ágúst 11, 2008
Búin að endurheimta börnin úr "sveitinni"
Það er margsannað að það er gott að eiga góða að. Á föstudaginn eftir vinnu skellti Margrét systir sér norður og náði í börnin mín. Mikið var nú gott að fá þau aftur og knúsa þau svolítið;) Eftir helgarfrí fórum við svo í morgun upp í Tjarnarás þar sem við mættum í fyrsta daginn í aðlögun fyrir nýja leikskólann. Litla skottan mín ætlaði aldrei að sofna í gærkveldi og svaf því bara lengi í morgun. Vaknaði síðan ca klukkutíma áður en við áttum að mæta á leikskólann og þar sem við Birkir vorum alveg tilbúin átti þetta allt saman að ganga vel. Neinei, daman var ekki á því að láta hlutina ganga e-ð of auðveldlega fyrir sig, hún vildi í kjól. Ekkert mál segir mamman og býður henni að velja á milli tveggja kjóla sem eru svona hæfilegir fyrir leikskólann. NEI!!! Hún vildi sko ekki svona kjóla, hún vildi SPARIKJÓL MEÐ BLÓMUM!! Ónei, það var ekki í boði... þ.a. það var grenjað. Hún vildi sko ekki skipta um nærföt... mamman gaf eftir nærbolinn en nærbuxur skildi hún skipta um. Þá var komið að sokkabuxunum. Hún vildi sko EKKI með myndum, þ.a. mamman dró fram einar einlitar og einar röndóttar auk þessarar sem hún hafði fengið fyrst og voru með myndum. Eftir mikið stríð valdi hún einlitu buxurnar sem eru vel stórar. Þá var það auðvitað alveg hræðilegt, þær voru nánast ónýtar því þær lágu nú ekki alveg sléttar upp að litlu sætu táslunum hennar. Svo allt í einu var daman til í að fara í stuttbuxur utan yfir sokkabuxurnar og þannig fór hún í leikskólann fyrsta daginn.
Ég segi ekki að ég hafi ekki verið farin að anda inn, anda út og telja upp á fimmtíu svona nokkuð reglulega... en þetta hafðist og við mættum bara ca 5-10 mínútum of seint.
Það var svona álíka erfitt fyrir dömuna að fara að sofa í kvöld og að komast í föt í morgun... en það hafðist að lokum...