júní 01, 2008
Slys hjá Halastjörnunni ("gamlingjar" í fimleikum hjá Stjörnunni)
Í fyrravetur var ég í fimleikum hjá GGG í Gerplu ("gamlingjar";)) og skemmti mér konunglega. Var einu sinni mjög nálægt (eiginlega óþæginlega nálægt) því að stórslasa mig á æfingu þegar ég var á hlaupatrampolíninu og ætlaði bara að gera einfalt heljarstökk. Hljóp að trampolíninu, hoppaði og gerði snúning en endaði á hvolfi á milli trampolíns og dýnu. Ef ekki hefði verið fyrir þjálfarana sem stóðu ALLTAF við hliðina á trampolínunum þegar við stukkum þá hefði ég endað annað hvort fyrst með öxlina á trampolíninu og svo höfuðið í gólfið eða endað beint með höfuðið í gólfinu. Mig langar eiginlega ekki að vita hvað ég hefði slasast mikið ef þjálfarinn hefði ekki gripið mig, en ég hefði líklega verið heppin ef ég hefði ekki hálsbrotnað eða brákast.
Síðasta haust var Gerpla með svo tímana fyrir "eldra fólkið" á svo óheppilegum tímum fyrir fjölskyldufólk að ég ákvað að prófa að mæta á eina æfingu hjá Halastjörnunni í Garðabæ. Þar var einn þjálfari með fullan sal að fólki sem gerði hinar ýmsu æfingar. Þar voru t.d. nokkur hlaupatrampolín og þjálfarinn kom bara og leiðbeindi fólki þegar þess var óskað. Þess utan stökk fólk bara án þess að þjálfari væri nálægt. Þess vegna kemur mér það ekkert á óvart að tvö alvarleg slys verði hjá Halastjörnunni frekar en GGG hjá Gerplu.
Það að þær sem slösuðust hafi oft áður gert þessar æfingar segir ósköp lítið því ég var búin að gera samskonar stökk margoft þegar stökkið mitt klúðraðist og þakka mínu sæla fyrir að hafa verið hjá Gerplu frekar en Stjörnunni.
Skrifaði eyrunl þann 01.06.08 10:52