júlí 29, 2008

Hiti og sviti í Danmörku

Þá erum við Jobbi komin aftur heim til okkar, og börnin alsæl að fá foreldrana aftur. Ferðin var ótrúlega vel heppnuð, aðeins verslað, farið oft út að borða, vorum í góðra vina hópi og vorum viðstödd alveg frábært brúðkaup. Það var hins vegar frekar heitt allan tímann, oftast þannig að það dugði bara vel að vera í skugga... nema akkúrat á brúðkaupsdaginn, þá var heitasti dagurinn og það hreyfðist ekki loftið. Fólk svitnaði því ótrúlega mikið glansaði í framan af svitanum;) Það var ekki fyrr en það nálgaðist miðnætti að hitinn fór að verða svona eðlilegur fyrir fólk í fínni veislu. Ég hafði mikið fyrir því að verða mér úti um ermar til að vera í við kjólinn, þar sem kjóllinn var hlýralaus. Keypti mér fyrst einar stutterma, sem voru síðan að mér fannst ekki nógu sparilegar þ.a. ég tók mig til tveimur dögum fyrir brottför að sauma á mig hálferma ermar úr svörtu siffoni í stíl við kjólinn (sem var grænn undir með svörtu siffoni yfir). Ég reyndi að fara í ermarnar og sokkabuxur áður en við fórum út úr húsi, strax á leiðinni út á lestarstöð var ég komin úr ermunum. Í kirkjunni þótti mér við hæfi að fara aftur í ermarnar en var ekki lengi að láta þær fjúka aftur og áður en við fórum í veisluna fengu sokkabuxurnar að fjúka líka. Maður vorkenndi bara karlmönnunum í jakkafötunum og svo ég tali nú ekki um brúðinni í sínum æðislega kjól, það hefur örugglega verið aðeins heitara en ég upplifði það... Þessi hiti og sviti setti nú samt bara aðeins meiri ævintýrablæ yfir brúðkaupið en veislan var haldin á æðislegum stað þar sem við ásamt flestum hinum gestunum gistum eftir veisluna. Salurinn er eflaust gömul hlaða með þvílíkum sjarma, húsið er svona hlaðið steinhús frá 1877. Svo var líka allt svo vel skipulagt, alveg frá A-Ö.

Takk fyrir mig og mína elsku Helga Björt og Ingibjörn!!

Skrifaði eyrunl klukkan 10:53 EH | 1 Ummæli

júlí 24, 2008

Denmark, here we come!

Ég er eins og lítill krakki að bíða eftir jólunum eftir því að fara aftur til Danmerkur! Er reyndar í smá bömmer yfir gengi dönsku krónunnar... en maður verður að líta framhjá smáatriðunum;) Ég, Anna og Matthildur vorum meira að segja að panta okkur borð (reyndar eftir að koma staðfesting á því að það gangi...) á Reef'n'beef sem við Jobbi fórum á fyrir rúmum þremur árum síðan með Guðbjörgu og Vigni. Vonandi fáum við borð og vonandi verður það jafn gott og síðast:)

Skrifaði eyrunl klukkan 12:14 FH | 1 Ummæli

júlí 20, 2008

Sumarfríið hálfnað...

Við fjölskyldan erum búin að njóta þess að vera í fríi í tvær vikur. Finnst samt frekar súrt að hugsa til þess að fríið sé hálfnað og því farið að styttast í að vinnan byrji aftur. Mér finnst nú almennt mjög gaman í vinnunni en þegar ég er í fríi, vil ég helst bara vera alltaf í fríi... gæti t.d. alveg hugsað mér sumarfrí bara allt sumarið:)
Síðan við komum úr Húsafelli höfum við bara verið í því að njóta þess að vera til og í fríi... bílarnir hafa verið þvegnir og bónaðir og er það í fyrsta sinn sem Renaultinn er bónaður síðan við keyptum hann fyrir tæpu ári síðan:/ Núna styttist í að við hjónaleysin skellum okkur aftur til Danmerkur og verður það í fyrsta sinn sem við förum þangað saman síðan við fluttum heim fyrir rúmum tveimur árum. Er kominn allnokkur spenningur í mig fyrir allri ferðinni, bæði að komast aftur út og einnig brúðkaupinu. Spurning hvort þetta verði síðasta brúðkaup sem við förum í áður en við Jobbi giftum okkur... kemur í ljós.

Skrifaði eyrunl klukkan 09:07 FH | 0 Ummæli

júlí 18, 2008

Deutsch, dansk eða íslenska...

