginn elsku Ásdís og Birkir:) Vona að þið eigið frábæran afmælisdag.... Biðjum að heilsa "gömlu" :) Kossar og knúz HB og IP

Skrifaði: Helga Björt þann 03.06.08 07:44