júlí 10, 2008

Ódýr sólarlandaferð...

Við fjölskyldan pöntuðum okkur sumarbústað í Húsafelli fyrstu vikuna í sumarfríinu okkar. Nú styttist í að við komum aftur heim á morgun en þetta er búið að vera algjörlega himnesk vika. Hitinn hefur verið yfir 20°C í skugga á hverjum einasta degi! Sólarvörnin kláraðist og við létum kaupa fyrir okkur meiri vörn þegar Ingunn og co þurftu að skreppa niður í Borganes... Það er líka búið að vera ansi gestkvæmt og gaman og heiti potturinn mikið notaður. Algjör snilld að krakkarnir geti bara leikið úti og að maður þurfi ekki stanslaust að hlaupa á eftir þeim.

Í vikunni áður en við mættum hingað tilkynnti ég börnunum að þau ættu einungis eitt snuð eftir hvort og ef þau myndu tapa þeim ættu þau enga eftir. Sama kvöld missti Ásdís snuðið sitt í klósettið svo hún hefur ekki átt neitt snuð síðan þá. Á sama tíma var ákveðið að snuðið hans Birkis myndi ekki koma með okkur í bústaðinn og var honum sagt að snuðið hefði týnst á leiðinni í bústaðinn. Það er alveg merkilegt hvað það hefur gengið vel og þau eru nánast hætt að spyrja eftir snuðunum og ekkert mál að fara að sofa án þeirra.

Skrifaði eyrunl þann 10.07.08 22:57