Tungumál hafa hingað til ekki verið mín sterkasta hlið... lengi framan af í skólagöngu minni var eina fallið mitt í ensku 103... Eftir eitt ár í Sviss var þýskan hins vegar komin nánast gallalaus og hélst alveg þokkaleg þó ég kæmi aftur til Íslands eða allt þar til ég flutti til Danmerkur. Fyrstu vikurnar í Danaveldi kom bara þýska með einstaka dönskum orðum... með tímanum fjölgaði dönsku orðunum þar til þýskan var alveg farin. Hún grófst meira að segja svo djúpt í neðstu skúffurnar í heilanum að ég gat með engu móti reynt að koma frá mér setningu á þýsku, það kom allt bara á dönsku. Ári eftir að við fluttum út fórum við fyrst í helgarferð til Þýskalands og svo mánaðarferð um Þýskaland, Sviss og Ítalíu. Í helgarferðinni gat ég rétt svo reddað mér með einföldustu hluti en eftir mánuð þar sem þýskan var það eina sem maður gat almennilega notast við, var hún komin aftur. Það sem meira var, þegar við komum aftur til Danmerkur gat ég ekki talað dönsku, það kom þýska með einstökum dönskum orðum, svipað því sem hafði verið ári áður. Eftir þetta hef ég ekki farið til þýskumælandi lands og því ekki náð að hrista þýskuna almennilega fram (sem yrði væntanlega á kostnað dönskunnar). Hins vegar er ég búin að vera að vera aðeins í þýskum samskiptum núna í sumar og í dag hitti ég svo eina vinkonu mína frá Sviss á facebook. Ég er því búin að vera að tala/skrifa þýsku núna í dag. Eftir viku erum við Jobbi svo á leiðinni á gamlar heimaslóðir í Danmörku í brúðkaup hjá Helgu Björt og Ingabirni og þá munum við tala aftur dönsku. Inn á milli hugsar maður og talar svo á íslensku;) Sem betur fer þarf ég ekki mikið að vera að tala á ensku núna... ekki alveg viss um að minn talnaheili myndi þola fjórða tungumálið á sama tíma;)

Skrifaði eyrunl klukkan 08:51 EH | 0 Ummæli

júlí 14, 2008

Les e-r þessa síðu ennþá?

Veit nú að ég hef verið mjög misdugleg að blogga... en ég er svona að spá hvort ég sé bara að tala við sjálfa mig hérna og ég geti þá alveg eins bara gert það í einrúmi ;) eða hvort allir læðist bara með veggjum hérna;)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:30 FH | 11 Ummæli

Nýjar júní myndir

Búin að fara í gegnum allar júní myndirnar okkar og láta inn í 7 flokkum. Þarna eru fleiri myndir af væntanlegu framtíðarheimilinu okkar, reyndar ekkert krassandi frá því síðast... fórum í tvær útilegur, kíktum á galdrakarlinn í Oz í Hellisgerði, fjölskyldan átti afmæli, fórum í Húsdýragarðinn og svo að lokum ýmsar myndir frá því í Júní. Svona getur maður nú verið duglegur þegar maður tekur sig til;)

Skrifaði eyrunl klukkan 12:10 FH

júlí 13, 2008

Fr. verkfræðingur Eyrún Linnet

Fyrir rúmum tveimur árum lauk ég því námi sem til þarf til að geta fengið leyfi til að kalla sig verkfræðing. Til að mega nota verkfræðingatitilinn þarf maður hins vegar að sækja um löggildingu hjá iðnaðarráðuneytinu. Það er auðvitað aðeins of mikið mál fyrir latan Hafnfirðing að fara alla leið niður í miðbæ Reykjavíkur á opnunartíma ráðuneytissins, finna bílastæði, vera með klink í stöðumæli o.s.frv... Í maí var ég "nöppuð" til að setjast í stjórn Rafmagnagnsverkfræðideildar Verkfræðingafélags Íslands og til þess þurfti ég að vera meðlimur í Verkfræðingafélagi Íslands og til að fá að vera félagi þar, þarf maður að vera með löggildingu. Var samt ansi heppilegt að með því að skrá mig í félagið, þá gat ég sótt um löggildinguna í leiðinni á NETINU!! Það er náttúrulega bara snilldin ein og í síðustu viku kom svo bréf frá félaginu þar sem fram kom að þeir hefðu farið yfir prófgögnin mín og ég uppfylli öll skilyrði til að nota starfsheitið verkfræðingur. Núna þarf ég "bara" að hafa samband við iðnaðarráðuneytið varðandi afhendingu leyfisbréfsins... vonandi að það taki ekki alveg jafn langan tíma og það tók mig að sækja um;)

Skrifaði eyrunl klukkan 09:43 EH | 0 Ummæli

júlí 11, 2008

Týnd færsla

Um daginn fórum við í útilegu og ég var agalega dugleg að blogga um þá athyglisverðu reynslu sem við lentum í með nágranna okkar en rétt áður en ég vistaði týndi ég færslunni og nennti að sjálfsögðu ekki að pikka það aftur inn strax... núna er spurning hverju ég nenni;)

