júlí 29, 2008
Hiti og sviti í Danmörku
Þá erum við Jobbi komin aftur heim til okkar, og börnin alsæl að fá foreldrana aftur. Ferðin var ótrúlega vel heppnuð, aðeins verslað, farið oft út að borða, vorum í góðra vina hópi og vorum viðstödd alveg frábært brúðkaup. Það var hins vegar frekar heitt allan tímann, oftast þannig að það dugði bara vel að vera í skugga... nema akkúrat á brúðkaupsdaginn, þá var heitasti dagurinn og það hreyfðist ekki loftið. Fólk svitnaði því ótrúlega mikið glansaði í framan af svitanum;) Það var ekki fyrr en það nálgaðist miðnætti að hitinn fór að verða svona eðlilegur fyrir fólk í fínni veislu. Ég hafði mikið fyrir því að verða mér úti um ermar til að vera í við kjólinn, þar sem kjóllinn var hlýralaus. Keypti mér fyrst einar stutterma, sem voru síðan að mér fannst ekki nógu sparilegar þ.a. ég tók mig til tveimur dögum fyrir brottför að sauma á mig hálferma ermar úr svörtu siffoni í stíl við kjólinn (sem var grænn undir með svörtu siffoni yfir). Ég reyndi að fara í ermarnar og sokkabuxur áður en við fórum út úr húsi, strax á leiðinni út á lestarstöð var ég komin úr ermunum. Í kirkjunni þótti mér við hæfi að fara aftur í ermarnar en var ekki lengi að láta þær fjúka aftur og áður en við fórum í veisluna fengu sokkabuxurnar að fjúka líka. Maður vorkenndi bara karlmönnunum í jakkafötunum og svo ég tali nú ekki um brúðinni í sínum æðislega kjól, það hefur örugglega verið aðeins heitara en ég upplifði það... Þessi hiti og sviti setti nú samt bara aðeins meiri ævintýrablæ yfir brúðkaupið en veislan var haldin á æðislegum stað þar sem við ásamt flestum hinum gestunum gistum eftir veisluna. Salurinn er eflaust gömul hlaða með þvílíkum sjarma, húsið er svona hlaðið steinhús frá 1877. Svo var líka allt svo vel skipulagt, alveg frá A-Ö.
Takk fyrir mig og mína elsku Helga Björt og Ingibjörn!!
Skrifaði eyrunl þann 29.07.08 22:53Hæ pæ og TAK FOR SIDST og enn og aftur takk fyrir okkur;) Hehehehe- veistu það var bara EKKERT svo heitt í kjólnum þrátt fyrir allt sko- held frekar að smóking-kallarnir hafi fengið að finna fyrir hitanum;) Okkur fannst þetta alveg GEGGGGGJAÐUR dagur og vonum að allir hafi skemmt sér vel:) Hvernig er annars með myndirnar- þú tókst fullt er þakki? Værum alveg til í að fá á disk ef þú myndir nenna:) Hafið það gott elskurnar- kys og knuz;)
Skrifaði: Helga Björt þann 04.08.08 08:10