Fyrir tveimur vikum skelltum við fjölskyldan okkur í Laugarás með nokkrum öðrum fjölskyldum sem allar áttu það sameiginlegt að hafa búið á sama tíma á Trørød kollegíinu og að hafa eignast barn á tímabilinu júní 2005 - febrúar 2006 (það hlýtur að hafa verið e-ð frjósemislyf í kalda vatninu á tímabilinu frá sept 2004 - maí 2005;))

Aftur að útilegunni, fyrsta fjölskyldan sem mætti á svæðið var látið í að finna góðan blett handa okkur og það var ansi gott svæði sem var laust. Nágrannarnir voru eldri hjón sem reyndu að hrekja þau í burtu eins og þau höfðu víst gert við annað fólk rétt áður. Þegar þau ætluðu að snúa við og leita annars staðar komu aðrir gestir og peppuðu þau upp að leyfa þessu fólki ekki að komast upp með að hrekja þau í burtu líka. Við plöntuðum okkur því þarna í næsta nágrenni við þau. Við máttum samt ekki vera nema bara öðrum megin við þau og alls ekki fyrir framan þau... Þegar Guðbjörg og Vignir mættu fengu þau að heyra að þau væru að bíða eftir að vinir sínir myndu koma svo þau máttu ekki koma of nálægt þeim, því þau urðu að hafa nóg pláss. Þegar tjaldverðirnir komu að rukka um kvöldið kvörtuðu þau að þau þyrftu að hafa góða útgönguleið, tjaldverðirnir bentu þeim þá á að það hefði þá verið gáfulegra fyrir þau að finna sér annan stað en akkúrat innst inni í horni. Þau reyndu líka að ljúga að tjaldvörðunum að börnin þeirra væru að koma og því gæti fleira fólk ekki tjaldað nálægt þeim. Það sem þau voru hins vegar á höttunum eftir, var friður fyrir kojufylleríi og því hefði þeim átt að vera nokkuð sama um útgönguleiðina, því þau hefðu hvort eð er bara komist fótgangandi sökum drykkju. Það þarf varla að taka fram að það mætti enginn til þeirra alla helgina.

Á laugardagskvöldinu gerðum við mini varðeld (arinkubbur á grill) og fórum út fyrir okkar hring, því það var svo þröngt hjá okkur svo við værum ekki of nálægt nágrönnunum... og vorum þá fyrir framan þeirra fellihýsi (samt töluvert langt frá) Þau höfðu meira pláss í kringum sitt eina fellihýsi en við hópurinn höfðum til samans fyrir tvö fellihýsi, tjaldvagn, stórt hústjald og lítið tjald... Einn mætti með gítar svo við sungum aðeins (n.b. klukkan var fyrir miðnætti...) og þó ég segi sjálf frá þá vorum við alls ekki hávær. Klikkuðu nágrannarnir hækkuðu hins vegar í gömlu gufunni í útvarpinu sínu og reyndu að yfirgnæfa okkur. Þegar við hættum að syngja, heyrðist svo hátt í útvarpinu þeirra út á mitt tún að þau hafa pottþétt ekki getað talað saman inni hjá sér.

Reglulega kom maðurinn út úr fellihýsinu sínu og starði yfir til okkar og fór svo aftur inn... Þetta var ansi merkileg upplifun af klikkuðum nágrönnum á tjaldsvæði...

Skrifaði eyrunl klukkan 09:26 EH

júlí 10, 2008

Ódýr sólarlandaferð...

Við fjölskyldan pöntuðum okkur sumarbústað í Húsafelli fyrstu vikuna í sumarfríinu okkar. Nú styttist í að við komum aftur heim á morgun en þetta er búið að vera algjörlega himnesk vika. Hitinn hefur verið yfir 20°C í skugga á hverjum einasta degi! Sólarvörnin kláraðist og við létum kaupa fyrir okkur meiri vörn þegar Ingunn og co þurftu að skreppa niður í Borganes... Það er líka búið að vera ansi gestkvæmt og gaman og heiti potturinn mikið notaður. Algjör snilld að krakkarnir geti bara leikið úti og að maður þurfi ekki stanslaust að hlaupa á eftir þeim.

Í vikunni áður en við mættum hingað tilkynnti ég börnunum að þau ættu einungis eitt snuð eftir hvort og ef þau myndu tapa þeim ættu þau enga eftir. Sama kvöld missti Ásdís snuðið sitt í klósettið svo hún hefur ekki átt neitt snuð síðan þá. Á sama tíma var ákveðið að snuðið hans Birkis myndi ekki koma með okkur í bústaðinn og var honum sagt að snuðið hefði týnst á leiðinni í bústaðinn. Það er alveg merkilegt hvað það hefur gengið vel og þau eru nánast hætt að spyrja eftir snuðunum og ekkert mál að fara að sofa án þeirra.

Skrifaði eyrunl klukkan 10:57 EH